Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Formleg útskrift úr verkefninu Fjölþætt heilsuefling 65+ í Hafnarfirði – leið að farsælum efri árum á vegum Janusar heilsueflingar fór fram í Hafnarborg í vikunni. Geislandi hópur þátttakenda sem lokið hafa þessu tveggja ára verkefni mættu til útskriftar, tóku á móti útskriftarskírteini og samfögnuðu með hópnum sem æft hefur saman undir handleiðslu Janusar Guðlaugssonar og hans öfluga teymis.
Formleg útskrift úr verkefninu Fjölþætt heilsuefling 65+ í Hafnarfirði –leið að farsælum efri árum á vegum Janusar heilsueflingar fór fram í Hafnarborg í vikunni. Geislandi hópur þátttakenda sem lokið hafa þessu tveggja ára verkefni mættu til útskriftar, tóku á móti útskriftarskírteini og samfögnuðu með hópnum sem æft hefur saman undir handleiðslu Janusar Guðlaugssonar og hans öfluga teymis. Covid19 setti sitt strik á framkvæmd og fyrirkomulag en samstilltur hópurinn fann leiðir til heilsueflingar þrátt fyrir lokanir og takmarkanir á tímabilinu. Hluti hópsins ætlar að fá handleiðslu áfram meðan aðrir halda áfram sjálfir enda sjálfbærni í hreyfingu eftir útskrift eitt af yfirlýstum markmiðum verkefnisins.
Í upphafi þessa árs útskrifaðist fyrsti hópurinn úr verkefninu í Hafnarfirði og markaði sú útskrift tímamót hjá Janusi heilsueflingu og Hafnarfjarðarbæ. Markviss heilsuefling hafnfirskra eldri borgara heldur áfram og eftir útskrift vikunnar eru um 110 þátttakendur virkir í verkefninu sem rúmar í heild um 160 þátttakendur. Kynningarfundur fyrir nýjan hóp var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Yfir 60 manns mættu á fundinn og er nú þegar orðið fullt í hóp nýliða sem byrjar þjálfun í lok mánaðar. Verkefninu fylgir ekki bara hreyfing heldur einnig regluleg fræðsluerindi með áherslu á næringu og ýmsa heilsutengda þætti eins og núvitund, lyfjanotkun í tengslum við þjálfun og fræðslu um jafnvægi og æfingar fyrir jafnvægisþjálfun.
Janus heilsuefling hlaut styrk frá Tækniþróunarsjóði vegna þróunar á heilsuappi sem nú er tilbúið til notkunar fyrir alla þátttakendur í verkefninu. Með þessu nýja smáforriti geta þátttakendur fylgt eftir eigin þjálfun í gegnum æfingaáætlanir, fylgst með árangri sínum eftir mælingar og haldið utan um daglega hreyfingu. Smáforritið er hugsað sem eftirfylgni og áframhaldandi hvatning fyrir hópinn.
Heilsuefling eldri borgara er liður í heilsustefnu Hafnarfjarðarbæjar. Heilsustefnan nær til allra samfélagshópa, allra aldurshópa, allra skóla og stofnana og til sveitarfélagsins í heild. Fjölþætt heilsuefling 65+ á vegum Janusar heilsueflingar er einn angi af því mikilvæga verkefni að framfylgja heilsustefnunni. Heilsubærinn Hafnarfjörður hefur um árabil lagt áherslu á aukna virkni m.a. eldri borgara í Hafnarfirði með frístundastyrkjum, félagsstarfi og öðrum sértækum verkefnum s.s. hádegistónleikum í Hafnarborg og vikulegum heilsu- og menningargöngum yfir sumartímann svo fátt eitt sé nefnt. Í andlegri og líkamlegri hreyfingu býr mikilvæg forvörn sem hefur jákvæð áhrif á lífsgæði og á almenna þátttöku í lífi og starfi, á félagsleg tengsl og vináttu og ekki síst á búsetu til lengri tíma litið fyrir eldri aldurshópinn.
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…
Allt er að smella hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar sem úthlutar á morgun mat og gjöfum til um 300 hafnfirskra einstæðinga og…
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…