Flottir unglingar
Niðurstöður könnunar Rannsóknar og greininga sem lögð var fram í febrúar fyrir alla nemendur í 8., 9. og 10. bekk í Hafnarfirði sýna jákvæða þróun í vímuefnaneyslu unglinga.
Niðurstöður könnunar Rannsóknar og greininga sem lögð var fram í febrúar fyrir alla nemendur í 8., 9. og 10. bekk í Hafnarfirði sýna jákvæða þróun í vímuefnaneyslu unglinga.
Árlega taka unglingar á Íslandi þátt í þessari könnun og er unnið úr gildum svörum þeirra nemenda sem tóku þátt. Alls tóku 84% nemenda í unglingadeildum grunnskólanna í Hafnarfirði þátt en samkvæmt niðurstöðum úr könnuninni er vímuefnaneysla unglinga á talsverðu undanhaldi.
Það vekur athygli að engin vímuefnaneysla mælist meðal nemenda í 8.bekk, þ.e. engir nemendur hafa neytt áfengis, tóbaks eða annarra vímuefna samkvæmt niðurstöðum.