Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Auk þess sat fundinn Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Kynning á jafnlaunavottun. Kristín Sigrún Guðmundsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins.
Lögð fram tillaga um breytingu á reglum um launað námsleyfi. Kristín Sigrún Guðmundsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins.
Lagt fram.
Lagðar fram rekstrartölur jan.-apríl 2022. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Tekið fyrir á ný. Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um landsþing sambandsins á Akureyri 28.-30.september nk. Lagt fram bréf Sambandsins varðandi kosningu landsþingsfulltrúa. Kjósa þarf 6 landsþingsfulltrúa og jafnmarga til vara.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tilnefningar:
Kristinn Andersen Orri Björnsson Karolína Helga Símonardóttir Valdimar Víðisson Guðmundur Árni Stefánsson Hildur Rós Guðbjargardóttir
Til vara: Margrét V. Marteinsdóttir Kristín Thoroddsen Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Jón Ingi Hákonarson Sigrún Sverrisdóttir Árni Rúnar Þorvaldsson
16.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 15.júní sl. Lagt fram erindi Fimleikadeildar Hafnarfjarðar varðandi „Hybrid“ knattspyrnuvöll í Kaplakrika. Viðar Halldórsson formaður FH mætir til fundarins og kynnir erindið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í erindið og vísar erindinu til bæjarráðs. Ráðið óskar eftir sundurliðaðri kostnaðaráætlun og áætlaðri nýtingu vallarins miðað við samanburð á hefðbundnu grasi og hybrid.
Bæjarráð samþykkir erindið og vísar inn í næsta viðauka bæjarráðs. Bæjarráð felur bæjarlögmanni að ganga frá samningi við FH um framkvæmdir.
Lagt fram erindi frá FH dags.16.júní sl., beiðni um fleiri sumarstarfsmenn á Kaplakrika. Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi mætir til fundarins.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
13.liður úr fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 15.júní sl. Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til bæjarráðs til viðaukagerðar við fjárhagsáætlun 2022.
Vísað til bæjarráðs
Bæjarráð samþykkir erindið og vísar inn í næsta viðauka bæjarráðs.
Guðmundur Árni Stefánsson óskar jafnframt eftir yfirferð í bæjarráði um stöðu fyrirhugaðra framkvæmda við Fjörð.
Ráðningarsamningur bæjarstjóra. Til afgreiðslu.
Viðreisn leggur til að laun bæjarstjóra fylgi launum almenns ráðherra sem er í dag með þingfararkaupi 1.826.273. Það er mikilvægt að Hafnarfjarðarbær hafi skýr viðmið þegar laun bæjarstjóra eru ákvörðuð. Einnig er lagt til að föst upphæð ökutækjastyrks verði afnumin en þess í stað greitt skv raunverulegum akstri bæjarstjóra.
Framangreind tillaga er felld þar sem fulltrúar meirihluta greiða atkvæði gegn tillögunni en fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við atkvæðagreiðslu.
Fulltrúi Viðreisnar leggur auk þess til við bæjarráð að gerð verði starfslýsing á starfi bæjarstjóra þar sem starfssvið verði skilgreint. Einnig verði réttindi og skyldur skilgreindar. Það er mikilvægt að æðsti stjórnandi Hafnarfjarðarbæjar sé með vel skilgreinda starfslýsingu og að mörk valdheimilda séu skýr. Það mun auka gagnsæi stjórnsýslunnar og gera hana faglegri. Viðreisn leggur til að fulltrúar allra flokka tilnefni fulltrúa í nefnd sem myndi gera tillögur að starfslýsingu.
Er þá tekin til afgreiðslu ráðningarsamningur bæjarstjóra.ráðningarsamningurinn samþykktur með þremur atkvæðum frá fulltrúum meirihluta en fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá.
Fulltrúar Samfylkingarinnar koma að svohljóðandi bókun:
Ráðning bæjarstjóra er á ábyrgð meirihluta bæjarstjórnar, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, með stuðningi fulltrúa Viðreisnar. Samfylkingin sat þar hjá. Sama gildir um tillögu um kaup og kjör bæjarstjóra. Ábyrgð á þeirri niðurstöðu er eftir sem áður á hendi meirihluta bæjarstjórnar.
Lagt fram erindi dags. 23.júni sl. frá Skátafélaginu Hraunbúum er varðar heimtaug og spennistöð.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar hjá umhverfis- og framkvæmdarsviði.
3.liður úr fundargerð hafnartjórnar frá 15.júní sl.
Lögð fram drög að lóðarleigusamningi við HS veitur vegna nýrrar lóðar Óseyrarbraut 20H, sem var stofnuð úr lóðinni nr. 20 við Óseyrarbraut. HS mun kaupa byggingarréttinn á lóðinni af Hlaðbæ Colas.
Hafnarstjórn samþykkir lóðaleigusamninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar í bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir lóðaleigusamning við HS veitur.
Lögð fram drög að nýjum lóðarleigusamningi
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðaleigusamning.
Lagt fram kauptilboð ásamt söluyfirliti.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í Sólvangsveg 3.
Bæjarráð samþykkir kauptilboð í Hringhamar 7.
6.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 15.júní al.
Fjölskylduráð samþykkir að fela sviðstjóra að óska eftir lóð fyrir búsetukjarna í Áslandi 4 og á Öldugötu í samræmi við niðurstöðu skýrslu starfshóps.
Lagt fram bréf frá sviðsstjóra fjölskyldu- og barnamálasviðs.
Erindi vísað í skipulags- og byggingaráðs til nánari skoðunar og úrvinnslu
Ársreikningur stjórnar samtaka orkusveitarfélaga 2021 lagður fram
1. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 28.júní sl. Lögð fram að nýju umsókn Eggerts Jónassonar f.h. Þarfaþing hf. um deiliskipulag lóðarinnar. Tillagan gerir ráð fyrir 5 hæða fjölbýlishúsi með verslun og þjónustu á jarðhæð og allt að 40 íbúðum á 2-5 hæð. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi, fyrir Áshamar 50, reit 6a, og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar staðfestir afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Bæjarráð samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Áshamar 50, reit 6a.
4.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 28.júní sl. Lagt fram til samþykktar vegna athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun. Brugðist hefur verið við þeim. Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytingu á deiliskipulagi Selhrauns suður og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar tekur undir afgreiðslu skipulags- og byggingaráðs. Bæjarráð samþykkir breytingu á deiliskipulagi Selhrauns suður.
8.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 28.júní sl. Nýjar og breytar teikningar lagðar fram þar búið er að fækka bílastæðum ofan jarðar og leiksvæði hefur verið flutt til. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi, fyrir Hringhamar 10, reit 20b, og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar tekur undir afgreiðslu skipulags- og byggingaráðs. Bæjarráð samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hringhamar 10, reit 20B.
Tilnefning.
Afgreiðslu frestað.
Tilnefningar í starfshóp
Viðreisn leggur fram tillögu um gerð heildstæðrar hjólreiðaáætlunar fyrir Hafnarfjarðarbæ. Heildstæð hjólreiðaáætlun inniheldur eftirfarandi atriði: Stefnumótun og sýn fyrir Hafnarfjörð sem Hjólreiðabæ Áætlun um uppbyggingu stofnstíganets hjólreiða og uppbyggingu hjólaleiða almennt Áætlun um hjólastæði í bænum Áætlun um hjólaþjónustu í bænum Aðgerðaráætlun Fjárfestingaáætlun Kynningaráætlun til að auka hlutdeild hjólreiða
Bæjarráð tekur jákvætt í tillöguna og vísar til skipulags- og byggingarráðs til nánari úrvinnslu.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 15.júní sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 22.júní sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 13.júní sl.
Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 15.júní sl.
Lögð fram fundargerð fjölskylduráðs frá 15.júní sl.
Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 14.júní sl.
Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 28.júní sl.
Lögð fram fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 15.júní sl.