Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
K16 ehf sækir 24.07.2019 um smávægilegar breytingar á innra skipulagi og útliti byggingar frá áður samþykktum teikningum skv. teikningum Jón Halldórssonar dags. 09.07.2019.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Tekin fyrir að nýju umsókn Háhólma ehf. dags. 12.2.2019 um breytingu að Sörlaskeiði 17 skv. teikningum Kára Eiríkssonar dags. 4.2.2019. Fyrirhugaðar breytingar fela í sér að glugga á vesturhlið í rými 0103 er breytt í tvöfaldar útidyr eins og eru á framhlið hússins. Samþykki eigenda aðliggjandi bila barst 13.09.2019.
Tekin fyrir að nýju umsókn Helga Bergs Halldórssonar dags. 19.8.2019 um leyfi fyrir byggingu einbýlishúss á einni hæð með innbyggðum bílskúr samkvæmt teikningum Gísla Gunnarssonar dagsettar. 11.8.2019. Nýjar teikningar bárust þann 02.09.2019. Nýjar teikningar bárust 16.9.2019
Húsfélagið Dalsási 2-6 sækir þann 27.8.2019 um breytingu á sorpgerði.
Tekið fyrir að nýju erindi vegna stöðuleyfa. Eigendum gáma, sem ekki hefur verið sótt um stöðuleyfi fyrir, hefur verið sent bréf og þeim bent á að sækja þarf um stöðuleyfi eða fjarlægja þá gáma sem eru án stöðuleyfa og bent á að dagsektir verða lagðar á ef ekki er brugðist við.
Dagsektir verða lagðar á eigendur gáma sem ekki hefur verið sótt um stöðuleyfi fyrir frá og með 7.10.2019.
Eignatak ehf. sækir þann 1.3.2019 um að reisa 1580 fermetra stálgrindarhús á einni hæð. Sótt er um að byggingarreitur verði færður til og breyttur samkvæmt teikningum Gunnars Sigurðssonar dags. 13.2.2019.
Samþykkt er að grenndarkynna erindið með vísan til 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð tók jákvætt í fyrirspurn sem lögð var fyrir ráðið þann 27.8.2019.
Þann 5.9.2019 leggja Einar Eyjólfsson og Rakel Sigurðardóttir inn fyrirspurn þar sem óskað er eftir að færa byggingareit á lóðinni við Malarskarð 6. Um er að ræða tilfærslu á byggingarreit um 5,5m frá götu í stað 3m líkt og gildandi skipulag gerir ráð fyrir.
Tekið er jákvætt í erindið. Leggja þarf inn umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Allur kostnaður vegna breytinganna fellur á þann sem eftir henni óskar.
Hrefna Helgadóttir og Haukur Jónsson leggja inn fyrirspurn dags. 12.9.2019 vegna byggingu bílskúrs og bílastæðis. Samþykki meðeiganda liggur fyrir.
Tekið er jákvætt í erindið. Sjá umsögn arkitekts.
Vogir-fasteignafélag ehf sækir þann 08.03.2019 um breytingu á íbúðarhúsi samkvæmt teikningum Kára Eiríkssonar dags. 08.02.2019. Nýjar teikningar bárust 07.05.2019. Nýjar teikningar bárust þann 28.08.2019. Nýjar teikningar bárust 2.9.2019. Nýjar teikningar bárust 13.09.2019.
Samþykki allra meðeigenda þarf að liggja fyrir hvað varðar eigna- og útlitsbreytingar. Jafnframt er athygli umsækjanda vakin á reglum Hafnarfjaðarbæjar um bílastæði.
Hjörtur Freyr Jóhannsson og Áslaug Þorgeirsdóttir sækja 11.9.2019 um leyfi til að reisa hús úr forsteyptum einingum samkvæmt teikningum Sigurðar Hafsteinssonar dagsettar 10.9.2019.
Frestað gögn ófullnægjandi. Umsækjanda bent á að sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi vegna færslu á bílastæðum. Allur kostnaður vegna deiliskipulagsbreytinga fellur á þann sem eftir henni óskar.
Skipalón 7 ehf. sækir 17.9.2019 um að reisa fjölbýlishús samkvæmt teikningum Árna Friðrikssonar dagsettar 17.9.2019.
Frestað gögn ófullnægjandi.