Framkvæmdir við Lækjargötu 2 – þökkum sýndan skilning

Fréttir

Síðustu daga og vikur hefur mikill undirbúningur átt sér stað innanhúss í Lækjargötu 2 sem miðað hefur að því að búa húsið undir niðurrif. Nú er kominn tími á framkvæmdir utanhúss og er gert ráð fyrir að niðurrif á húsi eigi sér stað dagana 27.júlí – 4.ágúst með tilheyrandi röskun fyrir gangandi og akandi vegfarendur. 

Síðustu daga og vikur hefur mikill undirbúningur átt sér stað innanhúss í Lækjargötu 2 (Dvergshúsið) sem miðað hefur að því að búa húsið undir niðurrif. Nú er kominn tími á framkvæmdir utanhúss og er gert ráð fyrir að niðurrif á húsi eigi sér stað dagana 27.júlí – 4.ágúst með tilheyrandi röskun fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Við þökkum fyrirfram fyrir sýndan skilning.

Dagana 27. júlí – 4.ágúst verður Dverghúsið rifið

Dagana 27.júlí – 4.ágúst verður hornhúsið að Lækjargötu 2 (Dvergshúsið) rifið. Lækjargata verður alveg lokuð dagana til og með sunnudegi 30. júlí en bæði Brekkugata og Suðurgata verða lokaðar allan sólarhringinn allan verktímann. Mælst er til þess að íbúar við þessar götur leggi bílum sínum við Fjörðinn, Íþróttahús við Strandgötu eða Tónlistarskólann á meðan á lokun stendur. Nauðsynleg umferð verður leyfð um göturnar en allri umferð þarf að halda í lágmarki öryggisins vegna. Gönguljós yfir Lækjargötu verða óvirk út verktímann auk þess sem umferðarhraði fer niður í 30KmH. Í ljósi þessa biðjum við bæði akandi og gangandi vegfarendur um að fara sérstaklega varlega þessa daga. 

Við þökkum sýndan skilning á meðan á þessum framkvæmdum stendur. 

Ábendingagátt