Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

31. ágúst 2016 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 628

Mætt til fundar

  • Sigurður Steinar Jónsson starfsmaður
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
  • Berglind Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður

Ritari

  • Sigurður Steinar Jónsson byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1608164 – Kvistavellir 47, breyting

      Pétur Hörður Pétursson kt.140464-4149 sækir þann 10.08.2016 um leyfi fyrir breytingum innan- og utanhúss einbýlishúss við Kvistavelli 47 samkvæmt teikningum frá Þorgeiri Þorgeirssyni byggingatæknifræðing kt.260260-7749. Nýjar teikningar bárust 22.08.2016.Tekið fyrir að nýju.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010.

    • 1608274 – Víðistaðatún, grillhús

      Umhverfis- og skipulagsþjónusta óskar eftir að reisa grillhús skv. meðfylgjandi teikningum dags. ágúst 2016. Lóðarblað dags. 30. ágúst liggur fyrir.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010.

    • 1607462 – Brekkutröð 3, umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

      Epoxy flex gólflagnir ehf sækir um stöðuleyfi fyrir gám 40″ eða minni, á lóðinni Brekkutröð 3.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010.

    • 1608544 – Einivellir 3, byggingarleyfi

      Dverghamrar ehf sækir 23.08.2016 um að byggja fjölbýlishús samkvæmt teikningum Jóns Guðmundssonar dgs. 19.08.2016. Stimpill slökkviliðs er á teikningum.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010

    • 1608129 – Einivellir 1, byggingarleyfi

      Dverghamrar ehf. sækja 09.08.16 um að byggja fjölbýlishús samkvæmt teikningum Jóns Guðmundssonar 19.07.16. Stimpill slökkviliðs er á teikningum. Nýjar teikningar bárust 23.08.2016.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1607482 – Austurgata 3, sólskáli

      Áslaug Hlíf Servo Jensdóttir sækir 27.07.2016 um leyfi fyrir byggingu sólskála samkvæmt teikningum Sigurðar Hafsteinssonar dags. 26.07.2016.Tekið fyrir að nýju.

      Byggingarfulltrúi vísar málinu til Skipulags og byggingarráðs.

    • 1608825 – Burknavellir 10-16 breyting á efni þaks.

      Eigendur Burknavella 10-16 leggja fram fyrirspurn um breytingu á þakefni við Burknavelli 10 – 16.

      Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið.Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1608754 – Hreinsun á opnu svæði við Öldugötu,

      Efst við Öldugötu er opið svæði þar sem hefur safnast hafa fyrir lausamunir og bílar.

      Byggingarfulltrúi beinir þeim tilmælum til lóðarhafa að fjarlægja lausamuni, bíla og rusl innann 4 vikna frá dagsetningu þessa fundar. Að öðrum kosti má búast við að gripið verðir til ráðstafana í samræmi við 56. gr laga um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1608751 – Rauðhella 4, dagsektir Hólshús veggur

      Hólshús ehf, hefur reist vegg eða skýli á lóðinni sem er ósamþykkt.Ekki hefur verið brugðist við tilmælum um úrbætur.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eigenda 0103 að Rauðhellu 4, þar sem reistur hefur verið veggur/skýli við húsið, sem ekki hefur verið sótt um leyfi fyrir, í samræmi við 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 frá og með 7 sept. 2016.

    • 1608752 – Rauðhella 8, dagsektir vegna lausamuna og vegna byggingarstigs á húsinu

      Húsið er skráð fokhelt og hefur verið tekið í notkun fyrir mörgum árum síðan, einnig er mikið af lausamunum, t.d. númerslausum bílum sem er ekki heimilt að hafa samkvæmt teikningu. Ekki hefur verið brugðist við tilmælum um úrbætur.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir á eigendur að Rauðhellu 8, og byggingarstjóra Hans Ragnar Þorsteinsson, þar sem húsið er enn skráð fokhelt og endurtekin lokaúttekt átti að fara fram 2013, og einnig vegna lausamuna á lóð, í samræmi við 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 frá og með 7 sept. 2016.

    • 1608720 – Selhella 6,Fyrirspurn til skipulags- og byggingafulltrúa

      Hákon Örn Ómarsson leggur 24.08.2016 inn fyrirspurn um hvort heimilað verði að setja upp bílskúra/ hobbýrými/ geymslur framanlega á Völlunum.

      Byggingarfulltrúi tekur neikvætt í erindið.

    • 1608152 – Stapahraun 7, dagsektir

      Stapahraun 7, dagsektir teknar fyrir að nýju.

      Með vísan í bókun afgreiðslufundar skipulags-og byggingarfulltrúa dags. 20.02.2015, þar sem fram kemur að upphafleg teikning samþykkt 05.08.84 er í gildi, því er málið fellt niður.

    • 1608421 – Melabraut 20, fyrirspurn

      Eðvarð Björgvinsson kt.161251-2599 leggur þann 19.08.2016 inn fyrirspurn um að stækka atvinnuhúsnæði við Melabraut 20.

      Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið ef nýtingarhlutfall er innan marka og byggt verði innan byggingarreits.Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    C-hluti erindi endursend

    • 1608160 – Rauðhella 10, breyting

      Boggi ehf sækir 10.08.16 um að skipta eignahluta í tvo eignahluta samkvæmt teikningum Einars V. Tryggvassonar dags.18.06.16.

      Byggingarfulltrúi frestar málinu.Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1608747 – Breiðhella 22, byggingarleyfi

      DS Lausnir ehf. leggur inn 26.08.16 umsokn um byggingarleyfi. Sótt er um nýbyggingu, stálgrindarhús klætt með samlokueiningum samkvæmt teikingum frá Kristinn Már Þorsteinssonar dagsettar 10.08.16

      Byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

    • 1608241 – Hvaleyrarbraut 12 byggingarleyfi

      Sýningarljós sækir 15.08.16 um leyfi til að byggja iðnaðar-þjónustu og lagerhúsnæði samk,m.f.teikningum Gísla G. Gunnarsonar. dags. 15.08.16.Nýjar teikningar bárust 24.08.2016.

      Byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir

    • 1608047 – Hvaleyrarbraut 22, sameining eignarhluta 0110 og 0119.

      Leigufélag Kópavogs kt.490316-1670 sækir þann 05.08.2016 um leyfi fyrir sameiningu eignarhluta 0110 og 0119 undir eignarhluta 0110 samkvæmt teikningum Kristjáns Bjarnasonar byggingarfræðings kt.120369-5479.
      Nýjar teikningar bárust 22.08.2016. Teikninar stimplaðar frá slökkvilið höfuborgarsvæðsins bárust 22.08.2016.

      Byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.

Ábendingagátt