Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Lúvísa Sigurðardóttir gæðastjóri og Svavar H. Viðarsson ráðgjafi mættu til fundarins.
Lúvísa Sigurðardóttir gæðastjóri og Svavar H. viðarsson ráðgjafi kynntu stöðu verkefnisins.
Jóna Karen Sverrisdóttir frá Gallup mætti til fundarins.
Jóna Karen Sverrisdóttir frá Gallup kynnti niðurstöður þjónustukönnunar. Bæjarráð fagnar því að ánægja íbúa með þjónustuna eykst á milli ára.
Rekstrarreikningur jan.-nóv. lagður fram. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs kynnti rekstarreikning jan.-nóv. 2017.
Lagt fram samkomulag um uppgjör á milli Brú lífeyrissjóðs starfmanna sveitarfélaga og Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.
Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir vék af fundi kl. 9:40.
Lagt fram.
Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mætti til fundarins.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir vonbrigðum með að ekki sé tryggt fjármagn á árinu 2018 við áframhaldandi framkvæmdir við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar. Jafnframt er skorað á þingmenn að sjá til þess að framkvæmdum verði forgangsraðað í samræmi við öryggissjónarmið samgönguáætlunar og því beri að ljúka framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnarfjarðar. Unnið verði skv. tillögu um skiptingu framkvæmda við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar sem samráðshópur Vegagerðarinnar og Hafnarfjarðarbæjar hefur lagt fram. Sem fyrsta áfanga verði tryggt fjármagn á árunum 2018 og 2019 til að ljúka framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar frá Kaldárselsvegi að mislægum gatnamótum við Kýrsuvíkurveg. Hönnun á þessum vegakafla liggur fyrir. Síðan verði tryggt fjármagn í samgönguáætlun á árunum þar á eftir til að ljúka framkvæmdum við Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar skv. framangreindri tillögu.“
Lagt fram bréf til þingmanna dags. 20.des. sl. vegna Reykjanesbrautar.
Umræðu frestað á fundi bæjarráðs 14.des.sl. til næsta fundar.
Umræður.
Starfsáætlun menningar- og ferðamálanefndar 2018 lögð fram. Kristín María Thoroddsen formaður stjórnar Menningar- og ferðamálanefndar mætti til fundarins.
Kristín Thoroddsen formaður stjórnar menningar- og ferðamálanefndar kynnti starfsáætlun nendarinnar 2018.
Lagt fram erindi frá Mannvirkjastofnun dags. 4.jan.sl. varðandi brunavarnir sveitarfélagsins.
Gjaldskrá Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu lögð fram.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gjaldskrá SHS verði samþykkt.
Lagt fram bréf dags. 23.nóv. sl. frá Sorpu bs.
Óðalhús ehf átti hæsta tilboð í Vikurskarð 12.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka tilboði og úthluta Óðalhúsum ehf lóðinni Vikurskarði 12.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 20. desember s.l. afsal á 50% lóðarinnar nr. 1 við Móbergsskarð. Lóðarhafar 50% lóðar skyldu þá finna nýja meðbyggjendur og hefur það nú verið gert. Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum Móbergsskarðs 1 og tölvupóstur frá nýjum meðbyggjendum þar sem tilkynnt er um og óskað samþykkis á nýjum meðbyggjendum. Þá óska aðilar eftir að lóðarhafar 50% lóðarinnar Móbergsskarðs 1 fái að afsala sér lóðinni og að lóðinni nr. 5 verði úthlutað til aðila.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun 50% lóðarinnar Móbergsskarðs 1 til Jóhanns Bjarna Kjartanssonar og Borghildar Sverrisdóttur verði afturkölluð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Móbergsskarði 5 verði úthlutað til Jóhanns Bjarna Kjartanssonar og Borghildar Sverrisdóttur og til Dagbjarts Pálssonar og Þóru Sveinsdóttur.
Lagður fram tölvupóstur frá formanni Reykjanes Geopark um hvort Hafnarfjarðarkaupstaður hafi áhuga á viðræðum um mögulega aðkomu að samstarfinu.
Bæjarstjóra falið að ræða við bréfritara um málið.
Lagt fram frumvarp til breytinga á lögum og kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 með síðari breytingum til umsagnar.
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi ísl.sveitarfélaga
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi ísl. sveitarfélaga þar sem vakin er athygli á skýrslu um stöðu landsbyggða í Evrópu.
Lagt fram bréf til heilbrigðisráðherra dags. 2.jan. sl., ósk um fjölgun hjúkrunarrýma við Sólvang.
Fundarhlé gert kl. 11:00
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna harma það hvernig fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar hafa staðið að málum varðandi uppbyggingu á hjúkrunarheimili í Hafnarfirði. Þrátt fyrir margra ára undirbúningsvinnu og umtalsverða fjárfestingu ákvað meirihlutinn strax í upphafi þessa kjörtímabils að rjúfa þá þverpólitísku samstöðu sem verið hafði um byggingu hjúkrunarheimilis, heilsugæslu og þjónustuíbúða fyrir aldraða á Völlum allt frá árinu 2006, og setti þar með verkefnið á byrjunarreit. Gífurlegir fjármunir hafa tapast og hugmyndum um fjölgun rýma ítrekað verið hafnað af hálfu ráðuneytis, enda ljóst frá upphafi að núverandi húsnæði Sólvangs hentaði ekki fyrir hjúkrunarrými sem uppfyllir nútímakröfur. Hefði upphaflegum áformum verið fylgt eftir hefði nýtt hjúkrunarheimili tekið til starfa snemma árs 2016 og staða málaflokksins allt önnur og betri en raun ber vitni.
Gunnar Axel Axelsson vék af fundi kl. 11:13.
Fundi fram haldið kl. 11:15.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar Framtíðar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks benda á að andstætt því sem fram kemur í bókun minnihlutans, hafa samskipti við ráðuneyti vegna framtíðarnýtingar Sólvangs verið jákvæð eins og fram kemur í bréfi ráðuneytisins frá 24. júlí sl., þar sem ráðuneytið lýsir yfir vilja til að skoða fjölgun rýma. Einnig hefur nýlega verið samþykkt fjölgun dagdvalarrýma úr 8 í 14 eftir áralangan þrýsting þar um. Meirihluti bæjarstjórnar mun áfram beita sér fyrir metnaðarfullri uppbyggingu öldrunarþjónustu í bænum í áframhaldandi virku samtali við heilbrigðisráðuneytið.
Lögð fram til kynningar stefna Hornsteina arkitekta gegn Hafnarfjarðarkaupstað.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 13.des.sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 15.des. sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 15. des. sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 6. og 12.des. sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 6. og 12. des. sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 4.des. sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 4. des. sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 14.des. sl.