Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Reginn atvinnuhúsnæði sækir 21.12.2021 um breytingu á innra fyrirkomulagi á 1. hæð og hluta kjallara samkvæmt teikningum Sigríðar Ólafsdóttur dags. 17.12.2021. Engar breytingar eru gerðar á burðavirki, lögnum, eldvörnum eða stærðum.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Klapparholt ehf. sækja þann 13.01.2022 um breytingu á skráningartöflu sem fellst aðallega í tilfærslu og leiðréttingu á rýmisnúmerum samkvæmt teikningum Kristjáns Arnar Kjartanssonar dags. 07.12.2021.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki 160/2010.
Á fundi skipulags- og byggingarráð þann 16. nóvember sl. var samþykkt að grenndarkynna erindi Matthíasar Óskars Barðasonar fh. lóðarhafa dags. 3.12.2021 um breytingu á deiliskipulagi Tinnuskarðs 6 í samræmi við 2. gr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Helstu breytingar eru fjölgun íbúða úr tveimur í þrjár, stækka byggingarreit og fella niður kröfu um bundna byggingarlínu. Fjölga bílastæðum um eitt á lóðinni, heimila minniháttar útbyggingar 80 cm út fyrir byggingarreit og auka byggingarmagn um 10 m2. Erindið var grenndarkynnt 15.12.2021-15.1.2022. Athugasemd barst.
Erindinu er vísað til skipulags- og byggingarráðs.
Á fundi skipulags- og byggingarráði þann 16. nóvember sl. var samþykkt að grenndarkynna erindi Hástígs ehf. dags. 17.9.2021 um breytingu á deiliskipulagi Vikurskarð 5 í samræmi við 2. gr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Helstu breytingar snúa að breytingu á lögun byggingarreits, kóti á inngangshæð hækkaður og aðlagaður betur að hæð lóðarinnar. Íbúðum fjölgað úr þremur í fjórar. Húsið verður tvær hæðir. Hámarkshæð til norðurs hækkar. Erindið var grenndarkynnt 21.12.2021-20.1.2022. Engar athugasemdir bárust.
Erindið er samþykkt og að afgreiðslu verði lokið í samræmi við skipulagslög.
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 08.12. 2021 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að ný lóð verði útbúin með byggingarreit fyrir 30 m² veituhús rafmagns. Erindið var grenndarkynnt 20.12.2021 – 17.1.2022. Engar athugasemdir bárust.
Rio Tinto á Íslandi hf. sækja 19.1.2022 um að endurnýja gaslögn milli gasfélagsins og Rió á Íslandi en fyrirhuguð lagnaleið liggur undir veg á eigu Hafnarfjarðar.
Frestað milli funda. Óskað er eftir nánari skýringum með tilliti til gildandi deiliskipulags.
Þann 17.1.2022 óskar Jóhann Ögri Elvarsson eftir breytingu á deiliskipulagi Völuskarðs 22. Breytingin snýr að breytingu á húsgerð. Í stað tveggja hæða húss verði parhús á einni hæð.
Erindinu vísað í grenndarkynningu skv. 2.mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Þann 24.01.2022 leggur Gísli Jóhann Johnsen inn umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir fleygun og greftri við Áshamar 42.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sækja 20.1.2022 um framkvæmdaleyfi til borunar á fjórum nýjum rannsóknarholum til grunnvatnsmælinga á Bláfjallasvæðinu.
Þann 24.01.2022 leggur Haraldur Ingvarsson inn fyrirspurn fyrir hönd eiganda vegna svala á vesturhlið hússins.
Tekið er neikvætt í erindið eins og það liggur fyrir. Fallist er á stækkun að hámarki einn meter út fyrir byggingarreit á báðum hæðum.
KB Verk ehf. sækir 19.1.2022 um að byggja geymslu/atvinnuhúsnæði, úr límtré með 15 aðskildum einingum samkvæmt teikningum Sigríðar Óladóttur dagsettar 9.1.2022.
Erindi frestað gögn ófullnægjandi.
Viktor Tyscenko Viktorsson sækir 24.1.2022 að byggja tveggja hæða staðsteypt einbýlishús samkvæmt teikningum Róberts Svavarssonar.
Byggingarfélagið Bogi ehf. sækir um heimild fyrir byggingu tvíbýlishús á tveimur hæðum á með tveimur innbyggðum bílskúrum.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. sækir 19.1.2022 um að byggja tvö raðhús, með samtals sjö íbúðum, við Hjallabraut 49 skv. teikningum Bjarna Snæbjörnssonar dags. 17.1.2022.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. sækir 19.1.2022 um að byggja þrjú einbýlishús að Hjallabraut 49 skv. teikningum Bjarna Snæbjörnssonar dags. 17.1.2022.