Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Ársreikningur 2017 lagður fram. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti til fundarins.
Bæjarráð vísar ársreikningi bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og fyrirtækja hans 2017 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingar sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Fundarhlé gert kl. 17:38. Fundi fram haldið kl. 17:48.
Fulltrúar Samfylkingar og VG lögðu fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar minnihlutans gera athugasemdir við vinnubrögð sem hér eru viðhöfð í tengslum við umfjöllun og afgreiðslu ársreiknings og mótmæla því að svo mikilvægt mál hljóti flýtimeðferð. Það er enn og aftur ljóst að fulltrúar minnihlutans eiga ekki að fá sama aðgang að gögnum eða tíma til undirbúnings og fulltrúar meirihlutans. Við ítrekum þá skoðun okkar hversu ólýðræðisleg slík vinnubrögð eru. Við teljum jafnframt ástæðu til að minna á að fyrr á kjörtímabilinu sá Innanríkisráðuneytið ástæðu til að leiðbeina sveitarfélaginu sérstaklega um verklagsreglur við boðun funda og afhendingu gagna. Það er dapurlegt að forsvarsmenn sveitarfélagsins fari ekki eftir þeim leiðbeiningum eða taki til sín þá gagnrýni sem í þeim fólst.