Fræ til frístundaheimilanna – heimaræktun virðist ganga vel
Nýlega var fræpökkum með blönduðum kryddjurtum dreift inn á öll heimili í Hafnarfirði. Um var að ræða sumargjöf frá heilsubænum Hafnarfirði sem á að ýta undir grósku, vöxt og vellíðan og kannski ekki síst sameiginlegan áhuga og ánægjulegar samverustundir fjölskyldunnar allrar. Í vikunni fengu öll frístundaheimilin í Hafnarfirði einnig fræpakka að gjöf með hvatningu um ræktun innan veggja heimilanna.
Nýlega var fræpökkum með blönduðum kryddjurtum dreift inn á öll heimili í Hafnarfirði. Um var að ræða sumargjöf frá heilsubænum Hafnarfirði sem á að ýta undir grósku, vöxt og vellíðan og kannski ekki síst sameiginlegan áhuga og ánægjulegar samverustundir fjölskyldunnar allrar. Í vikunni fengu öll frístundaheimilin í Hafnarfirði einnig fræpakka að gjöf með hvatningu um ræktun innan veggja heimilanna. Það var glaðbeittur hópur deildarstjóra á hverjum stað sem tók fagnandi á móti glaðningum í veðurblíðunni sem einkennt hefur lífið í Firðinum síðustu daga.
Fjölbreytt starf verður í gangi á vegum frístundaheimilanna sumarið 2021

Ræktun er gefandi verkefni fyrir alla – stóra sem smáa
Um er að ræða fræpakka með fimm fræjum að kryddjurtum til eigin ræktunar. Fræpakkar heilsubæjarins hafa nú verið sendir inn á öll heimili í Hafnarfirði sem heimila fjölpóst og afhentir starfsfólki og nemendum á öllum frístundaheimilum bæjarins. Til stendur að gefa fleiri hópum í Hafnarfirði fræpakka gagngert til að kveikja áhuga á eigin ræktun og þeirri andlegu og líkamlegu næringu sem fylgir slíkri ræktun.
Ræktun gengur m.a. vel á leikskólanum Smáralundi sem fékk heimsókn og hvatningu frá bæjarstjóra fyrir rétt um mánuði síðan. Hér má sjá mynd af ræktuninni þar og líklega kominn tími á umpottun.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar heimsótti elstu nemendur í heilsueflandi leikskólanum Smáralundi og færði þeim fræ til ræktunar.
Fékkstu ekki fræpakka heim til þín?
Eitthvað hefur borið á því að heimili í Hafnarfirði virðast ekki hafa fengið fræpakka að gjöf inn um lúguna. Hægt er að nálgast fræpakka í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar á opnunartíma þjónustuversins auk þess sem hægt er að senda beiðni um heimsendingu á pakka á netfangið: hafnarfjordur@hafnarfjordur.is
Viltu taka heimaræktunina skrefinu lengra?
Fjölskyldugarðar Hafnarfjarðar eru opnir öllum bæjarbúum og um að ræða frábært tækifæri fyrir fjölskyldur og einstaklinga í Hafnarfirði til að rækta sitt eigið grænmeti og hugsa um í sumar. Fjölskyldugarðarnir verða opnir á Víðistöðum og á Öldugötu. Kostnaður fyrir einn garð er kr. 1.541.- og fyrir tvo garða kr. 2.568.- Garðarnir afhendast plægðir og hefst úthlutun undir lok maí. Grænmeti eða annað efni til ræktunar er ekki innifalið í verði en aðgengi að vatni og minniháttar verkfærum til staðar. Skráning stendur yfir og fer fram hér – velja þarf sveitarfélag og staðsetningu á fjölskyldugarði sem óskað er eftir (fjölskyldugarður Öldutún/fjölskyldugarður Víðistaðir)
Ævintýrabærinn Hafnarfjörður
Eitt af meginmarkmiðum heilsubæjarins Hafnarfjarðar er að hvetja bæjarbúa til að hlúa vel að andlegri og líkamlegri vellíðan og heilsu. Þannig hefur heilsubærinn brugðið á það ráð að læða reglulega að íbúum heilsueflandi hugmyndum og upplýsingum um þá möguleika sem leynast í upplandi Hafnarfjarðar og í þeim útivistarperlum og -svæðum sem finna má víða um bæinn.
- Heilt stafróf af hugmyndum
- Litli Ratleikur Hafnarfjarðar
- Áhugaverðir staðir í Hafnarfirði
- Útivist og náttúra
- Sundlaugarnar okkar – frítt fyrir 17 ára og yngri
- Bókasafn Hafnarfjarðar
- Byggðasafn Hafnarfjarðar – frír aðgangur
- Hafnarborg – frír aðgangur
Metnaðarfull heilsustefna fyrir heilsubæinn Hafnarfjörð
Hafnarfjarðarbær gekk til samninga við Embætti landlæknis í mars 2015 um þátttöku í verkefninu Heilsueflandi samfélag og hefur sveitarfélagið í samstarfi við íbúa, starfsmenn og aðra hagsmunaaðila mótað heilsustefnu Hafnarfjarðarbæjar og lagt fram aðgerðaáætlun sem talar beint saman við stefnuna. Í heilsustefnu Hafnarfjarðar er eitt aðalmarkmiðið að hlúa að almennri vellíðan íbúa, andlegri og líkamlegri, á öllum aldri og styrkja og efla sjálfsmynd og góða líðan. Heilsustefnan styður við þá sýn Hafnarfjarðarbæjar til framtíðar að auka vellíðan íbúa bæjarins með fyrirbyggjandi aðgerðum.