Bæjarstjórn

27. mars 2013 kl. 14:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1700

Mætt til fundar

  • Margrét Gaua Magnúsdóttir forseti
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Sigríður Björk Jónsdóttir aðalmaður
  • Valdimar Svavarsson aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen aðalmaður
  • Geir Jónsson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri
  • Guðfinna Guðmundsdóttir varamaður
  • Hörður Þorsteinsson varamaður

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Allir aðalbæjarfulltrúar mættir nema Eyjólfur Sæmundsson og Lúðvík Geirsson. Í þeirra stað mættu Guðfinna Guðmundsdóttir og Hörður Þorsteinsson. Gengið til dagskrár.

Ritari

  • Anna Jörgensdóttir hdl. ritari bæjarstjórnar

Forseti bæjarstjórnar, Margrét Gauja Magnúsdóttir, setti fundinn og stjórnaði honum. Allir aðalbæjarfulltrúar mættir nema Eyjólfur Sæmundsson og Lúðvík Geirsson. Í þeirra stað mættu Guðfinna Guðmundsdóttir og Hörður Þorsteinsson. Gengið til dagskrár.

  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 06.03.13 og 14.03.13. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$ $line$ Lagt fram.$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

    • 1011383 – Kirkjugarður stækkun til norðurs deiliskipulag

      8.liður úr fundargerð SBH frá 19.mars sl.$line$Lögð fram tillaga Landslags ehf að deiliskipulagi fyrir stækkun kirkjugarðsins dags. 14.03.2013$line$ $line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagið verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og að haldinn verði kynningarfundur um skipulagið skr. 40. grein sömu laga.$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi fyrir stækkun kirkjugarðs til norðurs verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1202338 – Bæjarhraun, hjólastígur

      9.liður úr fundargerð SBH frá 19.mars sl.$line$Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs fyrir stíginn dags. 13.03.2013.$line$ $line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skipulagið verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og að haldinn verði kynningarfundur um skipulagið skr. 40. grein sömu laga.$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi fyrir hjólastíg við Bæjarhraun verði auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”$line$

      Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. Þá Helga Ingólfsdóttir. Fyrsti varaforseti, Kristinn Andersen, tók við fundarstjórn. Margrét Gauja Magnúsdóttir tók til máls. Forseti tók við fundarstjórn að nýju. $line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1303195 – Framhaldsskóli, ósk um viðræður

      4.liður úr fundargerð FRÆH frá 18.mars sl.$line$Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram eftirfarandi tillögu:$line$$line$Fræðsluráð leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að óska eftir viðræðum nú þegar við mennta- og menningarmálaráðuneytið um byggingu nýs framhaldsskóla í Hafnarfirði.”$line$Eyjólfur Sæmundsson (sign)$line$Gestur Svavarsson (sign)$line$Helena Mjöll Jóhannsdóttir (sign)$line$ Tillagan var samþykkt með fimm samhljóða atkvæðum.$line$

      Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls. Þá Helga Ingólfsdóttir, Kristinn Andersen. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Kristinn Andersen svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við fyrri ræðu Kristins Andersen. Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að stuttri athugasemd. Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls. Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari. Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum.

    • 1301059 – Fundargerðir 2013, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð fræðsluráðs frá 18.mars sl.$line$Fundargerð bæjarráðs frá 21.mars sl.$line$a. Fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 17.janúar sl.$line$b. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 7.og 12.mars sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 19.mars sl.$line$Fundargerð fjölskylduráðs frá 20.mars sl.$line$a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 11.mars sl.$line$Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 12.mars sl.$line$a.Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 11.mars sl.$line$b. Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 30.nóv., 25.jan.,1. og 8.mars sl.

      Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls undir 6. lið – Vellir 7. áfangi, deiliskipulagsvinna – í fundargerð skipulags- og byggingarráðs frá 19. mars sl. Sigríður Björk Jónsdóttir og Kristinn Andersen tóku til máls undir sama lið. Sigríður Björk Jónsdóttir kom að andsvari við fyrri ræðu Kristins Andersen. Valdimar Svavarsson tók til máls undir fundarsköpum. Helga Ingólfsdóttir tók til máls undir 2. lið – Viðhorfskönnun meðal foreldra leikskólabarna 2013 – í fundargerð fræðsluráðs frá 18. mars sl. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari. Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari.$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Sjálfstæðisflokks:$line$$line$”Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsa yfir vonbrigðum með að hafa ekki fengið að leggja fram tillögu um skipulagsmál í Skarðshlíð (Völlum 7) og forgangsröðun framkvæmda eins og til stóð. Á næstunni munu sjálfstæðismenn leggja til að fyrirhugaðri úthlutun lóða í nýju hverfi Skarðshlíð verði frestað í bili þar sem enn vanti a.m.k. 2 milljarða króna í uppbyggingu hverfisins. Nú þegar er nægilegt magn íbúða í byggingu sem talið er að anni eftirspurn á komandi 3-4 árum. Lögð verði áhersla á að þétta byggð næstu árin, ljúka frágangi í nýbyggðum hverfum sem fyrst og að sett verði í forgang að bæta vegsamgöngur að nýjustu íbúða- og atvinnusvæðum bæjarins.”$line$$line$Valdimar Svavarsson (sign), Rósa Guðbjartsdóttir (sign), Kristinn Andersen (sign),$line$Geir Jónsson (sign), Helga Ingólfsdóttir (sign).$line$$line$Gert stutt fundarhlé.$line$$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að svohljóðandi bókun f.h. fulltrúa Vinstri grænna og Samfylkingar:$line$$line$”Samkvæmt 11. gr. samþykkta Hafnarfjarðarkaupstaðar skulu bæjarfulltrúar tilkynna bæjarstjóra skriflega til óskir sínar um að mál séu tekin á dagskrá bæjarstjórnar og senda nauðsynleg fylgigögn kl. 14:00 á föstudegi fyrir reglulegan fundartíma bæjarstjórnar á miðvikudegi kl. 14:00. Engar óskir þess efnis bárust frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins áður en dagskrá bæjarstjórnar var send út að þessu sinni.”$line$$line$Margrét Gauja Magnúsdóttir (sign), Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir (sign), Gunnar Axel Axelsson (sign),$line$Guðfinna Guðmundsdóttir (sign), Sigríður Björk Jónsdóttir (sign), Hörður Þorsteinsson (sign). $line$

Ábendingagátt