Foreldrasamstarf sem virkar

Fréttir

Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur látið gera myndband um foreldrasamstarf og gildi þess í grunnskólanum sem hefur þann góða og göfuga tilgang að vekja athygli á traustu samstarfi heimilis og skóla og mikilvægi þess fyrir velferð barnanna okkar. Það er dýrmætt að allir taki þátt og séu með. Foreldrasamstarf með barnið í forgrunni í traustu samstarfi við skólann og starfsfólk hans miðar að því að gera góðan skóla enn betri. Þar geta foreldrar lagt mikið að mörkum. Tökum virkan þátt og eflum gott starf.

Foreldraráð Hafnarfjarðar hefur látið gera myndband um
foreldrasamstarf og gildi þess í grunnskólanum sem hefur þann góða og göfuga
tilgang að vekja athygli á traustu samstarfi heimilis og skóla og mikilvægi
þess fyrir velferð barnanna okkar. Það er dýrmætt að allir taki þátt og séu
með. Foreldrasamstarf með barnið í forgrunni í traustu samstarfi við skólann og
starfsfólk hans miðar að því að gera góðan skóla enn betri. Þar geta foreldrar
lagt mikið að mörkum. Tökum virkan þátt og eflum gott starf.

Hægt er að sjá myndbandið  á Facebook síðu Foreldraráðs Hafnarfjarðar

Rannsóknir sýna, að ef foreldrar þekkja til skólastarfsins,
starfsfólks og annarra foreldra í skólanum, þá hefur það áhrif á árangur
barnsins í skólanum og hvernig því gengur félagslega. Foreldrar í bekkjum barna
sinna, sem mynda með sér tengsl og góða samvinnu, eru mun betur í stakk búinn
að leysa úr vandamálum og finna farsælar lausnir til að efla bekkjarandann. Góð
tengsl foreldra hafa einnig áhrif á líðan barna, eykur skilning og samheldni
þeirra meðal. Þessi samvinna er ekki aðeins byggð upp í gegnum samfélagsmiðla
eins og Facebook heldur einkum með þátttöku og virku samstarfi foreldra. Víða
er unnið gott starf meðal foreldra í bekkjum og vegum foreldrafélaga hér í
Hafnarfirði og þar starfa margir í sjálfboðnu starfi af áhuga og hugsjón að því
að byggja upp góð tengsl. Víða á félagslegt starf undir högg að sækja í
tímaleysi hversdagsins. Foreldrasamstarf er ekki eins og hvert annað
félagsstarf, heldur raunhæft tækifæri til að hlúa að börnunum, að þeim líði vel
og fái góða menntun. Þar skiptir samtakamáttur foreldra og skólans miklu máli.

Efni í þessari frétt byggir á aðsendri grein í Hafnfirðing eftir
Stefán Már Gunnlaugsson, formann Foreldraráðs Hafnarfjarðar.

Ábendingagátt