Forvarnardagurinn 2017

Fréttir

Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og fleiri aðilum en stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.

Forvarnardagur 2017 er í dag, miðvikudaginn 4. október. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.

Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og fleiri aðilum en stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.

Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna.

Í grunnskólum taka nemendur úr 9. bekk þátt í forvarnaverkefnavinnu í dag. Nemendum gefst tækifæri á að taka þátt í ratleik og fá kynningu á deginum og verkefninu í gegnum myndband.

Myndin er tekin í Öldutúnsskóla í morgun þar sem Valdimar Víðisson skólastjóri hitti nemendur skólans í tilefni erinda dagsins. 

 

Ábendingagátt