Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.
Farið yfir rammasamninga sem Hafnarfjarðarkaupstaður er aðili að.
Guðmundur Ragnar Ólafsson innkaupastjóri mætir til fundarins.
Lagt fram til kynningar.
Lagðar fram verklagsreglur vegna framkvæmda. Til afgreiðslu.
Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi verklagsreglur.
Lögð fram lóðarumsókn Ana Tepavcevic, Mladen Tepavcevic og Mariusz Solecki um lóðina Malarskarð 1-3.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni Malarskarði 1-3 í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og leggur fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Völuskarði 5 þar sem óskað er eftir því að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.
Bæjarráð samþykkir umsóknina og leggur fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Lagt fram kauptilboð í íbúð að Berjavöllum 6 ásamt söluyfirliti.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi kauptilboð í íbúð að Berjavöllum 6.
Lagður fram samstarfsamningur við Sorgarmiðstöð.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning.
Árshlutareikningur janúar – júní 2019 lagður fram. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Lagt fram.
Lagður fram viðauki. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og leggur fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Björn M. Halldórsson framkvæmdastjóri SORPU bs og Birkir Jón Jónsson formaður stjórnar SORPU bs. mæta til fundarins. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs situr fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns SORPU bs hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 990.000.000,- með 15 ára. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki sveitarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir. Er lánið tekið til að fjármagna viðbótarkostnað við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi, ásamt nauðsynlegum tækjabúnaði sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Hafnarfjarðarkaupstaður skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda SORPU bs. til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila. Fari svo að Hafnarfjarðarkaupstaður selji eignarhlut í SORPU bs til annarra opinberra aðila, skuldbindur Hafnarðarkaupstaður sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta. Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns. Framangreindu er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi tillögu:
Lagt er til að skipuð verði nefnd sérfræðinga á sviði fjármála- og mannvirkjagerðar á vegum SORPU. Meginhlutverk hennar verði að yfirfara þær áætlanir sem til eru um byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og öllum þeim framkvæmdum sem þeirri starfsemi fylgja. Komi með raunhæfar fjármögnunar? og rekstraráætlanir til langs tíma, fylgi eftir framvindu verkefnisins og leggi fyrir stjórn SORPU, SSH og borgarstjórn og bæjarstjórnir með reglubundnum hætti.
Bæjarráð vísar tillögunni til stjórnar SORPU bs.
Fyrirspurn lögð fram á fundi bæjarráðs 29.ágúst sl. Lögð fram fyrirspurn frá fulltrúa Samfylkingarinnar.
Í árshlutareikningi Hafnarfjarðarhafnar fyrir janúar – júní 2019, sem birtur er með fundargerð Hafnarstjórnar dags. 28. ágúst 2019, á vef Hafnarfjarðarbæjar, kemur fram að skammtímakröfur á ?tengda aðila? hafa hækkað á milli ára, frá því að vera 238.639.515 í ársreikningi 2018 en eru 343.595.037 við sex mánaða uppgjör 2019. Í svörum við fyrirspurnum frá fulltrúa Samfylkingarinnar í Hafnarstjórn kemur fram að um er að ræða millilán til bæjarsjóðs. Í ljósi þessa óskar undirrituð eftir: a) skýringum á þessari miklu hækkun milli ára, og b) samantekt á slíkum millilánum til bæjarsjóðs úr hafnarsjóði í ársreikningum áranna 2014 – 2018 ásamt með 6 mánaða uppgjöri fyrir 2019. c) upplýsingum um það hvort önnur B-hluta fyrirtæki bæjarins hafi veitt bæjarsjóði sambærileg lán á sama tímabili og þær fjárhæðir sem um kann að vera að ræða.
Adda María Jóhannsdóttir
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Lögð fram svör.
Lagt fram til kynningar bréf dags. 27.ágúst sl. frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Lagt fram boð á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2019.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 28.ágúst sl.
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 26.ágúst sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 6.sept sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga frá 30.ágúst sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 23.ágúst sl.
Lagðar fram fundargerðir eigendafundar SORPU bs. frá 26.ágúst og 2.sept sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 2.sept. sl.
Lögð fram fundargerð 19.eigendafundar Strætó bs. frá 2.september sl.