Frístundahúsalóð í Sléttuhlíð
Laus er til úthlutunar frístundahúsalóð (merkt B7) í Sléttuhlíð sem er frístundabyggð í landi Hafnarfjarðar. Lóðarverð er 6.497.500.- miðað við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2021. Lóðarverð miðar við 100 fermetra sem er hámark leyfilegra byggða fermetra miðað við gildandi deiliskipulag í Sléttuhlíð.

Helstu upplýsingar um lóð
- Stærð lóðar er 3815m2
- Hámarksbyggingarmagn á lóð er 100m2
- Lóðarverð er 6.497.500.- (64.975.- per fermetri) m/v september 2021. Endanlegt lóðarverð tekur mið að byggingarvísitölu og vísitöluhúsi Hagstofunnar sem gildir á úthlutunardegi.
- Við samþykkt á byggingaráformum eru lögð á ýmis þjónustugjöld byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa auk heimgjalda og skipulagsgjalds. Þá er einnig greitt fyrir þinglýsingarkostnað vegna lóðarleigusamnings
- Eindagi lóðarverðs er sex vikum frá úthlutunardegi
- Lóðin er afhent í því ástandi sem hún er í við afhendingu
- Lóðin er til úthlutunar til einstaklinga ekki lögaðila
Nánari skilmálar og upplýsingar vegna lóðar
- Hæðarblað
- Mæliblað
- Deiliskipulag frístundabyggð – skýringauppdráttur
- Deiliskipulagsuppdráttur – frístundabyggð
Fylgiskjöl með umsókn um frístundahúsalóð
- Yfirlýsing frá viðskiptabanka eða fjármálastofnun um fjárhagslega getu – fjárhagslegar kvaðir eru 20 m.kr.
- Greinargerð um fyrirætlanir og hugmyndir á frístundalóðinni og teikningar af sumarhúsi og lóð ef þær liggja fyrir, ásamt byggingaráætlun
Umsókn
Sótt er um lóð á MÍNAR SÍÐUR. Umsóknareyðublað er að finna undir: Umsóknir – Framkvæmd og skipulag – lóðarumsókn fyrir frístundahús. Hjón og fólk í skráðri sambúð telst einn umsækjandi þegar sótt er um
lóðina.