Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Auk þes sitja fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Á fundi bæjarstjórnar 23.júní sl. var kosið í ráð og nefndir til eins árs. Kosning í ráð og nefndir til eins árs: Bæjarráð Formaður Ágúst Bjarni Garðarsson Brekkuási 5 Varaformaður Kristinn Andersen Austurgötu 42 Aðalfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson Fjóluhvammi 9 Aðalfulltrúi Adda María Jóhannsdóttir Skógarhlíð 7 Aðalfulltrúi Jón Ingi Hákonarson Nönnustíg 5 Áheyrnarfulltrúi Guðlaug S. Kristjánsdóttir Kirkjuvegi 4 Áheyrnarfulltrúi Sigurður Þ. Ragnarsson Eskivöllum 5 Varafulltrúi Rósa Guðbjartsdóttir Kirkjuvegi 7 Varafulltrúi Helga Ingólfsdóttir Brekkugötu 26 Varafulltrúi Valdimar Víðisson Brekkuási 7 Varafulltrúi Friðþjófur Helgi Karlsson Miðvangi 4 Varafulltrúi Árni Stefán Guðjónsson Hverfisgötu 35 Varaáheyrnarfulltrúi Bjarney Grendal Jóhannesdóttir Miðvangi 107 Varaáheyrnarfulltrúi Birgir Örn Guðjónsson Eskivöllum 1
Lagt fram til kynningar.
Rekstrartölur jan.-maí lagðar fram. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.
Lagt fram.
Til umræðu. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs og Guðmundur Sverrisson á fjármálasviði mæta til fundarins.
Matthías Imsland formaður framkvæmdanefndar mætir til fundarins og fer yfir stöðuna.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og samþykkir að unnið verði áfram að málinu í samræmi við tillögu starfshópsins um breytingu á hönnun og félagshesthúsi.
Drög að leigusamningi við Gym Heilsu lagður fram.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi leigusamning við Gym Heilsu hf.
Til umræðu.
Bæjarráð lýsir yfir furðu sinni með þau áform sem fréttir berast af um að Malbikunarstöðin Höfði hyggist flytja starfsemi sína til Hafnarfjarðar. Bæjarstjóra er falið að ræða við borgarstjórann í Reykjavík vegna þessa og afla upplýsinga um fyrirætlanir fyrirtækisins, áhrif á umhverfi- og umferð á svæðinu og fleira sem málinu tengist.
Lögð fram ályktun aðalfundar Landverndar frá 12.júní sl. um gjaldtöku fyrir notkun nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu.
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.júní sl. Tekin til umræðu framtíðar uppbygging svæðisins.
Skipulags- og byggingarráð þakkar fyrir kynninguna og samþykkir jafnframt að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar varðandi afmörkun þess svæðis sem tekur til Áslands 4 og 5 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar varðandi afmörkun svæðis sem tekur til Áslands 4 og 5.
Adda María Jóhannsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:
Í allri umræðu um skipulag og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis hefur Samfylkingin lagt áherslu á mikilvægi þess að tryggja fjölbreytni í íbúðauppbyggingu innan sveitarfélagsins. Mikilvægt er að hafa það í huga þegar ný hverfi eru skipulögð svo ná megi markmiðum húsnæðisáætlunar um að tryggja öllum íbúum sveitarfélagsins húsnæði við hæfi.
3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.júní sl. Tekin til umræðu framtíðar uppbygging svæðisins.
4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.júní sl. Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar. Breytingin nær til reits sem afmarkast af Strandgötu, Reykjavíkurvegi, Austurgötu og Linnetsstíg. Í breytingunni felst m.a. að byggingarheimildum frá 2001 er breytt.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að deiliskipulagi reits 1, að teknu tilliti til lagfæringa á skýringarmynd, og að málsmeðferð verði í samræmi við skipulagslög. Jafnframt er erindinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.
5.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.júní sl. Þann 20.04.2021 samþykkti skipulags- og byggingarráð að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Haukasvæðisins á ný. Bæjarstjórn staðfesti samþykkt ráðsins á fundi sínum þann 28.04.2021. Uppfærð umhverfisskýrsla var auglýst samhliða auglýsingu um breytt deiliskipulag. Tillagan var auglýst frá 08.05- 21.06.2021. Athugasemdir bárust. Lagt fram svar við athugasemdum.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða umsögn vegna athugasemda sem bárust við auglýstu deiliskipulagi, jafnframt er erindinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar og að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög.
Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa í sínum málflutningi lagt áherslu á mikilvægi umhverfisþáttarins vegna uppbyggingar knatthúss á Ásvöllum. Bæjarstjórn ber hér mikla ábyrgð og mikilvægt að áhrif á lífríki Ástjarnar og friðlýsta svæðið verði ekki neikvæð og varanleg. Fulltrúi Samfylkingarinnar ítrekar fyrri bókanir um að við frekari framkvæmdir á Ásvöllum verði verndun friðlýsta svæðisins við Ástjörn ávallt sett í forgang.
12.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.júní sl. Lögð fram tillaga að breyttu aðalskipulagi Hrauns vesturs. Tillagan gerir ráð fyrir breyttri landnotkun.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu aðalskipulags Hrauns vestur og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
13.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.júní sl. Lögð fram breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 er tekur til landnotkunarbreytingu á hluta af Selhrauni Suður.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu aðalskipulags Selhrauns suður og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Tekið fyrir að nýju.
Bæjarráð samþykkir að lóðin verði auglýst til úthlutunar og leggur áherslu á að tilboð verði metin með hliðsjón af bæði fjárhæð tilboðs sem og raunhæfri framkvæmdaáætlun sem bjóðendur skulu leggja fram.
Lögð fram fundargerð starfshópsins frá 14.júní sl.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 16.júní sl.
Lögð fram fundargerð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 28.júní sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 23.júní sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11.júní sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 23.júní sl.
Lögð fram fundargerð 31.eigendafundar Strætó bs. frá 15.júní sl.
Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 29.júní.