Breyting á deiliskipulagi Vesturbæjar í Hafnarfirði Krosseyrarvegur 3

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 03.10. 2022 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Krosseyrarvegi 3 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjar.

Tillagan gerir ráð fyrir stækkun á byggingarreit um 32m², fjölgun bílastæða innan lóðar um 1 og auknu byggingarmagni um 67,4m². Nýtingarhlutfall verði 0,70.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 21.10. til 02.12.2022. Einnig er hægt að kynna sér deiliskipulagstillöguna hér á vefnum.

Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagssviði.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skal þeim skilað á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eigi síðar en 02.12.2022 eða skriflega í þjónustuver:

Hafnarfjarðarkaupstaður
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgata 6
220 Hafnarfjörður

Ábendingagátt