Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Þann 15.05 sækir Hafnarfjarðarbær um stöðuleyfi fyrir þrjú söluhús við Fornubúðir vegna sjómannadagsins. frá 1.06 og 04.06.2018
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að sett verða upp þrjú söluhús við Fornubúðir vegna sjómannadagsins
Sigurgrímur Skúlason sækir með bréfi dags. 22. apríl 2018 um að breyta handriði á svölum húss byggðu 1922.
Afgreiðslu frestað.
Eyþór Ragnar Jósepsson leggur þann 17.04.2018 fram fyrirspurn um að hækka mæni, bæta við þakgluggum, fjarlægja skorstein og stækka núverandi kvist norðanmegin á Ölduslóð 46 samkvæmt fyrirspurnaruppdráttum Ásgeirs Ásgeirssonar dags 13.04.2018.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur jákvætt í erindið. Vakin er athygli að við inngang hússins er búið að útbúa anddyri sem er ólöglegt.
HS Veitur sækir um framkvæmdaleyfi þann 12.04.18 fyrir aðveitustöð Hamranesi samkvæmt teikningum Jóns Ólafs Ólafssonar dags. 28.03.2018
Skipulagsfulltrúi samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir aðkomuvegi á grundvelli innsendra gagna og með vísan til 13 gr. skipulagslaga 123/2010
Friðrik Þór Friðriksson krefst stöðvun framkvæmda á lóðinni við Erluás 31, með bréfi dags. 05.05.2018
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
Þann 23.01.2018 leggur Viðar Jónsson inn fyrirspurn til byggingarfulltrúa þar sem óskað er eftir að stækka neðri hæð húss um 3 m til norðurs og útbúa svalir ofan á stækkuninni. Jafnframt að breikka bílgeymslu um 1,4 m til austurs. Lögð fram umsögn arkitekts dags. 16.5. 2018.
Afgreiðslu frestað með hliðsjón af fyrirliggjandi umsögn arkitekts.
Bæjarráðs Hafnarfjarðar vísaði þann 22. febrúar sl. erindi Rimmugýgs um aðstöðu fyrir Víkingahátíð í Hafnarfirði 14- 17. júní nk. til vinnslu hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa heimilia aðstöðu á Víðistaðatúni en benda á að hvað varðar afnot af salerni og tjaldstæði þarf að hafa samráð við Hraunbúa þar sem þeir eru umsjónaraðilar þess. Það má búast við að að það séu tjaldgestir á tjaldstæðinu og verður að taka tillit til þeirra og viðburða er kunna að vera í kirkjunni á sama tíma. Heilbrigðiseftirlit er leyfishafi hvað varðar drykkjar- og matarsölu. Allt rusl skal fjarlægt og skal skila svæðinu í viðunandi ástandi.
Hundaræktarfélag Íslands óskar eftir að halda útisýningu á vegum félagsins á Víðistaðatúni þann 8- 10. júní nk. Óskað er eftir aðgang að rafmagni, salernum og eins bílastæðum.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkja að haldin sé hundasýning á Víðistaðatúni þessa helgi og leggur áherslu á að allt sé hirt upp eftir hundana og að svæðið verði skilið eftir í viðunandi ástandi og allt rusl tekið að sýningu lokinni. Hvað varðar afnot af salernum að þá skal hafa samráð við Hraunbúa þar sem þeir eru umsjónaraðilar. Eins skal hafa samband við HS veitur vegna rafmagns. Hvað varðar bílastæði við kirkjuna skal haft samráð við Víðistaðakirkju með þau.
Andrew Ibsen gerir fyrirspurn með tölvupósti 11.5.2018um að gera bílastæði við vesturhlið hússins. Lögð fram umsögn arkitekts dags. 15.5. 2018.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tekur neikvætt í erindið með hliðsjón af fyrirliggjandi umsögn arkitekts.
Skipulagsfulltrúi leggur fram tillögu dags. 15.05.2018 að frávikum á skilmálum frá gildandi skilmálum annars áfanga Skarðshlíðar, gildandi skilmálar voru samþykktir í bæjarstjórn 21.12.2016.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir tillöguna
Auðunn Helgasson sækir 15.05.18 um leyfi fyrir viðbyggingu. Samkvæmt teikningum Kára Eiríkssonar dags. 11.05.18
Afgreiðslu frestað, gögn ófullnægjandi.
Kaffibrennsla Hafnarfjarðar ehf sækir þann 08.05.2018 um stækkun á millilofti samkvæmt teikningum Jens Karls Bernharðssonar dags. 15.03.2018.
Þann 9.5.2018 sækir Stefán Reynisson um að breyta innra skipulagi á húsnæðinu við Furuvellir 22.
Tekin fyrir að nýju umsókn Faðmlags ehf, dags. 23.3.2018 um að byggja hús á Hringhellu 9, teikningar gerðar af Kristni Ragnarssyni arkitekt. Nýjar teiknigar bárust 09.05.2018,með stimpli SHS.
Pólóborg ehf. sækir 14.5.2018 um breytingum a innréttingum í söluturni á 1.hæð og setja auka útidyr á vesturhlið, samkvæmt teikningum Ágústs Þórðarsonar dagsettar 30.11.2017 undirskriftir nágranna barst einnig með umsókn.
Egill Hjartasson sækir 08.05.18 um að reysa skjólvegg fyrir framan Burknavelli 2 og láta einfalda girðingu í stað runna við Akurvelli. Lögð fram umsögn arkitekts dags. 16.5. 2018.
Einar Gíslason sækir um þann 16.05.2018 að setja kvist á húsið til suðurs.