Bæjarráð

22. apríl 2020 kl. 13:00

á fjarfundi

Fundur 3543

Mætt til fundar

  • Ágúst Bjarni Garðarsson formaður
  • Kristinn Andersen varaformaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Þórður Ragnarsson áheyrnarfulltrúi

Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

Ritari

  • Guðríður Guðmundsdóttir

Einnig sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður og sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

  1. Almenn erindi

    • 2003508 – Covid 19, aðgerðaráætlun

      Farið yfir stöðu mála á samþykktir aðgerðaráætlun bæjarstjórnar.

      Til fundarins mæta, Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs, Fanney D. Halldórsdóttir sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs,Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs og Sigurður Nordal hagfræðingur.

      Eftirfarandi tillögur liggja fyrir fundinum til afgreiðslu:

      “Bæjarráð samþykkir að fasteignin Vesturgata 8 verði sett í sölumeðferð.”
      “Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að sölu hlutabréfa sveitarfélagsins í HS Veitum hf sem er 15,42% með það að markmiði að hlutabréf sveitarfélags verði seld.”

      Farið yfir stöðu verkefna sem lögð eru til í aðgerðaáætlun Hafnarfjarðarbæjar vegna COVID-19. Sviðsstjórar gerðu grein yfir framgangi mála á hverju sviði fyrir sig. Rædd voru efnahagsleg og félagsleg áhrif, tekjufall og kostnaðarauka sem til fellur á Hafnarfjarðarbæ vegna Kórónuveirufaraldursins.
      Meðal annars var farið yfir fjölda tillagna að nýsköpunarverkefnum og skapandi störfum sem borist hafa sem veita eiga viðspyrnu í atvinnu- og menningarlífi bæjarins.

      Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum og umræðum innan almannavarna höfuðborgarsvæðisins sem og minnisblaði sem stjórn SSH sendi fjármála- og efnhagsráðherra um stöðu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Fjármálastjóri fór yfir fjármögnunarmöguleika bæjarfélagsins og þá vinnu sem í gangi er vegna væntanlegrar lántöku.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að þegar verði hafnar framkvæmdir við gatnagerð nýbyggingarhverfa/þéttingu byggðar sem tilteknar eru m.a. í 7. tl. tillagna sem samþykktar voru á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 22. apríl 2020. Breytingu á fjárhagsáætlun er vísað til næstu viðaukagerðar.

      Bæjarráð samþykkir að fasteignin Vesturgata 8 verði sett í sölumeðferð.

      Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að sölu hlutabréfa sveitarfélagsins í HS Veitum hf sem er 15,42% með það að markmiði að hlutabréf sveitarfélags verði seld.

      Síðasta tillagan samþykkt með 3 atkvæðum meirihluta. Fulltrúi Samfylkingarinnar greiðir atkvæði gegn tillögunni, fulltrúi Bæjarlistans situr hjá.

      Fulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram svohljóðandi bókun:

      Fulltrúi Samfylkingarinnar styður ekki framkomna tillögu um að hafinn verði undirbúningur að sölu hlutabréfa sveitarfélagsins í HS Veitum.
      Þrátt fyrir þær efnahagslegu áskoranir sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir er sala á samfélagslega mikilvægri grunnþjónustu í hendur einkaaðila ekki rétta leiðin til að standa undir auknum útgjöldum sem þeim munu fylgja.
      Lögum samkvæmt eiga HS Veitur ávallt að vera í meirihlutaeign opinberra aðila og því má telja það óráð að takmarka aðkomu þeirra að rekstrinum enn frekar frá því sem gert var við sölu Reykjanesbæjar á 15% hlut sínum í árslok árið 2013 þannig að ríflega þriðjungur er nú í eigu einkaaðila. Með sölu á hlut Hafnrafjarðar væri þar með helmingur kominn í eigu einkaaðila.
      Mikilvægt er að sveitarfélög hafi skýra aðkomu að fyrirtækjum í almannaþjónustu og þess vegna er hluturinn samfélagslega mikilvægur. Því leggst Samfylkingin gegn því að hluturinn verði seldur til einkaaðila.
      Tímasetning sölu nú getur tæplega talist góð í ljósi aðstæðna og eins má draga í efa hvort sala á eignarhlut bæjarins í HS Veitum sé fjárhagslega betri kostur en lántaka miðað við núverandi markaðskjör og framreiknaðar arðgreiðslur til lengri tíma.

      Fulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

      Sigurður Þ. Ragnarsson fulltrúi Miðflokksins leggst alfarið gegn almennri sölu á 15,42% hlut Hafnarfjarðarkaupstaðar í HS-veitum. Fulltrúi Miðflokksins leggur áherslu á að beðið verði með að selja hlut bæjarins þar til fyrir liggur hvort og þá hverjar aðgerðir ríkisvaldsins verði til handa sveitarfélögunum vegna heimsfaraldursins, Covid 19. Komi engin björgunarpakki frá ríkisvaldinu leggur fulltrúi Miðflokksins til að hafnar verði samningaviðræður við ríkið um kaup á umræddum hlut Hafnarfjarðarbæjar í HS-veitum. Ákvæði verði um forkaupsrétt bæjarfélagsins að hlutnum komi til endursölu hans. Með aukinni einkavæðingu á dreifikerfi HS-veitna eykst þrýsingur á hærra orkuverð til neytenda í þessu tilviki íbúa Hafnarfjarðar. Því leggst fulltrúi Miðflokksins alfarið gegn almennri sölu á hlut bæjarins í HS-veitum.

      Fulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

      Fulltrúi Viðreisnar bókar eftirfarandi. Það er mikilvægt að gætt verði að almannahagsmunum verði farin sú leið að selja eignarhlut Hafnarfjarðar í HS veitum. Aðstæður gefa ekki von um að hámarksverð fáist fyrir hlutinn. Afstaða Viðreisnar mun ráðast af þeim kjörum sem mun fást fyrir hlutinn
      Jón Ingi Hákonarson

      Fulltrúi Bæjarlistans leggur fram svohljóðandi bókun:

      Tillaga um að setja hlut Hfj í HS veitum í söluferli kemur fram með afar stuttum fyrirvara og litlu svigrúmi til umræðu vegna trúnaðarkvaða. Ákvörðunin á sér margar hliðar, bæði tengt hlutverki slíkra samfélagsinnviða almennt og gildi eignarhaldsins fyrir Hafnarfjörð sértækt. Fulltrúi Bæjarlistans situr því hjá í málinu í dag.

      Fulltrúar meirihluta leggja fram svohljóðandi bókun:

      Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar leggja áherslu á að leitað verði tilboða í hluti Hafnarfjarðarbæjar í HS-Veitum á meðal breiðs hóps fjárfestingaraðila til þess að fá sem hæst söluverð. Andvirði sölunnar verði varið til fjárfestinga í innviðum bæjarins en jafnframt í að mæta efnahagslegum afleiðingum COVID-19 faraldursins fyrir bæjarfélagið og íbúa þess. Eignarhlutur í HS-Veitum hefur engin áhrif á verðlagningu raforku til neytenda í Hafnarfirði, en um verðlagningu og arðsemi gilda sérstök lög.

    • 1911252 – Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- Kópavogs og Garðabæjar fjárhagsáætlun 2020 og gjaldskrár

      Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:

      “Fulltrúi Viðreisnar leggur til að heilbrigðisgjald verði lækkað á þá starfsemi sem gert hefur verið að loka vegna samkomubanns. Þetta á m.a. við um hárgreiðslustofur og rakara, snyrtistofur o.fl. Lækkunin skal vera í réttu hlutfalli við fjölda daga sem starfseminni hefur gert að liggja niðri”

      Ljóst er að erfiðar aðstæður eru í samfélaginu öllu sem hafa áður óþekkt áhrif á ýmsa starfsemi. Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu til Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- Kópavogs og Garðabæjar.

    • 1701084 – Hamranes I, nýbyggingarsvæði

      Úthlutun lóðarvilyrða, Hamranes reitir 12, 13 og 14.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reit 12 sé úthlutað til Lifandi Samfélags – 70 einingar/íbúðir, reit 13 sé úthlutað til Arkþings – Þingvangs – 70 einingar/íbúðir og reit 14 sé úthlutað til Skipan – 100 einingar/íbúðir.

    • 2001195 – Hrauntunga 5, lóð, úthlutun

      Tilboðsgjafi Bak Höfn ehf., óskar eftir að lóðarhafi verði GS Hús ehf. Félagið GS Hús ehf er í eigu sömu aðila. Lagður fram ársreikningur félagsins ásamt yfirlýsingu frá banka.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka framlögðu tilboði í Hrauntungu 5. Bak Höfn ehf hefur framselt tilboðið til GS Húsa ehf sem er félag í eigu sömu aðila og tilboðsgjafi og úthluta lóðinni til GS – Húsa ehf., kt. 641007-0990.

      Kristinn Andersen vék hér af fundi. Varamaður hans, Rósa Guðbjartsdóttir, tók sæti hans á fundinum.

    • 2004066 – Stofnframlag, Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar, umsókn um stofnframlag frá Hafnarfjarðarkaupstað

      Lögð fram tillaga að úthlutun stofnframlaga frá Hafnarfjarðarkaupstað til Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðar vegna kaupa á 14 íbúðum almennum íbúðum ætlaðar félagslegu húsnæðiskerfi Hafnarfjarðarkaupstaðar.

      Bæjarráð staðfestir með vísan til 1. mgr. 2. gr. reglna Hafnarfjarðarkaupstaðar um stofnframlög, veitingu stofnframlaga til Húsnæðisskrifstofu Hafnarfjarðar, kt. 570790-1029 vegna kaupa á 14 almennum íbúðum ætlaðar félagslegu húsnæðiskerfi Hafnarfjarðarkaupstaðar, sbr. tillögu Matsnefndar um veitingu stofnframalaga Hafnarfjarðarkaupstaðar. Stofnframlagið verði veitt með beinu fjárframlagi. Með vísan til 5. mgr. 14. gr. laga nr. 52/2016 er stofnframlagið veitt með því skilyrði að það verði endurgreitt þegar þau lán sem tekin voru til að standa undir fjármögnun þeirra almennu íbúða sem sveitarfélagið hefur veitt stofnframlag til hafa verið greidd upp. Um endurgreiðslu stofnframlags fer eftir 16. gr. sömu laga. Áætlað heildarstofnvirði íbúðanna er samkvæmt umsókn kr. 520.080.000,- og 12% stofnframlag sveitarfélagsins kr. 62.409.600.

    • 2003529 – Gjáhella 4, nýr lóðarleigusamningur

      Lóðarleigusamningur um lóðina Gjáhellu 4. Lóðirnar Gjáhella 2 og 4 voru sameinaðar og tók deiliskiplagsbreyting gildi 3. mars 2020. Framlagður lóðarleigusamningur er í samræmi við gildandi deiliskipulag.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 2003546 – Álfhella 10, nýr lóðarleigusamningur

      Lóðarleigusamningur um lóðina Álfhellu 10. Lóðirnar Álfhella 10 og Einhella 7 voru sameinaðar og tók deiliskiplagsbreyting gildi 3. mars 2020. Framlagður lóðarleigusamningur er í samræmi við gildandi deiliskipulag.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 2003459 – Kaldárselsvegur K1, lóðarleigusamningur, endurnýjun

      Endurnýjun lóðarleigusamnings Kaldárselsvegur K1. Fasteignanúmer F2076644

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 1804516 – Sólvangsvegur 2, lóðarleigusamningur

      Lagður fram lóðarleigusamningur um Sólvangsveg (Sólvang). Lóðarleigusamningur er samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 1501921 – Stapahraun 7-9 skipting lóðar

      Lagðir fram nýir lóðarleigusamningar vegna Stapahrauns 7 og 9.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamninga og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 2001431 – Vesturgata 8

      Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:

      “Bæjarráð hafnar framkomnum tilboðum.”

      Bæjarráð hafnar framkomnum tilboðum þar sem ákveðið hefur verið að fasteigin verði sett í sölu.

    • 2002520 – Berghella 1H, umsókn um lóð dreifistöð

      Á fundi bæjaráðs 26. mars sl. var samþykkt að lóðinni yrði úthlutað til HS Veitna hf og jafnframt að unnin yrði deiliskipulagsbreyting á lóðinni.

      Deiliskipulag hefur verið unnið og öðlaðist það gildi 20. apríl 2020.

      Tillaga liggur fyrir fundinum:
      “Bæjarráð vísar úthlutun lóðarinnar til staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarleigusamning og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.”

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

    • 2003493 – Bæjarráðsstyrkir 2020, fyrri úthlutun

      Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
      “Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu, og þeirra tilmæla sem hafa komið frá yfirvöldum, er lagt til að úthlutun verði frestað til þess fundar sem haldinn verður eftir 4. maí nk.”

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

    Fundargerðir

Ábendingagátt