Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa

23. október 2019 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 771

Mætt til fundar

  • Hildur Bjarnadóttir Byggingarfulltrúi
  • Gunnþóra Guðmundsdóttir starfsmaður
  • Anna María Elíasdóttir starfsmaður

Ritari

  • Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi
  1. A-hluti byggingarleyfa

    • 1910158 – Völuskarð 17, byggingarleyfi

      Eva Úlla Hilmarsdóttir og Jón Erlendsson sækja 9.10.2019 um að byggja tveggja hæða einbýlisshús samkæmt teikningum Björns Skaptasonar dagsettar 7.10.2019.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1903213 – Hverfisgata 35, breyting á íbúðarhúsi

      Vogir-fasteignafélag ehf. sækir þann 08.03.2019 um breytingu á íbúðarhúsi samkvæmt teikningum Kára Eiríkssonar dags. 08.02.2019. Nýjar teikningar bárust 07.05.2019. Nýjar teikningar bárust þann 28.08.2019.
      Nýjar teikningar bárust 2.9.2019.
      Nýjar teikningar bárust 13.09.2019.
      Undirskriftir meðeiganda barst 10.10.2019.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1901004 – Stöðuleyfi, gámar, 2019

      Tekið fyrir að nýju erindi vegna stöðuleyfa. Eigendum gáma, sem ekki hefur verið sótt um stöðuleyfi fyrir, hefur verið sent bréf og þeim bent á að sækja þarf um stöðuleyfi eða fjarlægja þá gáma sem eru án stöðuleyfa og bent á að dagsektir verða lagðar á ef ekki er brugðist við.

      Dagsektir, 20.000 pr. dag, verða lagðar á eigendur gáma sem ekki hefur verið sótt um stöðuleyfi fyrir frá og með 6.11.2019.

    • 1902439 – Breiðhella 22, byggingarleyfi, reyndarteikningar

      Þann 21.2.2019 eru lagðar inn reyndarteikningar samkvæmt teikningum Kristins Más Þorsteinssonar dags. 24.2.2017. Breyting er að hæðarkóti húss er færður frá K18,50 í K 18,20 sem er upphaflegi útgefinn kóti lóðar. Einnig er þvottaplani sleppt vegna fyrirhugaðrar framtíðar stækkunar húss.
      Nýjar teikningar bárust 22.3.2019
      Nýjar teikningar bárust 04.10.2019
      Nýjar teikningar bárust 15.10.2019.

      Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

    • 1909642 – Skógarás 1, fyrirspurn

      Fyrirspurn dags. 27.9.2019 barst frá Jóhanni Ögra Elvarssyni varðandi byggingu 340m2 staðsteypts einbýlishúss á tveimur hæðum án bílskúrs en með yfirbyggðri bílgeymslu með stæðum fyrir allt að þrjá bíla. Auk tveggja stæða á lóð við hús milli stoðveggja sem lækka niður í 0 á lóðarmörkum. Á efri hæð er m.a. verönd til suðurs með skjólveggjum sem eru áframhald af útveggjum hússins. Húsið hefur verið hækkað um 60cm.

      Tekið er jákvætt í erindið. Grenndarkynna þarf erindið þegar umsókn og fullnægjandi gögn berast.

    B-hluti skipulagserindi

    • 1908508 – Norðurbraut 27, fyrirspurn, viðbygging

      Jakob Guðmundur Rúnarsson leggur 26.8.2019 inn fyrirspurn, óskar eftir viðbyggingu við Norðurbraut 27. Gögn bárust þann 23.9.2019. Ný gögn bárust með tölvupósti þann 21.10.2019. Lagðar eru fram tvær tillögur að stækkun hússins.

      Tekið er jákvætt í tillögurnar.

    • 1909067 – Hraunhvammur 3, deiliskipulagsbreyting

      Hákon Ingi Sveinbjörnsson sækir 2.9.2019 um deiliskipulagsbreytingu á Hraunhvammi 3. Tillaga að breyttu deiliskipulagi vegna viðbyggingar og bílskúrs. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 18.9.2019 að grenndarkynna erindið í samræmi við 1.mgr. 44.gr. skipulagslaga. Voru breytingarnar grenndarkynntar frá 23.9.-21.10.2019. Engar athugasemdir bárust.

      Byggingarfulltrúi samþykkir deiliskipulagið sem grenndarkynnt var. Engar athugsemdir bárust
      Skipulag lóðar verður færð inn í deiliskipulagsgerð Vesturbæjar.
      Heimild til uppbyggingar á lóðinni skal auglýst í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við skipulagslög. Byggingarleyfisumsókn verður afgreidd þegar fullnægjandi umsókn berst.

    • 1910032 – Hörgsholt 1a, deiliskipulag

      Kristján Örn Kristjánsson fh. HS veitna óskar þann 2.10.2019 eftir breytingu á deiliskipulagi vegna endurnýjunar á dreifistöð við Hörgsholt. Með erindinu fylgja teikningar er gera grein fyrir breytingunum.

      Byggingarfulltrúi samþykkir að grenndarkynna erindið í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga. Erindið skal grenndarkynnt aðliggjandi lóðarhöfum við Hörgsholt.

    • 1910297 – Stuðlaskarð 6, deiliskipulagsbreyting

      Þann 14.10. sl. leggja SGG verktakar ehf. inn umsókn um deiliskipulagsbreytingu Skarðshlíðar 3. áfanga er nær til lóðarinnar við Stuðlaskarð 6.
      Fyrirspurn vegna deiliskipulagsbreytingar á lóðinni var á dagskrá afgreiðslufundar skipulags- og byggingarráðs þann 8.10. sl. Tekið var jákvætt í erindið.

      Byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við samþykkt um embættisafgreiðslur skipulags- og byggingarfulltrúans í Hafnarfirði, þar sem Hafnarfjarðarbær er eini hagsmunaaðilinn.

Ábendingagátt