Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Andri Ómarsson verkefnastjóri og Guðrún Þorsteinsdóttir mannauðsstjóri mættu til fundarins.
Andri Ómarsson og Guðrún Þorsteinsdóttir kynntu stöðu jafnréttismála í sveitarfélaginu.
Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir vegna seinni úthlutunar 2018.
Andri Ómarsson verkefnastjóri mætti til fundarins.
Lagt fram til kynningar.
Arnar Pálsson og Snædís Helgadóttir frá Capacent mættu til fundarins.
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu mætti á fundinn.
6.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23. október sl. Lagt fram erindi Íbúðarfélagsins Bjarg móttekið 9.10.2018. Einnig lögð fram tillaga að lóð í Hamranesi dags. okt. 2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að þróunarreit fyrir um 150 íbúðir til handa Bjargi íbúðarfélagi og vísar erindinu til Bæjarráðs.
Fulltrúi Samfylkingarinnar fagnar því að Bjarg íbúðarfélag sæki um lóð undir íbúðir í Hafnarfirði eftir að hafa skilað lóð í Skarðshlíð fyrr á árinu vegna íþyngjandi skilmála sem féllu ekki innan kostnaðarmarkmiðs reglugerðar um almennar íbúðir. Í Hafnarfirði eru langir biðlistar eftir félagslegu húsnæði og skortur á hagkvæmu húsnæði á viðráðanlegum kjörum fyrir almenning. Það er því mikilvægt að vinna að því að úthluta Bjargi íbúðarfélagi lóð svo framkvæmdir geti hafist sem fyrst.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um þróunarreit fyrir um 150 íbúðir til handa Bjargi íbúðafélagi.
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætti til fundarins.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa allar lausar lóðir í Skarðshlíð 2. áfangi til úthlutunar bæði til lögaðila og einstaklinga, einstaklingar ganga fyrir um einbýlis- og parhúsalóðir. Verð lóða er skv. gjaldskrá.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa eftir tilboðum í fjöleignarhúsalóðina Hraunskarð 2. Lágmarksverð er skv. gjaldskrá, fjöldi íbúða er 32.
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætti til fundarins. Lögð fram stefna á hendur Hafnarfjarðarbæ.
Lagt fram.
Bæjarfulltrúi Miðflokksins leggur fram eftirfarandi bókun:
Í þessu máli er lóðarhafi með öll tilskilinn leyfi frá bæjaryfirvöldum 2003, þ.e. byggingaleyfi til að byggja bílskúr. Lóðarhafi hefur byggingu bílskúrs í góðri trú. Umhverfis- og auðlindanefnd fellir byggingaleyfið úr gildi 2014 þar sem ekki hafi verið staðið rétt að grenndarkynningu á sínum tíma. Bæjarfulltrúi Miðflokksins leggur áherslu á að bærinn leiti allra leiða til að leysa þá flækju sem upp er komin. Takist það ekki telur fulltrúi Miðflokksins mikilvægt að ná samkomulagi við lóðarhafa til að lágmarka tjón hans vegna málsins.
Lagt fram bréf velferðarráðuneytinu dags. 5. og 12.okt. sl. Kærur dags 21. og 24. ágúst sl. og umsögn sveitarfélagsins dags 22. okt. sl.
Lagt fram álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags, 10.okt.sl.
Lögð fram gjaldskrá Lífsgæðaseturs St. Jó.
Bæjarráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar til bæjarstjórnar til samþykktar.
Lagt fram undirritað samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð vísar framlögðum samningi til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætti á fundinn.
4.tl. fundargerðar skipulags- og byggingaráðs 23. 10. 2018. Skipulags- og byggingarráð vísar tillögu að skipulagsverkefnum 2019-2022 til Bæjarráðs. Ráðið telur jafnframt að nauðsynlegt sé að ráðin sé lögfræðingur til Umhverfis- og skipulagsþjónustu. Skipulagsgerð og vinna tengdri henni er flókin og þarfnast oftar en ekki lögfræðilegrar yfirferðar. Viðkomandi lögfræðingur gæti verið hluti af lögfræðiteymi bæjarins.
1.tl. fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 24. 10. 2018. Umhverfis og framkvæmdaráð leggur til að aukið fjármagn, 110 milljónir, verði sett í eftirtalda rekstrarliði; Viðhald húsnæðis 31-111 Yfirlagnir 311-524 Sópun 31-571 Snjómokstur 31-582 Umhverfis og auðlindastefna, framkvæmdaáætlun, óstofnað verknúmer. 2 stöðugildi í þjónustumiðstöð Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur áherslu á að fjármagn til vatns og fráveitu verði aukið í samræmi við framlagt minnisblað dags. 10.10.2018. Heildarhækkun um 98,6 milljónir. Jafnframt er lagt til að verðskrá til stórnotenda vatns verði endurskoðuð í samræmi við framlagt exelskjal dags. 16.10.2018. Lagt er til að húsaleiga félagslega kerfisins verði hækkuð um 10%. Lagt er til að sorphirðugjöld verði hækkuð í samræmi við aukið þjónustustig við losun á blátunnum. Ráðið samþykkir framangreint með 4 atkvæðum. Fulltrúi Samfylkingar, Friðþjófur Helgi Karlsson, situr hjá. Fulltrúi Samfylkingarinnar, Friðþjófur Helgi Karlsson, óskar eftir því að eftirfarandi sé fært til bókar: Ég vil gera athugasemd við það hversu seint gögn eru framlögð er snúa að fjárhagsáætlunargerðinni að þessu sinni. Erfitt er einnig að gera sér grein fyrir heildarmyndinni þar sem m.a. fjárfestingaáætlun til næstu ára hefur ekki verið lögð fram. Varlega þarf að fara í hækkun á húsaleigu félagslegs húsnæðis. Um er að ræða viðkvæman hóp sem á erfitt með að mæta auknum álögum. 10% hækkun er of mikil hækkun á mínu mati. Ég er því mótfallinn henni. Fulltrúar Viðreisnar Þórey S. Þórsdóttir og Miðflokks Arnhildur Ásdís Kolbeins bóka eftirfarandi: Farið verði varlega í hækkanir í félagslega kerfinu og þær frekar teknar í áföngum en einu lagi. Framkvæmdaáætlun 2019 lögð fram. Boðað verður til aukafundar mánudaginn 29.10.2018 um fjárfestingar. Fulltrúi Samfylkingarinnar, Friðþjófur Helgi Karlsson, óskar eftir því að eftirfarandi sé fært til bókar: Vil ítreka athugasemdir mínar um það hversu seint gögn eru að berast ráðsmönnum. Fjárfestingaáætlun er að koma fyrst nú fyrir augu ráðsmanna. Það er óásættanlegt og gerir ráðsmönnum erfitt með að taka afstöðu til hennar. Fyrsta umræða um fjárhagsáætlun fer fram á fundi bæjarstjórnar næstkomandi miðvikudag þannig að tíminn er naumur. Fulltrúi Bæjarlistans, Helga Björg Arnardóttir, bókar eftirfarandi: Góð vinna við fjárhagsáætlun er mikilvægur hluti af vinnu kjörinna fulltrúa og að geta unnið málin í sátt og vel er grundvöllur fyrir góðri stjórnsýslu. Það að fá gögn svona seint og vera sniðinn þessi þröngi rammi fyrir umræðu og vinnslu fjárhagsáætlunarinnar er mjög slæmt og er vinnuháttur sem gengur ekki.
Farið yfir drög að fjárhagsáætlun stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Farið yfir forsendur í drögum að fjárhagsáætlun 2019-2020.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til vinnslu á umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 17.okt.sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 10.okt.sl.
Lögð fram fundargerð 14.eigendafundar SORPU bs. frá 1.okt.sl.
Lög fram fundargerð 17.eigendafundar Strætó bs. frá 1.okt.sl.
Lagðar fram fundargerðir Stjórnar SSH frá 21.sept. og 8.okt.sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 12.okt.sl.
Lagðar fram fundargerðir kaplakrikahópsins frá 9. og 23.okt. sl.
Lögð fram fundargerðir starfshóps um uppbyggingu á Ásvöllum frá 9. og 16.okt. sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 4.okt. sl.