Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Samfélagslöggurnar okkar eru orðnar fjórar. Starfið hefur því verið eflt til muna, en þær voru tvær. Löggurnar fara á milli skóla hér í Hafnarfirði og Garðabæ og fræða unga fólkið okkar á mánudögum og þriðjudögum. „Við vinnum með samfélaginu,“ segir Dagný Karlsdóttir samfélagslögga.
Samfélagslöggurnar okkar eru orðnar fjórar. Starfið hefur því verið eflt til muna, en þær voru tvær, og fara löggurnar okkar á milli skóla hér í Hafnarfirði og Garðabæ og fræða unga fólkið okkar á mánudögum og þriðjudögum. Á vormánuðum heimsóttu samfélagslöggur Hafnarfjarðar alla 7. bekki í grunnskólum bæjarins og veittu nemendunum fræðslu um ofbeldi, vopnaburð, einelti og hótanir. Nú heimsækja þær 8., 9. og 10. bekk.
Afar vel var tekið á móti Dagnýju Karlsdóttur og Ýr Steinþórsdóttur lögreglukonum þegar þær heimsóttu 8. bekki Öldutúnsskóla nú í morgun. Þær lögðu spurningar fyrir bekkina og fengu nemendurna til að spyrja spurninga og velta fyrir sér starfi þeirra og samfélaginu?
„Má kæra foreldra fyrir að taka og birta af manni myndir sem maður vill ekki? Hvað er það skrýtnasta sem þið hafið upplifað í starfi?“ Unglingarnir spurðu margs og fengu svör.
Alla þriðjudaga heimsækja þær grunnskólanemendur til að auka sýnileika og ýta undir vellíðan og öryggi allra í samfélaginu okkar. Þessar heimsóknir munu standa fram á vor. Spurningarnar sem þær fengu voru margar
Samfélagslöggæsla er forvarnarverkefni lögreglunnar sem Hafnarfjarðarbær styður með öllum tiltækum ráðum.
Dagný Karlsdóttir og Ýr Steinþórsdóttir samfélagslöggur í Öldutúnsskóla nú í morgun.
Samfélagslöggurnar okkar sinna þessari samfélagslöggæslu samhliða hefðbundnum lögreglustörfum. Þrjár eru í 50% starfi sem samfélagslöggur og sú fjórða 25%. Þær heimsækja félagsmiðstöðvar, öldrunarheimili og leikskóla til að tengjast samfélaginu. Frá því í vor hafa þær verið í sérstöku átaki að fræða ungmennin og er framtakið hugsað sem leið til að bæta þjónustuna og efla tengslin við almenning og þá ekki síst unga fólkið.
„Við vinnum með samfélaginu hér í Hafnarfirði og tökum fyrir mál og áskoranir líðandi stundar. Við viljum færa okkur nær samfélaginu, efla sýnileika og samstarf milli allra hlutaðeigandi,“ segir Dagný Karlsdóttir, samfélagslögga.
„Við erum mikilvægur hlekkur í innleiðingu farsældarlaganna og tökum hlutverk okkar þar alvarlega og hvetjum alla aðra til að gera það líka. Öll þau sem starfa með börnum og ungmennum og kannski ekki síst sjálfa foreldrana,“ segir hún. Góð tenging við samfélagið auki líkurnar á því að fólk hafi samband við lögregluna, hugsi til hennar og um hana áður en í óefni er komið.
„Unga fólkið í Hafnarfirði er mjög áhugasamt um okkar störf og verkefni,“ segir Dagný. Fræðsla lögreglunnar til ungmennanna snýr meðal annars að sakhæfisaldri, vopnaburði, hótunum á vefnum, netspjalli og viðkvæmum persónulegum myndum í umferð. Fjórar lögreglustöðvar eru á höfuðborgarsvæðinu og samfélagslöggur á þeim öllum. Þær fræða og mynda tengsl við íbúa og hafa gert allt frá árinu 2019.
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.
„Ég finn að Hafnfirðingar eru stoltir af Jólabænum og Jólaþorpinu á Thorsplani,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins sem orðið er…