Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Brynjar Þór Þorsteinsson og Haraldur Daði Ragnarsson frá Manhattan marketing mæta til fundarins og kynna Markaðsstefnumótun fyrir Hafnarfjörður sem þeir unnu að.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og vísar til umsagnar í menningar- og ferðamálanefnd.
Lögð fram starfsáætlun almannavarnarnefndar 2019-2022 og drög að rýmingaráætlun fyrir höfuborgarsvæðið.
Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri Almannavarna mætir til fundarins.
Bæjarráð þakkar Jóni Viðari Matthíassyni, slökkviliðsstjóra, fyrir kynningu á starfsáætlun almannavarnarnefndar 2019-2022 og drögum á rýmingaráætlun höfuðborgarsvæðisins. Lagt fram.
Lagt fram minnisblað frá Sambandi ísl. sveitarfélaga dags. 16. apríl sl.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Lögð fram eftirfarandi bókun: Með breytingum á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins nr. 1/1997, lögum nr 127/2016 sem einnig náðu til lífeyrissjóðsins Brúar með breytingum á samþykktum Brúar, náðist að samræma lífeyriskerfi allra landsmanna. Ríkissjóður tók á sig um þriðjung skuldbindinga sveitarfélaga í LSR gegn því skilyrði að sveitarfélögin gerðu upp skuldbindingar sínar gagnvart A-deild Brúar. Það hafa sveitarfélögin gert. Við breytingu á lögum um opinberu lífeyrissjóðina láðist að taka fram með ótvíræðum hætti hvernig gera skyldi upp skuldbindingar sjálfstætt starfandi aðila þegar starfsmenn þeirra ættu aðild að opinberum lífeyrissjóðum á grunni kjarasamninga. Í samkomulagi milli fjármála- og efnahagsráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Brúar lífeyrissjóðs, samhliða lagabreytingunni, skuldbatt ríkissjóður sig til að greiða án lagaskyldu framlag til A-deildar Brúar vegna skuldbindinga aðila þ. m. t. sveitarfélaga, vegna verkefna sem að meirihluta eru fjármögnuð af ríkissjóði með samningum og ríki ber að sinna. Á sama hátt, án ótvíræðrar lagaskyldu, fellst bæjarráð Hafnarfjarðarkaupstaðar á að greiða til Brúar lífeyrissjóðs áfallnar lífeyrisskuldbindingar í jafnvægissjóð og varúðarsjóð vegna Hjallastefnunnar á grunni samninga Hafnarfjarðarkaupstaðar og Hjallastefnunnar samtals að fjárhæð kr. 15.903.462.
“Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.”
Adda María Jóhannsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, situr hjá við afgreiðslu málsins og leggur fram svohljóðandi bókun: Ekki kemur fram í fundarboði að um afgreiðslulið sé að ræða heldur einungis að málið sé lagt fram. Beiðni um að málið yrði sent til bæjarstjórnar án afstöðu bæjarráðs var hafnað og því situr undirrituð hjá við afgreiðsluna að sinni.
Rekstrarreikningur jan.-mars 2019 lagður fram.
Lagt fram.
Guðrún Þorsteinsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um að fjórum aðilum verði veitt launað námsleyfi.
8.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 8.maí sl. Eftirfarandi tillaga er borin upp í umhverfis- og framkvæmdarráði af Sverri Jörstad Sverrissyni fulltrúa Samfylkingarinnar. “Ég legg til að Hafnarfjarðarbær taki upp samgöngustyrki fyrir starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar, sambærilega þeim sem eru í boði hjá Reykjavíkurborg fyrir starfsmenn þeirra. Þeir starfsmenn sem skuldbinda sig til að mæta minnst 3x í viku ekki á bíl fengju þá greitt 6000 kr á mánuði, auk annara fríðinda, eins og afslátt á strætókorti. Styrkurinn verður hinsvegar borgaður í peningum með launum mánaðarlega, svo að starfsmaður geti þá ráðið hvort hann nýti hann í skóbúnað og gangi, hjól og hjóli eða hvaða annan ferðamáta sem hann kýs annan en einkabílinn. Styrkur skal ekki vera hlutfall af prósentu, til að ekki skerðist styrkur á vaktavinnufólk og aðra sem eru í skertu hlutfalli.”
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í tillöguna og vísar til umfjöllunar í bæjarráði, fjölskylduráði og fræðsluráði.
Bæjarráð samþykkir að fela mannauðsstjóra útfærslu tilraunaverkefnis vegna fyrirkomulags samgöngustyrkja til starfsmanna Hafnarfjarðar-kaupstaðar. Niðurstöðu þess verkefnis megi síðan nota til að yfirfæra á alla starfsemi bæjarfélagsins. Útfærsla mannauðsstjóra skal liggja fyrir í lok ágúst 2019, tímanlega fyrir undirbúning fjárhagsáætlunar 2020. Hér er um að ræða nánari útfærslu á tillögu sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar þann 20. júní 2018 nr. 180635, Samgöngusamningar.
5.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 2.maí sl.
“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar styður að stefnumótun og starfsemi bæjarfélagsins taki mið af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og horft sé þar m.a. til vinnu Verkefnastjórnar Heimsmarkmiða SÞ sem skipuð hefur verið að frumkvæði ríkisstjórnar Íslands. Því er beint til bæjarráðs að fylgja þessu eftir með því að greina að hvaða marki nú þegar er unnið að þessum markmiðum, setja áherslur og frekari markmið fyrir bæjarfélagið.”
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram með málið.
Lögð fram umsókn Jóns Erlendssonar og Evu Úllu Hilmarsdóttur um einbýlishúsalóðina nr. 17 við Völuskarð.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Völuskarði 17 verði úthlutað til Jóns Erlendssonar og Evu Úllu Hilmarsdóttur.
Hagtak hf kt. 460391-2109 sækir um atvinnuhúsalóðina nr. 7 við Einhellu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðinni Einhellu 7 verði úthlutað til Hagtaks hf kt. 460391-2109.
Endurnýjun lóðarleigusamnings
Bæjarráð samþykkir framlagðarn lóðarleigusamning og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
3.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 8. maí sl. Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að farið verði í endurskoðun á lóðarleigusamningum í samráði við lóðarhafa og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð vísar erindinu til frekari skoðunar hjá bæjarlögmanni.
4. liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 10.maí sl. Fjölskylduráð leggur til að samningurinn verði samþykktur og vísar honum til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir framlagaðan samning við Sóltún öldrunarþjónustu.
Lagður fram ársreikningur SSH 2018.
Lagt fram fundarboð um aðalfund Landskerfis bókasafna hf. miðvikudaginn 29. maí 2019.
Lögð fram fundargerð starfshóps um miðbæ,deiliskipulag frá 23.apríl sl.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 14.maí sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 3.maí sl.