Fræðslufundir fyrir foreldra um mikilvægi málþroska

Fréttir

Hafnarfjarðarbær stendur fyrir fræðslu fyrir foreldra ungra barna með það að markmiði að auka vitund foreldra um mikilvægi málþroskans. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að með örvun málþroska er hægt að styrkja undirstöðuþætti læsis og styðja við góðan námsárangur.

Hafnarfjarðarbær stendur fyrir fræðslu fyrir foreldra ungra barna með það að markmiði að auka vitund foreldra um mikilvægi málþroskans. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að með örvun málþroska er hægt að styrkja undirstöðuþætti læsis og styðja við góðan námsárangur.

Þetta verkefni er hluti af læsisstefnu Hafnarfjarðar og er unnið í nánu samstarfi við Bókasafn Hafnarfjarðar og heilsugæslustöðvarnar í Hafnarfirði. Bókasafn Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær hafa tekið höndum saman um að gefa öllum börnum á aldrinum 6 – 24 mánaða bókað gjöf sem afhent er á fræðslufundi í hverju hverfi fyrir sig. Öllum foreldrum barna á þessum aldri er boðið á fræðslufund í sínu hverfi. Ef tími fundar í hverfi hentar ekki er velkomið að sækja fund í öðru hverfi.

Dagskrá funda

  • Fræðsluerindi um málþroska og málörvun flutt af talmeinafræðingum sveitarfélagsins.
  • Stutt kynning á Bókasafni Hafnarfjarðar og þjónustu þess við börn og foreldra
  • Afhending bókatösku, bókagjafar og bókasafnsskírteinis fyrir barnið

Staðsetning funda og fundartími

Dagsetn. kl. Skóli ATH
25.sep 20:00 Setbergsskóli
26.sept. 17:00 Öldutúnsskóli
2.okt 17:00 Hraunvallaskóli Túlkað á ensku
2.okt 20:00 Lækjarskóli
3.okt 17:00 Hvaleyrarskóli Barnagæsla

Fundur sem haldinn verður í Hraunvallaskóla 2. október kl. 17:00 verður túlkaður á ensku. Fundur sem haldinn verður í Hvaleyrarskóla 3. október kl. 17 verður með barnagæslu.

Hvetjum alla foreldra til að mæta!

Ábendingagátt