Fræðslufundir um málþroska vekja ánægju og athygli

Fréttir

Á haustdögum voru haldnir fræðslufundir fyrir foreldra barna á aldrinum 6-24 mánaða í Hafnarfirði sem höfðu þann mikilvæga tilgang að fræða foreldra ungra barna um málþroska og málörvun og tengsl málþroska og læsis. Margir tjáðu ánægju sína með framtakið, töldu fundina fræðandi og upplýsandi og hvöttu aðstandendur til að halda slíka fundi reglulega. 

Á haustdögum
voru haldnir fræðslufundir fyrir foreldra barna á aldrinum 6-24 mánaða í
Hafnarfirði sem höfðu þann mikilvæga tilgang að fræða foreldra ungra barna um
málþroska og málörvun og tengsl málþroska og læsis. Verkefnið er hluti af
læsisstefnu Hafnarfjarðar; Lestur er lífsins leikur og um að ræða
samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar, Bókasafns Hafnarfjarðar og
Heilsugæslunnar í Hafnarfirði. Alls voru haldnir 10 fræðslufundir, einn í
hverju skólahverfi og tveir fundir sem voru túlkaðir, annar á ensku og hinn á
pólsku.

Fræðandi og upplýsandi fundir fyrir alla
hlutaðeigandi

Foreldrar og
forráðamenn 457 barna fengu boð um að mæta á fræðslufund í sínu hverfi, en alls
mættu 116 einstaklingar og var talsvert um áhugasöm foreldrapör. Í lok hvers
fundar svöruðu þátttakendur stuttri könnun um fræðsluna. 77% svarenda töldu fræðsluna
mjög gagnlega og 21% nokkuð gagnlega. Margir tjáðu ánægju sína með framtakið,
töldu fundina fræðandi og upplýsandi og hvöttu aðstandendur til þess að hafa
slíka fræðslufundi reglulega. „Við stefnum að áframhaldandi samstarfi um
eflingu málþroska barna og vonir standa til þess að hægt verði að bjóða upp á
svona fræðslufundi fyrir foreldra yngstu barnanna árlega. Foreldrar nefndu það
sérstaklega sjálfir að það sé alls ekki sjálfgefið að foreldrar hafi þekkinguna
og að mikilvægt sé að hjálpa t.a.m. nýbökuðum foreldrum á þennan sérhæfða máta við
uppeldið þannig að börnin séu efld í málþroska frá unga aldri og gripið fyrr
inn í ef þörf er á“ segir Bjartey Sigurðardóttir, talmeinafræðingur og
verkefnastjóri Lestur er lífsins leikur. 75,3% þátttakenda á námskeiði segjast
munu lesa oftar fyrir barnið sitt eftir námskeiðið, 77,6% huga betur samtali og
samskiptum við sitt barn, 69,4% munu gæta betur að þeim tíma sem fer í
snjalltækjanotkun og 68,2% þátttakenda segist ætla að fylgjast betur með
málþroska sinna barna.  

Glærukynningu frá fræðslufundum er að finna HÉR

Niðurstöður úr könnun meðal foreldra er að finna HÉR  

Bæklingar um mikilvægi lesturs

Bæklingar um mikilvægi þess að lesa fyrir börn hafa nú litið dagsins ljós. Bæklingarnir, sem tengjast læsisstefnu Hafnarfjarðar, verða aðgengilegir víða t.d. í leikskólunum, heilsugæslustöðvunum, hjá dagforeldrum, á frístundaheimilunum og á Bókasafni Hafnarfjarðar. Bæklingurinn er til á íslensku, ensku og pólsku. 

Ábendingagátt