Fræðslusjóður í Flensborg – opið fyrir umsóknir

Fréttir

Opið er fyrir umsóknir um styrk úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Allir þeir sem lokið hafa fullnaðarprófi frá Flensborgarskólanum og eru í framhaldsnámi geta sótt um styrk. Umsóknir verða að berast rafrænt eigi síðar en á miðnætti föstudaginn 3. desember 2021. Umsóknin skal merkt Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar. Umsókn þarf að fylgja staðfest gögn um námsferil eftir að námi í Flensborgarskólanum lauk auk annarra upplýsinga sem umsækjendur telja að styðji þeirra umsókn.

Opið er fyrir umsóknir um styrk úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Allir þeir sem lokið hafa fullnaðarprófi frá Flensborgarskólanum og eru í framhaldsnámi geta sótt um styrk. Umsóknir verða að berast rafrænt á netfangið erla@flensborg.is, eigi síðar en á miðnætti föstudaginn 3. desember 2021. Umsóknin skal merkt Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar. Umsókn þarf að fylgja staðfest gögn um námsferil eftir að námi í Flensborgarskólanum lauk auk annarra upplýsinga sem umsækjendur telja að styðji þeirra umsókn.

Nánari upplýsingar gefur Erla skólameistari í síma 565-0400

Um Fræðslusjóð Jón Þórarinssonar í Flensborgarskóla  

Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar hefur það hlutverk að styrkja til framhaldsnáms nemendur sem hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Fræðslusjóðurinn var stofnaður með erfðaskrá Önnu Jónsdóttur ljósmyndara í Hafnarfirði, sem lést 4. júlí 1987. Anna var dóttir Jóns Þórarinssonar skólastjóra og fyrri konu hans Lauru Pétursdóttur Hafstein. Jón var skólastjóri Flensborgarskólans frá upphafi hans sem gagnfræðaskóla 1882 til 1908, en tók þá við nýstofnuðu embætti fræðslumálastjóra sem hann gegndi til dauðadags 12. júní 1926. Anna Jónsdóttir fæddist 16. desember 1892. Hún lærði ljósmyndaiðn og starfaði lengi við iðngrein sína í Hafnarfirði. Hún sýndi Flensborgarskólanum alla tíð mikla ræktarsemi og fylgdist af áhuga með starfsemi hans. Hún var ógift og barnlaus og ákvað löngu fyrir andlát sitt að láta skólann og nemendur hans njóta góðs af því sem hún kynni að láta eftir sig. Í erfðaskrá hennar var ákvæði um að eigur hennar skyldu mynda sjóð er bæri nafn Jóns Þórarinssonar og væri varið “til að styrkja til framhaldsnáms efnilegt námsfólk sem lokið hefur fullnaðarprófi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði”.

Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram á hundraðasta fæðingardegi Önnu, 16. desember 1992, en síðan hefur úthlutunin farið fram við brautskráningu fyrir jól. Skólanefnd Flensborgarskólans er jafnframt stjórn Fræðslusjóðsins. Umsóknir verða teknar fyrir og afgreiddar á fundi stjórnarinnar í byrjun desember. Sjóðsstjórnin getur skipt styrknum ef svo ber undir.

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á vef Flensborgarskóla 

Ábendingagátt