Fleiri akstursferðir fyrir eldra fólk í Hafnarfirði

Fréttir

Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Ferðum fjölgar úr 8 í 16. Tvöfalt fleiri ferðir verða því í boði.

Já, fleiri ferðir fyrir aukna félagslega virkni!

Akstursþjónusta eldra fólks verður efld frá og með 15. maí. Tvöfalt fleiri ferðir verða í boði. Þeim fjölgar úr 8 í 16. Bæjarfélagið bregst þannig við umsögn sem öldungaráð vann fyrir fjölskylduráð og þakkar ráðinu fyrir vandað starf. Breytingarnar eru gerðar í baráttunni við einmanaleika og einangrun eldra fólks og fleiri tækifæri gefin til mannlegra samskipta til að mynda í dagdvöl og félagsstarfi.

Þjónustan verður notendavænni og hún bætt. Markmiðið er að tryggja aukna félagslega virkni fólks. Gjaldskrá þjónustunnar breytist nú einnig. Greiðsla fyrir þjónustuna verður tekjutengd. Tekjulágir greiða almennt strætófargjald en tekjuhærri greiða 1100 krónur fyrir hverja ferð.

 

Nánar um akstursþjónustuna

Sækja um akstur

Eldra fólk sem getur ekki nýtt sér strætó getur fengið akstursþjónustu til að komast til læknis, í sjúkraþjálfun, endurhæfingu eða dagdvöl.

Hverjir eiga rétt á akstursþjónustu eldri borgara?

Íbúar í Hafnarfirði sem eru 67 ára eða eldri. Annað sem þarf að uppfylla er:

  • Að búa sjálfstætt.
  • Ekki eiga bíl.
  • Vera ófær um að nota almenningssamgöngur.

Hvernig er sótt um akstursþjónustu?

Það er sótt um á Mínum síðum.

Til að fá meiri upplýsingar er hægt að senda fyrirspurn á akstur@hafnarfjordur.is

Hvernig á að panta akstur?

Það er hægt að panta annað hvort á vefsíðu hópbíla eða hringja í 599 6084. Pöntunin þarf að berast með allavega tveggja tíma fyrirvara. Ef það er minna en sólarhringur þar til ferðin er er best að hringja. Síminn er opinn alla virka daga frá 7–15, og um helgar frá 07–16.

Á hvaða tíma er ekið?

Aksturstími er alla daga frá kl. 06:30–00:00. Á stórhátíðum er akstur frá kl. 10–22.

 

 

Ábendingagátt