Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 06.11.13 og 13.11.13. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.$line$$line$Lagt fram.$line$
Lagt fram til kynningar.
Í upphafi fundar afhentu fulltrúar nemenda og starfsfólks framhaldsskólanna í Hafnarfirði bæjarstjórn áskorun vegna stöðu skólanna og þar sem jafnframt er boðað til borgarafundar vegna þessa.$line$$line$
Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls og kynnti ofangreinda áskorun. $line$$line$Jafnframt lagði bæjarstjóri fram svohljóðandi ályktunartillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs:$line$$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir niðurskurði í fjárveitingum til Flensborgarskólans og Iðnskólans í Hafnarfirði.$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á mennta- og menningarmálaráðherra að endurskoða fjárframlög til Flensborgarskólans og Iðnskólans í Hafnarfirði til að tryggja skólunum eðlilegan rekstrargrundvöll. Krafa um tafarlausa leiðréttingu á rekstrarhalla skólanna er harkaleg þegar horft er til raunverulegrar fjárhagsþarfar þessarra tveggja menntastofnana og er víst að ef miðað er við núverandi fjárveitingar til skólanna samhliða kröfu um leiðrettingu rekstrarhalla á svo skömmum tima sem hér um ræðir, mun það skerða til mikilla muna möguleika ungmenna í Hafnarfirði til að velja sér nám sem þeim hentar. Það ýtir svo enn og aftur undir enn frekara brotthvarf ungmenna úr námi í framhaldsskólum. Uppbygging aukins námsvals og sérhæfingar skólanna, svo sem fjölmiðladeildar Flensborgar undanfarin fimm ár, er þannig að engu höfð.”$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir tók þessu næst til máls, síðan Eyjólfur Sæmundsson, þá Rósa Guðbjartsdóttir, Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari við ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari, Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari öðru sinni, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari öðru sinni, Eyjólfur Sæmundsson kom að stuttri athugasemd, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom einnig að athugasemd við upphaflegri ræðu Rósu Guðbjartsdóttur, Rósa Guðbjartsdóttir svaraði andsvari.$line$Næstur tók til máls Geir Jónsson, Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari við ræðu Geirs Jónssonar, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom einnig að andsvari við ræðu Geirs Jónssonar, Gunnar Axel Axelsson kom sömuleiðis að andsvari við ræðu Geirs Jónssonar.$line$Þá tók til máls Kristinn Andersen og tók Sigríður Björk Jónsdóttir við stjórnar fundarins, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari, Kristinn Andersen svarið andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom einnig að andsvari, Kristinn Andersen svarið andsvari og tók síðan við stjórn fundarins að nýju.$line$$line$Forseti bar síðan upp framkomna ályktunartillögu og samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar tillöguna með 6 atkvæðumm.$line$$line$Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá og lögð fram svohljóðandi bókun:$line$”Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa áhyggjur af þröngri fjárhagsstöðu framhaldsskóla í Hafnarfirði og hafa tekið undir hvatningarorð til ráðherra um að beita sér fyrir því að skólunum verði gert fjárhagslega kleift að sinna nemendum sínum í samræmi við lög og reglugerðir. En fullyrðingar um niðurskurð til skólanna reynast hins vegar ekki réttar þegar frumvarp til fjárlaga er skoðað. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir hækkun á framlagi til Flensborgarskóla úr 611.7 milljónum króna á yfirstandandi ári í 629 milljónir króna á komandi fjárlagaári. Gert er ráð fyrir óbreyttum nemendafjölda og stafar hækkunin af verðlagsuppfærslu. $line$Vandinn sem Flensborg glímir við felst í því að ekki hefur tekist að laga reksturinn að fjárheimildum skólans á undanförnum árum og uppsafnaður rekstrarhalli hefur hlaðist upp. Stjórnendur skólans eru sjálfir að reyna að bregðast við því með aðgerðum sem m.a. felast í sársaukafullum uppsögnum á starfsfólki. Vandi Iðnskólans er af öðrum toga en þar hefur nemendafjöldi verið talsvert undir forsendum fjárlaga. Einnig höfðu framlög til húsaleigu verið ofáætluð á yfirstandandi fjárlagaári. $line$Því eru fullyrðingar fulltrúa meirihlutans í bæjarstjórn um niðurskurð til þessara skóla ekki réttar. Hefði bæjarfulltrúum Samfylkingar og VG verið nær að líta sér nær og bregðast við á ríkisstjórnartímabili eigin flokka þegar fjallað er um núverandi stöðu þessara skóla. $line$Stjórnendum, starfsmönnum og nemendum skólanna er annars óskað velfarnaðar í mikilvægum störfum sínum og námi um ókomna tíð. $line$Lagt er til að stofnaður verði starfshópur um framtíð framhaldsskóla í Hafnarfirði þar sem lögð verði áhersla á að styrkja framhaldsskóla bæjarins til frambúðar og sú vinna verði hafin sem fyrst og unnin í samráði við alla hagsmunaaðila.”$line$$line$Gert var stutt fundarhlé og síðan tekinn fyrir næsti dagskrárliður.
2. liður úr fundargerð SBH frá 19.nóv. sl.$line$Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu. Lagt er til að landnotkun verði breytt úr blandaðri notkun opinberar stofnanir og opið svæði til sérstakra nota í athafnasvæði, og tengist það þá svæðinu Selhraun norður. Skipulagslýsing var samþykkt af bæjarstjórn og hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingunni dags. 7. október 2013. Haldinn var kynningarfundur á skipulagstillögunni 18.11.13.$line$$line$$line$Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að aðalskipulagsbreytingunni verði auglýst skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu dags. 7.10.2013 verði auglýst samkvæmt 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”$line$
Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls. $line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
Kosning 1 varamanns í menningar- og ferðamálanefnd.$line$$line$
Tilnefndur var Þorbjörn Rúnarsson Lækjargötu 30.$line$$line$Fleiri tilnefningar komu ekki fram og skoðast hann réttkjörinn.
12. liður úr fundargerð BÆJH frá 21.nóv. sl.$line$Lögð fram gjaldskrá Slökkviliðsins fyrir árið 2014$line$ $line$Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:$line$”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykktir fyrirliggjandi gjaldskrártillögu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.”$line$
Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls, síðan Ólafur Ingi Tómasson, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
Kynnt ákvörðun innanríkisráðneytis um framlenginu á fresti til að ákveða útsvarshlutfalls ársins 2014 til 30. desember 2013.
Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls og lagði til að afgreiðslu álagningar úrsvars væri frestað.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum að fresta afgreiðslu þessa máls.
Bæjarfulltrúar Sjálfsstæðisflokkins lögðu fram eftirfarandi tillögu:$line$”Gerð verði úttekt á ávinningi af áframhaldandi eignarhlut Hafnarfjarðarbæjar í HS-veitum annars vegar og hagkvæmni af hugsanlegri sölu hins vegnar.”
Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls, þá Gunnar Axel Axelsson sem lagði fram svohljóðandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs: $line$$line$”Eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar í HS veitum endurspeglar virði þess orkudreifinets sem sveitarfélagið lagði inn í fyrirtækið á sínum tíma og ætlaði því að sjá um að reka í þágu heimila og fyrirtækja í Hafnarfirði. Um þennan eignarhlut Hafnarfjarðarbæjar í veitufyrirtækinu hefur hingað til ekki ríkt sérstakur ágreiningur. Þvert á móti hefur verið samstaða um það sjónarmið að ef sveitarfélagið ætli að eiga í samstarfi við önnur sveitarfélög um rekstur almenningsveitna þá sé það grundvallaratriði að bærinn eigi að því samstarfi eðlilega aðkomu og hlutdeild. Í hlutafélagi verður það varla gert án beinnar eignaraðildar.$line$Um þetta fyrirkomulag hefur ríkt góð sátt, enda flestum ljóst mikilvægi þess að standa vörð um hag heimila og fyrirtækja sem þurfa að treysta á öruggt og hagkvæmt dreifikerfi orku.$line$Bæjarfulltrúar Samfylkingar og vinstri grænna hafna því framkominni tillögu sem miðar að sölu hlut bæjarins í Hs veitum og ítreka þá afstöðu sína að hann eigi að vera áfram í samfélagslegri eigu.”$line$$line$Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Gunnar Axel Axelssonar svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni.$line$$line$Eyjólfur Sæmundsson tók þessu næst til máls, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvar öðru sinni, Eyjólfur Sæmundsson svaraði andsvari öðru sinni.$line$$line$Þá tók Helga Ingólfsdóttir til máls, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari, Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni, Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari öðru sinni.$line$$line$Bæjarstjórn Hafnarfjarðar felldi fyfirliggjandi tilllögu með 6 atkvæðum gegn 5.$line$$line$Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs vísa til bókunar sinnar.$line$$line$Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:$line$”Það er mjög miður að fulltrúar meirihlutans hafni því að taka málið til efnislegrar umfjöllunar í bæjarráði.”
Fundargerð bæjarráðs frá 21.nóv. sl.$line$a. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 8.nóv. sl.$line$b. Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15.nóv. sl.$line$c. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 11.nóv. sl.$line$Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 19.nóv. sl.$line$Fundargerð fjölskylduráðs frá 20.nóv. sl.$line$a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 11.nóv. sl.$line$Fundargerð fræðsluráðs frá 18.nóv. sl.$line$Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 20.nóv. sl.$line$a. Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 30.okt. sl.$line$b. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 11.nóv. sl.
Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 2. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 21. nóvember sl., Landgræðsluverðlaun 2013.$line$$line$Geir Jónsson kvaddi sér hljóðs vegna 5. liðar fundargerðar fjölskylduráðs frá 20. nóvember sl., Könnun á leiguíbúðum sveitarfélaga 2012. Þá tók Gunnar Axel Axelsson til máls vegna sama liðar, Geir Jónsson kom að andsvari.$line$$line$Helga Ingólfsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 8. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 21. nóvember sl., Jafnlaunastaðall tilraunaverkefni.$line$$line$Ólafur Ingi Tómasson kvaddi sér hljóðs vegna 1. liðar fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 20. nóvember sl., Hleðslustaurar fyrir rafmagnsbíla.$line$$line$Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 12. liðar fundargerðar bæjarráðs 21. nóvember sl., Fundargerðir Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis, Samningur við Sjúkratryggingar Íslands vegna sjúkraflutninga, sem og 8. liðar sömu fundargerðar, Jafnlaunastaðall tilraunaverkefni, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari varðandi jafnlaunastaðal, bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Helga Ingólfsdóttir kom að andsvari öðru sinni. Ólafur Ingi Tómasson koma að andsvari við upphaflegri ræðu bæjarstjóra Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur varðandi sjúkraflutninga.$line$$line$Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.