Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Fulltrúar frá Landsneti, Guðmundur Ingi Ágústsson og Þórarinn Bjarnason, mættu til fundarins.
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu, Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði sátu fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði áfram úr þeim tillögum sem Landsnet kynnti á fundinum varðandi bráðabirgðaframkvæmdir við færslu Hamraneslínunnar. Umhverfis- og skipulagsþjónustu er falið að hefja nú þegar undirbúning málsins, m.a. skoða valkostina með óháðum aðila.
Lögð fram umsókn um lóðarstækkun á lóð Traðarbergs 7.
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi mætti til fundarins.
Bæjarráð telur að fram skuli fara grenndarkynning og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna áfram að málinu.
Lögð fram umsókn lóðarhafa Suðurgötu 39 um stofnun lóðar nr. 39a við Suðurgötu í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Bæjarráð samþykkir framkomna beiðni og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna að málinu.
Lagt fram boð á undirbúningsfund þann 23. til 25. ágúst n.k. vegna vinabæjarmóts 2019.
Tveir fulltrúar fara frá Hafnarfjarðarkaupstað, kostnaður vegna ferðarinnar er á fjárhagsáætlun.
Lagt fram.
Lagt fram erindi frá starfsmönnum Fjölskylduþjónustu um að tekin verði til skoðunar stytting vinnuvikunnar.
Erindi lagt fram og bæjarstjóra falið að taka málið til skoðunar.
Lagt fram kauptilboð í Straum.
Bæjaráð samþykkir framlagt kauptilboð með fjórum atkvæðum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja sölu á Straumi, fastanr. 308-1150, í samræmi við framlagt kauptilboð. Einn greiðir atkvæði á móti.
Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir fulltrúi Vinstri Grænna og Adda María Jóhannsdóttir fulltrúi Samfylkingar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Vinstri grænna Elva Dögg Ásud. Kristinsdóttir og fulltrúi Samfylkingar Adda María Jóhannsdóttir telja það vera mikil mistök að selja Straum. Húsið sjálft á sér mjög merka sögu. Húsið er teiknað af Guðjóni Samúelsyni og hefur hýst margskonar menningarstarfsemi eftir að búskap var hætt á jörðinni. Reknar hafa verið þar vinnustofur og sýningarrými fyrir myndlistarmenn og einnig hefur verið í húsinu aðstaða til þess að taka á móti erlendum listamönnum. Það verður mikill missir af Straumi og mikil vonbrigði að ákveðið hafi verið að selja eignina í stað þess að byggja upp menningartengda starfsemi í húsinu.
Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Hádegisskarði 11 þar sem fram kemur að óskað er eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar nr. 11 við Hádegisskarð til Björns Arnars Magnússonar og Rannveigar Sigurðardóttur verði afturkölluð.
Lögð fram lóðarumókn um lóðina Hádegisskarð 11. Umsækjendur Snorri Sigurðsson kt. 210386-6029 og Sylvía Rut Sigfúsdóttir kt. 130187-2699.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Hádegisskarði 11 verði úthlutað til Snorra Sigurðssonar og Sylvíu Rut Sigfúsdóttur.
Lögð fram umsókn Blikaás ehf kt.670602-2810, um lóðina Einhellu 11.
Bæjarráð leggur til bæjarstjórn að lóðinni Einhellu 11 verði úthlutað til Blikáss ehf.
Lögð fram umsókn Suðurverks hf, kt. 520885-0219 um lóðina Breiðhella 1.
Bæjarráð leggur til bæjarstjórn að lóðinni Breiðhellu 1 verði úthlutað til Suðurverks hf.
Lagt fram bréf þar sem fram kemur að lóðarhafar að 50% hluta að parhúsalóðinni Móbergsskarð 10,óska eftir að afsala sér sínum hluta parhúsalóðarinnar.
Lögð fram lóðarumsókn um 50% lóðarinnar Móbergsskarð 10 frá Víði Inga Ívarssyni. Lóðarhafar Jórunn og Sigurður hafa samþykkt Víði Inga sem nýjan meðbyggjanda.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun 50% lóðarinnar Móbergsskarð 10 til Jón B. Björgvinssonar og Halldóru Oddsdóttur verði afturkölluð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthluta 50% lóðarinnar Móbergsskarði 10 til Víðis Inga Ívarssonar.
Ársskýrsla og ársreikningur heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2017 lagt fram.
Lagður fram ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis 2017.
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænna lögðu fram svohljóðandi fyrirspurn:
Þann 7. desember 2016 lögðum við fram tillögu í bæjarstjórn um að samstarfi yrði komið á við Unicef og Akureyrarbæ við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í allt starf, reglur, samþykktir og stefnur bæjarins til að uppfylla kröfur til þess að fá vottun sem Barnvænt samfélag. Samþykkt var að vísa tillögunni til bæjarráðs þar sem það var tekið til afgreiðslu þann 15. desember sama ár og óskað eftir kynningu um verkefnið og næstu skref í innleiðingu þess frá Unicef. Sú kynning var á fundi bæjarráðs þann 6. apríl 2017 þar sem framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi kynnti hugmyndina um barnvæn samfélög. Á þeim fundi var bæjarstjóra falið að undirbúa stofnun stýrihóps um verkefnið „fyrir haustið“. Þar sem engin sjáanleg merki eru um frekari afgreiðslu eða framkvæmd þessa máls leggjum við fram eftirfarandi fyrirspurnir. – Var stýrihópur um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna stofnaður? – Ef svo er, hvenær var það gert og hvar er sú vinna stödd? – Ef ekki, hvaða skýringar eru á því?
Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta gera ítarlega úttekt fyrir næsta fund ráðsins varðandi tilkynningu um lok lóðarafnota vegna færslu Kaldárselsvegar.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 11.apríl sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 11.apríl sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 9.apríl sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 13.apríl sl.