Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Lagðir fram á ný uppfærðir aðaluppdrættir f.h. Brynju hússjóð teiknaðir af Jóhannesi Þórðarsyni dags. 14.02.2019 vegna lokaúttektar. Vegna mistaka við útsetningu húss á lóð breytist staðsetning útigeymslu á lóð. Erindið var grenndarkynnt þar sem hluti hússins fer út fyrir byggingarreit á norð/vestur horni hússins. Grenndarkynnt var fyrir eigendum að Kvistavöllum 33,35,37 og svo Kvistavöllum 66,68,70 og 72. Ein athugasemd barst. Skipulags- og byggingarráð samþykkti breytingarnar sem felast í grenndarkynntum uppdráttum Glámu/Kím arkitektum dags. 14.02.2019 og að erindinu yrði vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarstjórn satðfesti ofangreint á fundi sínum þann 12. júní s.l.
Byggingarfulltrúi samþykkir uppfærða aðaluppdrætti í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. sækir 14.3.2019 um að byggja fjögur 2-3 hæða fjórbýlishús skv. teikningum Kristins Ragnarssonar dags. 11.3.2019. Nýjar teikningar bárust þann 24.04.2019. Nýjar teikningar bárust 13.6.2019 með stimpli frá brunahönnun.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Þann 18.06.2019 sækir Guðmundur Oddur Víðisson um að breyta innanhús, þ.e bæta við sjálfsafgreiðslukössum við afgreiðslukassaröðina.
Sívaliturn ehf. leggur þann 12.6.2019 inn reyndarteikningar af Gjáhellu 13 unnar af Sigurði Þorvarðarsyni dagsettar apríl 19.
Einar Haraldur Rögnvaldsson og Sigríður Margrét Einarsdóttir sækja 26.4.2019 um stækkun og hækkun á þaki samkvæmt teikningum Gunnars Valdimarssonar dagsettar 28.3.2019. Samþykki nágranna barst einnig. Nýjar teikningar bárust 12.06.2019.
Tæki.is ehf. sækir þann 3.4.2019 um að stytta svalir samkvæmt teikningum Halldórs Hannessonar dagsettar 3.4.2019. Umsóknin er breyting á byggingarleyfi samkv. málsnr. 0705151. Nýjar teikningar bárust 5.4.2019 Nýjar teikningar bárust 7.6.2019
Elsa Esther Kristófersdóttir sækir þann 19.12.2018 um að stækka húsið með viðbyggingu á norðurhlið ásamt breytingu innandyra og nýrri klæðningu að utan samkvæmt teikningum Sturlu Þórs Jónssonar dags. 10.12.2018. Nýjar teikningar bárust 30.1.2019. Nýjar teikningar bárust 18.02.2019. Nýjar teikningar bárust 28.02.2018 í tvíriti.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Erindið var grenndarkynnt með vísan til heimildar í A-lið 2. gr. Samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags-og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Athugasemd barst og var erindinu vísað til Skipulags- og byggingarráðs samanber 2. gr. Samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags-og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Umsóknin var síðan samþykkt af bæjarstjórn Hafnarfjarðar þann 12.06.2019.
Óðalhús ehf. sækir þann 31.10.2018 um leyfi til að byggja parhús samkvæmt teikningum Friðriks Ólafssonar dags. 27.3.2018. Nýjar teikningar bárust 5.11.2018
Skipulagsfulltrúi visar erindinu til grenndarkynningar samanber A-lið 2. gr. Samþykktar um embættisafgreiðslur skipulags-og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði. Tillagan gerir ráð fyrir óverulegri færslu á byggingareit mannvirkja. Umsóknin skal grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Vikurskarðs 10, Glimmerskarðs 9 og Glimmerskarðs 7.
Þann 3.06.2019 leggur Björn Ragnar Björnsson inn fyrirspurn um að byggja viðbyggingu þar sem sólskáli er.
Tekið er jákvætt í erindið, með vísan til þess að viðbygging verði innan byggingarreits og í samræmi við deiliskipulag frá 2004.
Sótt er um framkvæmdaleyfi vegna breytinga á gatnamótum Flatahrauns og Álfaskeiðs.
Skipulagsfulltrúi samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi, með vísan til 15 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, vegna breytinga á gatnamótum Flatahrauns og Álfaskeiðs.
Símon Örn Birgisson og Íris Anna Randversdóttir óska eftir með bréfi dags. 9. maí 2019 um stækkun lóðar úr 898.5 fm í 1060 fm.
Umrædd lóðarstækkun er það mikil að hún myndi kalla á breytingu á deiliskipulagi, nýtingarhlutfall myndi þá einnig breytast samhliða. Tekið er neikvætt í erindið þar sem um er að ræða mikil frávik í grónu hverfi og ef horft er á deiliskipulagið í heild sinni að þá er á umræddum stað grænt svæði sem teigir sig meðfram Glitvangi að Hjallabraut og ef umrædd lóð myndi stækka um 6 metra útá grænt svæðið myndi það stinga í stúf við allt sem fyrir er.
Inga María Magnúsdóttir sækir um að lækka botnplötu á áður samþykktum bílskúr og breyta aðal byggingarefni hans í steypu frá timbri. Jafnframt er sótt um að bæta við óupphitaðri geymslu undir sólpalli við skráningu hússins.
Frestað gögn ófullnægjandi.
Þ.Þorgrímsson & Co ehf. sækir þann 12.06.2018 um byggingarleyfi fyrir vörugeymslu samkvæmt teikningum Helga Bergmanns Sigurðssonar dags. 30.05.2018. Nýjar teikningar bárust 12.06.2019 ásamt bréfi frá hönnuði.
Borghildur Þórisdóttir leggur inn fyrirspurn um hvort gera megi núverandi hús upp, breyta 22b og byggja vinnustofu og geymslu á lóðinni skv. uppdrætti teiknuðum af Gunnlaugi Ó Johnson dags. 28.05.2019.
Tekið er jákvætt í erindið, sjá umsögn arkitekts.