Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

19. desember 2012 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 440

Mætt til fundar

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri
  • Málfríður Kristjánsdóttir starfsmaður
  • Sigurður Steinar Jónsson starfsmaður

Ritari

  • Bjarki Jóhannesson sviðsstjóri/skipulags- og byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • SB050517 – Fjóluvellir 11

      Verið er að uppfæra teikningar frá árinu 2005. Guðvarður Hauksson eigandi, óskar eftir að fylgja eldri byggingarreglugerð.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samkykkir að fylgt verði eldri byggingarreglugerð samkvæmt þeim tímafresti sem tilgreindur er í byggingareglugerð nr. 112/2012 m.s.br.

    • 1211201 – Þrastarás 36,uppfærðar aðalteikningar vegna lokaúttektar

      Andri Ægisson leggur 16.11.12 inn uppfærðar aðalteikningar vegna lokaúttektar, samkvæmt teikningum Gísla G.Gunnarssonar dag.12.11.12 Leiðréttar teikningar bárust 30.11.2012 Nýjar teikningar bárust 13.12.12.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samkykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1210351 – Hvaleyrarbraut 27, breyting

      Arion banki hf sækir 16.10.12 um að sameina eignahluta á 2.hæð.samkvæmt teikningum Jónasar Þórðarsonar dags. 28.02.12 Nýjar teikningar bárust 11.12.2012.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samkykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1212165 – Bæjarhraun 16, breyting á byggingarleyfi

      Foodco hf sækir 17.12.12 um að breyta innraskipulagi og einnig utanhúss. Sjá teikningar og fylgiskjöl.Nýjar teikningar bárust með stimpli SHS dags 17.12.2012.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samkykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1210088 – Kríuás 1, færanlegar kennslustofur byggingarleyfi

      Sótt er 04.10.12 um að byggja færanlegar kennslustofur á Norðurhellu 2 til flutnings á Kríuás 1.Teiknað af Borghildi Sölvey Sturludóttir dags.24.10.12. Nýjar teikningar bárust 25.10.12.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt og byggingarleyfi gefið út.

    • 1206372 – Hamarsbraut 17 bílastæði

      Eigandi sækir um breytingu á bílastæðum þannig að þau tengist bílskúr. Borist hefur uppdráttur með fyrirhugaðri staðsetningu bílastæðanna.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi samkykkir erindið og mun breyta lóðarblaði í samræmi við það. Jafnframt fellur réttur til bílskýlis í tengslum við fyrri staðsetningu niður.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1209164 – Athafnasvæði hestamannafélags Sörla, breyting á DSK

      Deiliskipulag athafnasvæðisins var auglýst 31.10.12 skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs 16.10.12. Athugasemdatíma er lokið, athugasemdir bárust.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.

    • 0806122 – Selvogsgata 3, steyptur veggur við stíg

      Tekið til umræðu erindi Guðbjargar Bjargar Baldvinsdóttur lögfræðings Landslögum f.h. eigenda hússins, þar sem gerð er krafa um að lóðamrök hússins fylgi steyptum vegg.

      Hafnarfjörður hafnar kröfu eigenda Selvogsgötu 3 um að viðurkenna umræddan vegg sem lóðamörk. Samkvæmt lóðarleigusamningi frá 1923 sem enn er í gildi (fylgiskjal) og ekki hefur verið breytt er veggurinn á bæjarlandi. Gildir þá einu hvort eigandi hafi nýtt sér lóðina upp að veggnum, enda hefur hann aldrei fengið samþykki bæjarins til þess og eigandi Selvogsgötu 3 ekki greitt leigu fyrir afnot af henni. Ekki liggur fyrir að umræddur veggur hafi afmarkað lóðina eða að hann hafi verið reistur skömmu eftir gerð lóðarleigusamningsins, og liggur a.m.k. ekki samþykki bæjarins fyrir því. Lóðarhafar geta hins vegar sótt um stækkun lóðarinnar til bæjarráðs.

    • 1203374 – Skipalón 21, lokaúttekt

      Lokaúttekt var framkvæmd 03.04.12 en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að sækja um endurtekna lokaúttekt fyrir 01.02.13.

    • 1212212 – Skipalón 27-lokaúttekt

      Lokaúttekt fór fram 26.11.07, en hefur ekki verið skráð.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi skráir erindið og sendir til Þjóðskrár.

    C-hluti erindi endursend

    • 1212117 – Bjarkavellir 1d.9 íbúða fjölbýlishús

      Valhús ehf sækir þann 13.12.2012 um leyfi til að byggja 9 íbúða fjölbýlishús samkvæmt teikningum frá Sigurði Þorvarðarsyni dagst.01.12.2012.

      Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

Ábendingagátt