Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar, Vegagerðarinnar og verktaka að baki byggingar á nýjum mislægum gatnamótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar hittust í dag til að taka formlega fyrstu skóflustunguna að framkvæmdunum. Framkvæmdir hefjast strax enda á verkið að vinnast á skömmum tíma og vera lokið 1. nóvember.
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar, Vegagerðarinnar og verktaka að baki byggingar á nýjum mislægum gatnamótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar hittust í dag til að taka formlega fyrstu skóflustunguna að framkvæmdunum. Framkvæmdir hefjast strax enda á verkið að vinnast á skömmum tíma og vera lokið 1. nóvember næstkomandi.
Í vikunni skrifuðu fulltrúar Loftorku, Suðurverks og Vegagerðarinnar undir verksamning um gerð mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og veitufyrirtækja. Verktakar hafa þegar komið upp vinnubúðum á svæðinu og eru þessa dagana að undirbúa framkvæmdina. Byrjað verður á því að færa lagnir af ýmsu tagi og leggja framhjáhlaup áður en hafist verður handa við byggingu brúarinnar sjálfrar.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá framkvæmdir fara af stað og mikið gleðiefni hversu hratt framkvæmdin á að vinnast“ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar. „Við bindum miklar vonir við það að verkið standist tímamörk og að í upphafi nóvember þá verði gatnamótin komin í fulla virkni. Þessi framkvæmd hefur mikil og jákvæð áhrif fyrir mannlífið og atvinnulífið á þessu svæði og er framkvæmdin og verkhraðinn vonandi fyrirmynd fyrir það sem koma skal í vegaframkvæmdum í Hafnarfirði. Umferð um svæðið hefur margfaldast og mikil þörf á frekari framkvæmdum við a.m.k. tvenn hringtorg, tvöföldun og fleiri tengingar í Hafnarfirði“ segir Haraldur.
VSÓ ráðgjöf ehf. sinnir eftirliti en þeir áttu lægst boð í það verk upp á 19,4 milljónir króna. Áætlaður verktakakostnaður var 21 milljón króna. Sjálft verkið kostar mun meira, en Loftorka ehf. og Suðurverk ehf. áttu saman lægst boð upp á 918 milljónir króna en áætlaður verktakakostnaður var um 817 milljónir króna. Við bætist síðan ýmis kostnaður við undirbúning og hönnun verksins. Í verkinu felst gerð mislægra vegamóta á mótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar auk allra vega og stígagerðar sem nauðsynleg er til að ljúka gerð vegaframkvæmdanna endanlega. Til framkvæmdanna telst einnig breytingar á Krýsuvíkurvegi, gerð tengivegar að Suðurbraut og tengivegar að Selhellu. Einnig er innifalin gerð göngu- og hjólastígs meðfram Suðurbrautartengingu og hraðatakmarkandi aðgerðir á Suðurbraut. Þá er gerð hljóðmana við Reykjanesbraut og í Hellnahverfi í Hafnarfirði hluti verksins. Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.
Sóli Hólm hefur aldrei sýnt oftar í Bæjarbíói en fyrir þessi jól. Alls 41 sýning og sú síðasta á Þorláksmessu.…
„Hafnarfjarðarkortið er lykillinn að Hafnarfirði,“ segir Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar um þetta glænýja hafnfirska gjafa- og inneignarkort „Þetta…
Fjórða helgin okkar í Jólaþorpinu verður yndisleg. Veðrið mun leika við gesti en fyrst og fremst munu allar þær gersemar…
Börn fá frístundastyrk frá þriggja ára aldri. 10,6 milljarðar verða settir í fjárfestingar. Einnig verður sett fjármagn í uppbyggingu nýs…
Hjörtu okkar Hafnarfjarðar skarta fjólubláum lit í dag á alþjóðadegi fatlaðs fólks. Dagurinn er 3. desember ár hvert til að…
Menntastefna Hafnarfjarðarbæjar var kynnt á starfsdegi astarfsfólks frístundar-, grunnskóla- og leikskóla Hafnarfjarðarbæjar þann 14. nóvember. Þátttakendur gátu valið um ólíka…
Ný stefna um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði hefur verið samþykkt af bæjarráði. Stefnan gildir til 2035.
Um 30 útskrifuðust úr Leiðtogaskóla Hafnarfjarðarbæjar á dögunum. Nú hafa 90 stjórnendur bæjarins útskrifast. Kennslan eflir bæjarbraginn.
Mæðgurnar Lára Alda Alexandersdóttir og Silja Þórðardóttir lærðu saman að verða gusumeistarar. Þær nota kraftana í Herjólfsgufunni við Langeyrarmalir.
„Ég finn að Hafnfirðingar eru stoltir af Jólabænum og Jólaþorpinu á Thorsplani,“ segir Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri Jólaþorpsins sem orðið er…