Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Tekið fyrir að nýju.$line$Fulltrúi HF verðbréfa var með á símafundi.
Sviðsstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Tekið fyrir að nýju.$line$Finnur Magnússon lögmaður var með á símafundi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra að halda áfram að gera ráðstafanir til að virkja forkaupsréttinn í samræmi við samþykkt bæjarráðs 10. apríl sl.
Kynnt niðurstaða meirihluta valnefndar og lögð fram tillaga að ráðningu í starf bæjarstjóra, svohljóðandi:$line$$line$”Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að Haraldur L. Haraldsson verði ráðinn í starf bæjarstjóra Hafnarfjarðar”.$line$$line$
Tillagan var samþykkt með þremur atkvæðum, fulltrúar Samfylkingar sátu hjá.$line$$line$Formanni bæjarráðs og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs er falið að ganga frá ráðningarsamningi í samræmi við minnisblað um ráðningarkjör bæjarstjóra sem lagt er fram á fundinum. Ráðningarsamningur verður lagður fyrir næsta fund bæjarráðs.$line$$line$Gunnar Axel Axelsson óskar bókað:$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 18. júní sl. að auglýsa stöðu bæjarstjóra og fela bæjarráði ábyrgð á faglegu ráðningarferli. Gerði ég ráð fyrir því að með þeirri samþykkt hefði verið ákveðið að vinna að ráðningu í embættið á faglegum forsendum, notast við viðurkenndar hlutlægar aðferðir til að ráða þann hæfasta í starfið og tryggja jafnræði milli umsækjenda. Staða bæjarstjóra var auglýst laus til umsóknar þann 27. júní sl. og sóttu 30 einstaklingar um starfið. Skipaði bæjarráð þriggja manna valnefnd til að greina starfið, skilreina hæfniskröfur, stýra matsferlinu og meta hæfi umsækjenda. Samþykkti bæjarráð sömuleiðis að semja við ráðningarstofuna Hagvang um ráðningarferlið.$line$$line$Ég tel að þrátt fyrir skýr fyrirheit hafi ekki verið staðið í að framkvæmdinni í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar um að viðhaft yrði faglegt ráðningarferli. Þegar mér var tilkynnt um sameiginlega niðurstöðu fulltrúa meirihlutans í valnefndinni áður en formlegt mat á umsækjendum hafði farið fram eða tilraun hafði verið gerð til að leiða rök að þeirri niðurstöðu, sagði ég mig frá störfum nefndarinnar.$line$$line$Í þeirri ákvörðun minni felst engin efnisleg afstaða til einstakra umsækjenda, hvorki þess aðila sem meirihlutaflokkarnir komu sér saman um að yrði ráðinn, né heldur annarra sem sóttu um starfið.$line$$line$Gunnar Axel Axelsson$line$bæjarfulltrúi$line$$line$$line$Bókun Samfylkingar og Vinstri grænna:$line$Vegna vinnubragða fulltrúa meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar sagði fulltrúi minnihlutans í valnefndinni sig frá störfum nefndarinnar, enda ljóst að ekki er um faglega ráðningu að ræða heldur pólitíska ákvörðun meirihlutans. Fulltrúar minnihluta sitja því hjá við afgreiðslu tillögu meirihluta bæjarráðs en óska engu að síður nýráðnum bæjarstjóra farsældar í sínum störfum og vonast til þess að eiga við hann gott samstarf.$line$ $line$Ekki liggja fyrir drög að ráðningarsamningi en samkvæmt minnisblaði sem lagt er fram á fundinum er gert ráð fyrir að laun bæjarstjóra hækki um 31,5% miðað við núgildandi starfskjör. Þessar upplýsingar sem fram koma í minnisblaðinu eru lagðar fram án allrar umræðu og aðkomu bæjarstjórnar. Fulltrúar minnihlutans eru mjög hugsi yfir því hvaða skilaboð felast í slíkri hækkun á launum æðsta embættismanns sveitarfélagsins. $line$ $line$Adda María Jóhannsdóttir$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir$line$Gunnar Axel Axelsson
Lögð fram tillaga Samfylkingar og Vinstri grænna:$line$$line$”Bæjarráð fordæmir aðgerðir Ísraelsstjórnar á Gazasvæðinu síðustu vikur og samþykkir að innkaupum sveitarfélagsins á vöru og þjónustu skuli hagað með tilliti til þess að sniðganga fyrirtæki og framleiðendur sem sýnt hefur verið fram á að hagnist á þeirri aðskilnaðarstefnu sem beitt er gagnvart palenstínsku þjóðinni.$line$Bæjarráð samþykkir jafnframt að styrkja söfnun Rauða krossins vegna hjálparsstarfs palestínska Rauða hálfmánans á Gaza um eina milljón króna.”$line$
Tillagan var felld með þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar.$line$$line$Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar:$line$Meirihluti bæjarráðs fordæmir aðgerðir Ísraelsstjórnar á Gazasvæðinu síðustu vikur, sem bitnað hafa fyrst og fremst á óbreyttum borgurum á svæðinu. Meirihlutinn styður hvers konar aðgerðir íslenskra stjórnvalda og alþjóðasamfélagsins sem leitt geta til varanlegrar lausnar í deilu þessara tveggja þjóða. Það sé þó ekki hlutverk bæjarfélagsins að svo stöddu að beita viðskiptaþvingunum vegna þessara deilna ekki frekar en þegar önnur átök eiga sér stað í heiminum eða þegar mannréttindi eru brotin.
Lagt fram erindi frá Margréti Gauju Magnúsdóttur, sent í tölvupósti 23. júlí, ósk um tímabundið leyfi frá störfum.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir beiðnina.