Frístundaakstur hefst í haust

Fréttir

Fræðsluráð samþykkti á fundi sínum í dag að hefja gjaldfrjálsan frístundaakstur fyrir sex og sjö ára börn í Hafnarfirði í haust. Til að byrja með verður ekið með börnin á æfingar hjá Fimleikafélaginu Björk, FH og Haukum.  

Fræðsluráð samþykkti á fundi sínum í dag að hefja
gjaldfrjálsan frístundaakstur fyrir sex og sjö ára börn í Hafnarfirði í haust. Til að byrja með verður ekið með börnin á æfingar hjá
Fimleikafélaginu Björk, FH og Haukum. 
 

Undirbúningur hefur verið
unninn með fulltrúum frá þessum félögum út frá hugmyndum starfshóps um
frístundaakstur sem skilaði af sér tillögum í vor. Stoppistöð verður sett upp við hvern grunnskóla í
Hafnarfirði og þar verða börnin sótt og flutt á æfingar hjá þessum félögum sem
hefjast um kl. 15. Starfsmenn frá frístundaheimilum munu fylgja börnum í
bílinn og að æfingarsvæði. Forráðamenn munu svo sækja börn sín á svæði íþróttafélaga milli kl. 16-17. Þessi þjónusta mun kosta Hafnarfjarðarbæ milli þrjár til
fjórar milljónir.   

Hér er fyrsta skrefið stigið í að stytta skóladag yngstu
barnanna og gera vinnudag þeirra meira spennandi, koma enn betur til móts við óskir foreldra, auka samveru foreldra og
barna, og nýta íþróttamannvirki enn
betur.

Sjá fundargerð fræðsluráðs HÉR

Ábendingagátt