Frístundaakstur

Fréttir

Á þessu skólaári verður öllum nemendum 1. – 4. bekkjar boðið upp á akstur á æfingar sem hefjast klukkan 15:00 og 16:00. Aksturinn hefst 3. september og eru upphafsstaðir akstursins hver grunnskóli í Hafnarfirði. Ekið verður á fjölmarga staði eins og til Listdansskólans, tónlistarskólans, Bjarkanna, FH, Hauka og SH.

Á síðasta skólaári hófst frístundaakstur aftur í Hafnarfirði og ekið var með 6 og 7 ára nemendur á æfingar hjá þremur íþróttafélögum. Tilraunin tókst afar vel og nýttu um 300 nemendur sér aksturinn í hverri viku.

Á þessu skólaári verður öllum nemendum 1. – 4. bekkjar boðið upp á akstur á æfingar sem hefjast klukkan 15:00 og 16:00. Aksturinn hefst 3. september og eru upphafsstaðir akstursins hver grunnskóli í Hafnarfirði. Ekið verður á fjölmarga staði eins og til Listdansskólans, tónlistarskólans, Bjarkanna, FH, Hauka og SH.

Æfingatöflur liggja nú fyrir hjá flestum íþróttafélögum og eru fjölmargir foreldrar byrjaðir að skrá börnin sín þar. Verkefnið er unnið í samvinnu Hafnarfjarðarbæjar við íþróttafélögin og Hópbíla. Skráning í aksturinn fer fram í gegnum frístundaheimilin og verður aksturinn foreldrum að kostnaðarlausu. Starfsmaður frá hverju frístundaheimili verður með í hverri ferð og tryggir öryggi krakkanna í rútunni.

Þessu metnaðarfulla verkefni er ætlað að stytta vinnudag barnanna, auka þjónustu við foreldra, nýta íþróttamannvirkin enn betur, styðja við starf íþrótta- og tómstundafélaga, auka aðgengi allra barna að heilbrigðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og gera starf frístundaheimilanna enn skemmtilegra.

Ábendingagátt