Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Ts 24 ehf. sækir þann 30.6.2020 um byggingarleyfi fyrir 618m2, 6 íbúða, vistvottuðu fjölbýli á tveimur hæðum skv. teikningum Páls Poulsen dags. 29.6.2020. Nýjar teikningar bárust 16.09.2020. Nýjar teikningar bárust 14.05.2021. Nýjar teikningar bárust 04.06.2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Linde Gas ehf. sækir þann 26.05.2021 um breytingu samkvæmt teikningum Orra Árnasonar dags. 11.12.2020.
Andri Þór Sigurjónsson sækir 7.5.2021 um að breyta gluggum og hurð á áður samþykktum teikningum skv. teikningum Stefaníu Pálmarsdóttur dags. 5.5.2021.
Þórir Guðmundsson fh. lóðarhafa sækir um byggingu óupphitaðrar sólstofu skv. teikningum Þóris Guðmundssonar. Aðalbyggingarefni er timbur gler og járn. Samþykki nágranna barst 13.04.2021. Nýjar teikningar bárust 12.05.2021. Nýjar teikningar bárust 07.06.2021.
Þann 17.05.2021 sækir Guðmunda Jónsdóttir um að byggja einbýlishús. Teikningar unnar af Jóni Stefáni Einarssyni bárust þann 04.06.2021.
Kári Eiríksson fh. lóðarhafa sækir 7.5.2021 um leyfi til að byggja forstofu við húsið, setja svalir á hlið sem snýr að garði, og stækka gluggaop í svaladyr skv. teikningu Kára Eiríkssonar dags. 29.4.2021. Nýjar teikningar bárust 28.05.2021.
Erindið verður grenndarkynnt þegar fullnægjandi gögn berast.
Valhús ehf. sækir þann 21.05.2021 um leyfi til að byggja 4 hæða fjölbýlishús byggt úr steinsteypu samkvæmt teikningum Kristins Ragnarssonar dags. 10.05.2021. Nýjar teikningar bárust 02.06.2021. Nýjar teikningar bárust 03.06.2021. Nýjar teikningar bárust 04.06.2021.
Pétur Ólafsson byggverktak ehf. sækir 7.4.2021 um byggingarleyfi fyrir geymsluhúsnæði á einni hæð skv. teikningum Arnars Inga Ingólfssonar. Teikningar bárust 14.05.2021 með stimpli frá Heilbrigðiseftirliti og Brunahönnun. Nýjar teikningar bárust 8.6.2021.
Þann 13.1.2021 óskaði Hafnarfjarðarbær eftir að setja upp grenndarstöð við Lyngbarð. Tekið var jákvætt í erindið á afgreiðslufundi þann 20.1.sl og erindið grenndarkynnt tímabilið 5.5.-7.6.2021. Athugasemdir bárust.
Erindinu er vísað til skipulags- og byggingarráðs.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir framkvæmdaleyfi, með erindi dags. 08.06.2021, til að gera hjólastíg meðfram Strandgötu frá Reykjanesbraut að Flensborgartorgi ásamt breytingum á nærumhverfi.
Framkvæmdaleyfið er samþykkt með vísan til 5. gr. reglugerðar nr. 772 um framkvæmdaleyfi.
Umhverfis- og framkvæmdasvið óskar eftir að setja nýjan aðkomupall við Seltún í Krýsuvík í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt Landmótunar dags. 31. maí 2021.
Afgreiðslufundur samþykkir fyrir sitt leyti framkvæmdina en benda á að það þarf að leita umsagnar Umhverfisstofnunnar fyrir framkvæmdinni þar sem Seltún er innan Reykjanesfólkvangs. Framkvæmdaleyfi verður gefið út að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar.
Kristinn Jónasson og Thelma Jónasdóttir sækja 7.6.2021 um að byggja fjölskylduhús á tveimur hæðum samkvæmt teikningum Andra Andréssonar dagsettar 4.6.2021.
Frestað gögn ófullnægjandi.
Þrúður Marel Einarsdóttir og Einar Þór Sigurðsson sækja 07.06.2021 um heimild fyrir fjölskylduhúsi á tveimur hæðum á lóðinnni við Völuskarð 10 skv. teikningum Andra Andréssonar dags. 04.06.2021.
Gylfi Andrésson sækir um að byggja einbýlishús á einni hæð úr forsteyptum einingum skv. teikningum Davíð Kristjáns Pitt. Teikningar bárust 04.06.2021.
Umhverfis- og framkvæmdasvið sækir um þann 10. maí sl. um uppsetningu ærslabelgs við Stekkjarhraun í samræmi við meðfylgjandi gögn.
Leyfi fyrir uppsetningu ærslabelgs er veitt, jákvæð umsögn umhverfisstofnunnar liggur fyrir.
Björn Pétursson bæjarminjavörður óskar eftir í tölvupósti dags. 3. júní 2021 að láta mála gamla auglýsingu á gaflinn að Strandgötu 4 í tengslum við sýningu í byggðasafni Hafnarfjarðar, kaupmaðurinn á horninu. Myndin sýnir merki verslunar Jóns Mathisen og verður á veggnum til apríl 2022.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa veitir heimild fyrir erindinu.
Jóhanna Halldórsdóttir fh. Dýrheima óskar eftir að halda æfingarsýningu á Víðistaðatúni þann 2. júli nk.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa samþykkir að haldin sé æfingasýning á Víðistaðatúni 2. júlí nk. og leggur áherslu á að allt sé hirt upp eftir hundana og að svæðið verði skilið eftir í viðunandi ástandi og allt rusl tekið að sýningu lokinni. Hvað varðar afnot af salernum þá skal hafa samráð við Hraunbúa þar sem þeir eru umsjónaraðilar. Eins skal hafa samband við HS veitur vegna rafmagns. Hvað varðar bílastæði við kirkjuna skal haft samráð við Víðistaðakirkju með þau. Einnig má búast við tjaldgestum á tjaldstæði og verður að taka tillit til þeirra.