Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

13. desember 2017 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 687

Mætt til fundar

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi
  • Guðrún Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður

Ritari

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1712135 – Áramótabrenna 2018 við Ásvelli

      Knattspyrnufélagið Haukar sækir með bréfi dags. 11. desember 2017 um leyfi til að halda áramótabrennu við Ásvelli.

      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir umbeðið leyfi með fyrirvara um samþykki Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

    • 1712016 – Hádegisskarð 29, byggingarleyfi

      Tekið fyrir að nýju erindi Böðvars Inga Guðbjartssonar og Línu Guðnadóttur dags. 01.12.2017 um byggingarleyfi á Hádegisskarð 29 samkvæmt teikningum Guðmunds Gunnlaugssonar dags 28.11.2017. Nýjar teikningar bárust 11.12.2017

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010, stærð húss er 233.2m2 og 787.0m3

    • 1712075 – Selhella 4, eigin úttektir

      Lúther Ólason byggingarstjóri óskar 06.12.2017 eftir eigin úttektum á Selhellu 4.

      Byggingarfulltrúi samþykkir að byggingarstjóri fái að gera sínar eigin úttektir í samræmi við lög um mannvirki nr.160/2010, steyptar plötur eru undanskildar og sér byggingarfulltrúi um þær úttektir

    • 1712065 – Breiðvangur 9-13, klæðning

      Húsfélagið Breiðvangur 9-13 sækir þann 06.12.2017 um leyfi til að bæta klæðningu á 2 hliðar hússins samkvæmt teikningum Reynis Kristjánssonar dag. 04.12.2017.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 1712123 – Hnoðravellir 4, breyting inni

      Snorri Hreiðarsson sækir þann 11.12.2017 um breytingu á innra skipulagi samkvæmt teikningum Kára Eiríkssonar dags. 06.12.2017.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    • 1711373 – Helluhraun 16-18, breyting á mhl.0201

      Eik fasteignafélag hf.sækir 23.11.2017 ym breytingu á rými 0201, samkvæmt teikningum Freys Frostasonar dagsettar 22.11.2017
      Einning stimpill frá SHS og brunahönnun.
      Stimpill frá Heilbrigðiseftirliti barst 13.12.2017

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki 160/2010

    C-hluti erindi endursend

    • 1712090 – Einhella 9, byggingarleyfi

      Borgarafl ehf. sækir þann 07.12.2017 um leyfi til að byggja nýtt atvinnuhúsnæði samkvæmt teikningum Valgeirs Bergs Steindórssonar dags. í des. 2017.

      Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.

    • 1705243 – Álhella 3, reyndarteikningar

      Geymslusvæðið ehf. leggja 16.5.2017 inn reyndarteikningar af húsinu, breytingar eru á 3 ökuhurðum og 3 gönguhurðum á suðurhlið. Samkvæmt teikningum Kjartans Rafnssonar dags. 05.11.2017

      Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.

    • 1712063 – Skútahraun 2, byggingarleyfi, breyting

      Smárakirkja sækir 06.12.17 um breytingar á innra skipulagi. Samkvæmt teikningum Sigurðar Hafsteinssonar dags. 01.12.17

      Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.

Ábendingagátt