Forvarnir í formi jafningjafræðslu

Fréttir

Hafnarfjarðarbær tekur forvarnarhlutverk sitt alvarlega og hefur um nokkurt skeið farið þá leið að bjóða upp á jafningjafræðslu innan grunnskóla Hafnarfjarðar. Hefur þessi leið mælst vel fyrir hjá nemendum, foreldrum þeirra og starfsmönnum skólanna.

Hafnarfjarðarbær tekur
forvarnarhlutverk sitt alvarlega og hefur um nokkurt skeið farið þá leið að
bjóða upp á jafningjafræðslu innan grunnskóla Hafnarfjarðar. Hefur þessi leið
mælst vel fyrir hjá nemendum, foreldrum þeirra og starfsmönnum skólanna.
Umræðan verður oft á tíðum opnari og öðruvísi og þykir því góð viðbót við þá
fræðslu og hvatningu sem á sér stað með öðrum hætti.

Þessa dagana eru tvö forvarnarverkefni í gangi hjá
Hafnarfjarðarbæ. Annars vegar er það hafnfirski tónlistarmaðurinn og fyrrum
Íslandsmeistari í knattspyrnu, Jón Ragnar Jónsson sem heimsækir nemendur í 8
bekkjum allra grunnskólanna og spjallar við þá um heilbrigðan lífsstíl. Hins
vegar er um að ræða forvarnarverkefni sem nær til nemenda í 9. bekkjum grunnskóla
Hafnarfjarðar og snýr að geðfræðslu. Hugrún geðfræðslufélag hefur tekið að sér
þessi jafningjafræðslu en Heilsubærinn Hafnarfjörður gekk til samninga við
félagið á haustönn 2018.

Áhersla á umræðu um rafrettur
og skaðsemi þeirra

Í ár leggur Jón Ragnar Jónsson sérstaka áherslu á umræðu um
rafrettur og skaðsemi þeirra auk þess sem hann ræðir um tóbaksneyslu barna og
ungmenna heilt yfir. Hér er um að ræða samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar og
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins. „Jón
Ragnar hefur nú um nokkurra ára skeið tekið þetta verkefni að sér með
greinanlegum mælanlegum árangri enda um að ræða lífsglaða og flotta fyrirmynd
fyrir unga fólkið okkar sem er í grunninn venjulegur hafnfirskur ungur maður. Hann
spjallar við krakkana á jafningjagrundvelli, segir þeim frá sínu lífi, svarar
spurningum um fótbolta, veltir fyrir sér hvað sé spennandi við rafretturnar,
ræðir um heilbrigðan lífsstíl, talar gegn munntóbaksnotkun og segir frá tónlistarferlinum“
segir Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar. Samkvæmt
rannsóknum frá Rannsóknum og greiningu þá lifa unglingar í 8. bekk almennt mjög
heilbrigðu lífi og er talið að jákvæðar og uppbyggilegar forvarnir eins og
heimsókn Jóns styrki þá í því að velja áfram heilbrigðan lífstíl.

Fræðsla um
geðheilbrigði, geðsjúkdóma og úrræði sem standa til boða

Geðfræðslufélagið Hugrún var stofnað vorið 2016 af nemendum
í sálfræði, læknisfræði og hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og hefur félagið
m.a. það verðuga markmið að fræða ungt fólk um geðheilbrigði, geðsjúkdóma og
úrræði, sem og að auka samfélagslega vitund. Til þessa hefur áhersla félagsins
legið í fræðslu til framhaldsskólanema auk opinna fræðslukvölda og kynninga til
hvorutveggja almennings og foreldra. Í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ tekur
geðfræðslufélagið nú næsta skref og færir fræðslu sína til grunnskólanema. 

Hugrun

Fræðarar
á vegum félagsins heimsækja á vorönn 2019 alla nemendur í 9. bekkjum grunnskóla
Hafnarfjarðar og fræða þá um geðheilbrigði, -sjúkdóma og úrræði sem standa til
boða og í raun þá staðreynd að lífið er ekki bara stanslaus gleði heldur snýst
það líka um jafnvægi í svo mörgum þáttum. „Við
þurfum að huga betur að geðheilbrigði unga fólksins okkar og því völdum við að
fara af stað með jafningjafræðslu um þessi mál í samstarfi við Hugrúnu gagngert
til að styrkja ungmennin okkar, opna á umræðuna og stuðla að því að útrýma
fordómum“
segir Geir að lokum.  

Ábendingagátt