Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Kristján Sturluson sviðsstjóri stjórnsýslu fundinn.
Upplýsingafulltrúi mætti á fundinn og fór yfir núgildandi stefnu sem er frá 2009.
Bæjarráð samþykkir að forsetanefnd ásamt upplýsingafulltrúa, undirbúi endurskoðun og móti drög að nýrri upplýsingastefnu Hafnarfjarðar. Upplýsingastefnan skal byggjast áfram á þeim grunni að vönduð meðferð og miðlun upplýsinga sé lykilþáttur í starfsemi bæjarins. Henni skuli ætlað að gera aðgang að upplýsingum og þjónustu við bæjarbúa greiðari, skilvirkari og markvissari. Stefnan nái til allra fagsviða bæjarins, ráða og nefnda, stofnana, starfseininga, kjörinna fulltrúa, fyrirtækja og byggðasamlaga í eigu bæjarins og samræmingarhlutverks á milli stofnana á sviði vefmála. Áhersla verði á þróun á rafrænni stjórnsýslu og gagnagátt bæjarins og margvíslegar aðferðir við framsetningu upplýsinga og ólíkar leiðir í þeim efnum.
Tekinn fyrir að nýju samningur við Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar um rekstur Bæjarbíós. Forsvarsmaður félagsins Kristinn Sæmundsson mætti á fundinn og fór yfir starfsemi síðasta árs.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Lagður fram árshlutareikningur Sorpu bs janúar – júní 2015
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram drög að samningi við Þroskahjálp um byggingu búsetukjarna að Öldugötu 41.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða nánar við málsaðila varðandi leigutímann.
Lögð fram tillaga um breytingu á stöðu fjármálastjóra í sviðsstjóra fjármálasviðs.
Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að Rósa Steingrímsdóttir fjármálastjóri verði ráðinn sviðsstjóri nýs fjármálasviðs.
Lagt fram erindi Miðbæjarsamtaka Hafnarfjarðar dags. 8. september 2015 þar sem óskað er eftir að bílastæðamál í miðbænum verði tekin til skoðunar.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að skoða málið og gera tillögur um úrbætur.
Lagt fram erindi kennara við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar varðandi skerðingu sumarlauna vegna verkfalls.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið frekar.
Lögð fram drög að lóðarleigusamningi fyrir ofangreinda lóð en núverandi lóðarleigusamningur er frá 1909 og rann út 1936.
Bæjarráð staðfestir fyrirliggjandi drög að lóðarleigusamningi.
Tekið fyrir erindi Sigurðar Gylfasonar sent í tölvupósti dags. 15.07.2015 fyrir hönd SSG ehf þar sem óskað er eftir að skipta á lóðinni Breiðhellu 3 og Hringhellu 7 sem er í eigu Hafnarfjarðarbæjar. Skipulags- og byggingarráð tók jákvætt í erindið og vísaði því til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir erindið og felur bæjarstjóra að ganga frá málinu.
Lagðar fram umsóknir sem bárust í ofangreinda lóð sem auglýst var í ágúst. Alls bárust eftirtaldar 6 umsóknir: Dverghamrar ehf Fagtak ehf Haghús ehf Hástígur ehf VHE ehf Viðskiptavit ehf
Lagt fram.
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 30.8. sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sorpu frá 7.9. sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strtó bs frá 28.8. sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 26.8.sl.