Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Margrét Gauja Magnúsdóttir forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði honum.
Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 23.01.13 og 30.01.13. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$$line$Lagt fram.$line$
Lagt fram
9.liður úr fundargerð SBH frá 5.febr. sl.$line$ Teknar fyrir skipulagstillögur sem auglýstar voru skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, en ekki tókst að birta á tilskildum tíma í b-deild Stjórnartíðinda skv. 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða eftirtaldar tillögur:´$line$Mál nr. 0902053 – Hörðuvellir/Reykdalsreitur, Ljósatröð, deiliskipulag dælustöð, mál 0902053. Samþykkt 02.11.10. $line$Mál nr. SB040124 – Sléttuhlíð deiliskipulag, textabreyting í skilmálum. Samþykkt 10.11.10.$line$Mál nr. 0712080 – Miðbær-Hraun deiliskipulag. Samþykkt 19.12.11.$line$Mál nr. SB030312. Jarðvegstippur deiliskipulag. Samþykkt 26.01.11.$line$ $line$ Skipulags- og byggingarráð samþykkir að framangreindar tillögur verði auglýstar að nýju skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010, og jafnframt verði þeim sem athugasemdir gefinn kostur á að láta þær athugasemdir gilda ef þeir óska þess.$line$$line$Þar sem ekki tókst að birta þessi skipulög í b-deild Stjórnartíðinda á tilskildum tíma skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 gerir Skipulags- og byggingarráð eftirfarandi tillögu til Bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að eftirfarandi deiliskipulagstillögur verði auglýstar að nýju samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: “Hörðuvellir/Reykdalsreitur, Ljósatröð, deiliskipulag dælustöð”, sem samþykkt var 02.11.10., “Sléttuhlíð, deiliskipulag, textabreyting í skilmálum”, sem samþykkt var 10.11.10, “Miðbær-Hraun, deiliskipulag”, sem samþykkt var 19.12.11, og “Jarðvegstippur, deiliskipulag”, sem samþykkt var 26.01.11.”$line$
Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.$line$$line$Forseti bar fram tillögu þess efnis og hver liður yrði borinn upp sérstaklega og var ekki gerði athugasemd við það.$line$$line$Allir liðir fyrirliggjandi tillögu voru samþykktir með 11 atkvæðum og tillagan í heild þannig samþykkt..
Fundargerð fjölskylduráðs frá 6.febr.sl.$line$a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 28.jan.sl.$line$Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 6.febr.sl.$line$Fundargerð fræðsluráðs frá 4.febr.sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 7.febr. sl.$line$a. Fundargerðir hafnarstjórnar frá 22.jan. og 1.febr. sl.$line$b. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 20.des og 17.jan. sl.$line$c. Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 14.jan og 4.febr. sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 5.febr. sl.
Kristinn Andersen kvaddi sér hljóð vegna fundargerðar bæjarráðs frá 7. febrúar sl. 5. liðar Sólvangur, einnig vegna liða 9. og 10. Frumvörp til laga, umsagnir. Einnig vegna fundargerðar hafnarstjórnar 3. lið fundargerðar frá 1. febrúar sl. $line$Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari, Eyjólfur Sæmundsson koma einnig að andsvari við ræðu Kristins Andersen, Kristinn Andersen svaraði andsvörum. Eyjóflur Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni, Kristinn Andersen svaraði andsvari öðru sinni, Eyjólfur Sæmundsson kom að stuttri athugasemd.$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir tók þessu næstu til máls vegna 5.liðar fundargerðar bæjarráðs, Sólvangur og einnig vegna 3. liðar liðar, Hämeenlinna vinarbæjarmót, sömu fundargerðar, jafnframt vegna 6. liðar fundargerðar fræðsluráðs, Skólaskipan í Hafnarfirði, frá 4. febrúar sl., Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari, Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Eyjólfur Sæmundsson kom að stuttri athugasemnd, Rósa Guðbjartsdóttir kom einnig að stuttri athugasemd, Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari við upphaflega ræðu Rósu Guðbjartsdóttur.$line$$line$Eyjólfur Sæmundsson tók þessu næst til máls vegna 6. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 4. febrúar sl.,Skólaskipan í Hafnarfirði, sem og 1.liðar fundargerðarinnar,Samningi um ræstingu sagt upp auk 5. liðar fundargerðar bæjarráðs,Sólvangur, Rósa Guðbjartsdóttir koma að andsvari, Eyjólfur svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd, Eyjólfur Sæmundsson kom einnig að stuttri athugasemd.$line$$line$Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri tók til máls vegna 5. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 7. febrúar sl., Sólvangur ályktun, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við upphaflega ræðu bæjarstjóra, bæjarstjóri Guðrún Ágústs Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Geir Jónsson kom einnig að andsvari við upphaflegu ræðu bæjarstjóra.$line$$line$Lúðvík Geirsson tók síðan til máls einnig vegna 5. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 7. febrúar sl, Sólvangur ályktun, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari, Lúðvík Geirsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari við upphaflegu ræðu Lúðvík Geirssonar, Lúðvík Geirsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Lúðvík Geirsson svaraði andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdótir kom að stuttri athugasemnd.$line$$line$Sigríður Björk Jóndóttir tók einnig til máls vegna 5. liðar fundargerð bæjarráðs frá 7. febrúar sl, Sólvangu ályktun.$line$$line$Valdimar Svavarsson tók þessu næstu til máls vegna 11. liðar fundargerðar skipulags- og byggingarráðs frá 5. febrúar sl., Vellir 7. áfangi deiliskipulagsvinna, einnig vegna 6. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 4. febrúar sl.,Skólaskipan í Hafnarfirði og 5. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 7. febrúar sl., Sólvangur ályktun.$line$$line$Undir ræðu Valdimars tók 1. varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins.$line$$line$Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við ræðu Valdimars Svavarssonar, Valdimar Svavarsson svaraði andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdótir bæjarstjóri koma að andsvari öðru sinni, Valdimar Svavarsson svaraði andsvari öðru sinni, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri kom að stuttri athugasemdn, Valdimar Svavarsson kom einnig að stuttri athugasemd, Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari við upphaflegu ræðu Valdimars Svavarssonar, Valdimar svaraði andsvari, Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Valdimar Svavarsson svaraði andsvari öðru sinni, Sigríður Björk Jónsdóttir kom að stuttri athugasemd, Valdimar Svavarsson kom einnig að stuttri athugasemd.$line$$line$Helga Ingólfsdóttir tók þá til máls vegna 2. liðar fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 6. febrúar sl., Strætó bs leiðarkerfi, einnig vegna 3. liðar fundargerðarinn, Móttökustöð Sorpu bs Breiðhellu, framtíðarsýn.$line$$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju undir ræðu Helgu Ingólfsdóttur.$line$$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari við ræðu Helgu Ingólfsdóttur og tók Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan, Margrét Gauja Magnúsdóttir tók síðan við stjórn fundarins að nýju.$line$$line$Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs og var fundi slitið klukkan 16:45.$line$$line$