Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Auk ofangreindra bæjarfulltrúa sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.[line][line]Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar, nema Kristinn Andersen í hans stað mætti Kristín María Thoroddsen, varabæjarfulltrúi. [line][line]Áður en gengið var til dagskrár bar forseti upp afbrigði þess efnis að tekið yrði á dagskrá mál no. 1406220, kosning forseta bæjarstjórnar, varaforseta og skrifara 2014-2018.[line]Samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.[line][line]Færa lið nr. 9 á dagskrá og verður nr. 4 á dagskránni. Samþykkt með 11. samhljóða atkvæðum.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Kristjánsdóttir setti fund og stjórnaði honum.
Tekin er fyrir tilnefning 1.varaforseta.
Adda María Jóhannsdóttir, Skógarhlíð 7, var kosin 1.varaforseti bæjarstjórnar með 11 samhljóða atkvæðum.
Áður á dagskrá bæjarstjórnar 25.nóv. sl. Áður á dagskrá bæjarstjórnar 11.nóv. sl. 2.liður úr fundargerð BÆJH frá 5.nóv. sl. Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður mætti til fundarins. Til afgreiðslu hvort gera skuli breytingar á lögreglusamþykkt fyrir Hafnarfjarðarkaupstað.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að eftirfarandi breyting verði gerð á lögreglusamþykkt fyrir Hafnarfjarðarkaupstað: 1. ml.3. mgr. 20. gr. hljóði svo: „Bannað er að leggja ökutæki á gangstéttum, snúningshausum í botngötum, opnum svæðum, óbyggðum lóðum og stígum.“
Kristinn Andersen tekur til máls. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
Fyrri umræða. Bæjarstjórn samþykkir að vísa breytingu á lögreglusamþykktinni til síðari umræðu með 11 samhljóða atkvæðum
Samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.
6.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.des. sl. Lagt fram bréf dags. 20.nóv. sl. frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þar sem fram kemur að stjórn slökkviliðsins samþykkti á fundi sínum þ. 20.nóv. sl. meðfylgjandi gjaldskrá.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:“Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nýrri gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.“
Tillaga að álagningu fasteignagjalda árið 2016 sbr. tillögu að gjaldskrá 2016.
Samþykkt með 7 greiddum atkvæðum. 4 sátu hjá.
7.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.des. sl. Lögð fram tillaga að gjaldskrá 2016.
Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs kom á fundinn.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:“Bæjarstjórn samþykkir tillögu að nýjum gjaldskrám 2016 með breytingu í samræmi við afgreiðslu fjölskylduráðs frá 20. nóvember 2015.“
Bæjarfulltrúar Samfylkingar sátu hjá.
Til máls tekur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Helga Ingólfsdóttir. Andsvari svarar bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Einar Birkir Einarsson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Til andsvars öðru sinni kemur bæjarfulltrúi Einar Birkir Einarsson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti tók við fundarstjórn. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Guðlaug Kristjánsdóttir. Bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur bæjarfulltrúi Guðlaug Kristjánsdóttir. Bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson kom til andsvars. Guðlaug Kristjánsdóttir forseti tók við fundarstjórn.
Gjaldskrá samþykkt með 7 samhljóða greiddum atkvæðum. 4 sátu hjá.
8.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.des. sl. Tekið fyrir að nýju.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:“Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða þjónustugjaldskrá skipulags- og byggingafulltrúa“.
Bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson tók til máls. Til máls tekur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson. Næstur tekur til máls Ófeigur Friðriksson.
Samþykkt með 11 samhljóða greiddum atkvæðum.
14.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.des. sl. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs kom á fundinn.
Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun vegna aksturþjónustu fatlaðs fólks.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn:“Bæjarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks.“
Samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum
12.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.des. sl. Lögð fram umsögn Öldungaráðs. Lögð fram tillaga að reglumum tekjutengdan afslátt fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega 2016.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri endurmeti forsendur um tekjuviðmið og málið verði sett á dagskrá bæjarstjórnar.
Bæjarfulltruar Samfylkingar og VG leggja fram svohljóðandi bókun: Tekjuviðmið vegna afsláttar fasteignaskatta elli- og örorkulífeyrisþega voru eingöngu hækkuð um 2.7% á árinu 2015 en þjóðhagsspá gerir ráð fyrir að laun hækki um 7.1% á árinu. Árið áður voru viðmiðin hins vegar hækkuð um 6%, sem var í samræmi við þróun launa. Frá því að nýr meirihluti tók við hafa tekjuviðmiðin þannig lækkað að raungildi og þeim sem eiga rétt til afsláttar fækkað samsvarandi. Verði tillaga að tekjuviðmiðum næsta árs samþykkt óbreytt í bæjarstjórn munu viðmiðin þannig hafa hækkað um 7,31% frá árinu 2013 á meðan laun hafa hækkað um rúm 15%. Fulltrúar Samfylkingar og VG leggja til að viðmiðin verði látin fylgja launaþróun og hækkun síðasta árs leiðrétt til samræmis við raunverulega launaþróun.
Bæjarfulltrúi Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Til máls tók bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti tók við fundarstjórn. Guðlaug Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi tók til máls. Forseti Guðlaug Kristjánsdóttir tók við fundarstjórn. Bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson tekur til máls öðru sinni. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar úr stóli forseta. Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson um fundarstjórn forseta. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar úr stóli forseta. Gunnar Axel Axelsson tekur til máls. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar úr stóli forseta. Gunnar Axel Axelsson tekur til máls.
Gert fundarhlé kl. 18:00, fundur hefst aftur kl. 18:18.
Bæjarstjórn leggur fram sameiginlega svohljóðandi tillögu um reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorku- lífeyrisþegum í Hafnarfirði 2016: 1. gr. Tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum sem eiga lögheimili í Hafnarfirði er veittur afsláttur af fasteignaskatti samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar ár hvert og reglum þessum, sbr. heimild í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. 2. gr. Rétt til afsláttar eiga íbúðareigendur í Hafnarfirði sem búa í eigin íbúð og a) eru 67 ára á árinu eða eldri b) hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar 2016. Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi. c) hafa ekki leigutekjur af viðkomandi húsnæði d) hafa ekki fullvinnandi einstakling/einstaklinga aðra en maka búsetta á heimilinu. Afsláttur nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi sannarlega býr í. 3. gr. Hjón og fólk í skráðri sambúð fær fullan afslátt þó einungis annar aðilinn uppfylli skilyrði 2. gr. Ef um fleiri en einn íbúðareiganda er að ræða að eign, sem ekki uppfylla skilyrði 1. mgr., er veittur afsláttur til þeirra sem uppfylla skilyrði 2. gr., í samræmi við eignarhluta þeirra. Verði slit á hjónabandi eða sambúð þá eiga aðilar máls rétt á öðru hvoru eftirtöldu frá og með þeim tíma sem lögskilnaður eða sambúðarslit eru skráð. a. Að njóta óbreytts afsláttar út álagningarárið óski þeir þess. b. Að vera meðhöndlaðir sem einstaklingar frá og með þeim tíma óski þeir þess, enda geti þeir með fullnægjandi hætti sýnt aðgreindar sértekjur sínar sbr. 4. gr. 4. gr. Aflsláttur er tekjutengdur. Afsláttur er hlutfallslegur og miðast við tekjur síðastliðins árs samkvæmt skattframtali. Við útreikning afsláttar í upphafi árs 2016 er stuðst við skattaframtal ársins 2014 en afslátturinn er síðan endurskoðaður í ágúst 2016 eftir að skattaframtal ársins 2015 liggur fyrir. Leiði endurskoðunin til breytinga á afsæltti þá breytist hann vegna þeirra greiðslana sem eftir eru á árinu. Ekki er endurreiknað vegna greiðslna til og með ágúst. Til tekna teljast bæði launatekjur (reitur 2.7. á skattframtali) og fjármagntekjur (reitur 3.10. á skattframta). Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna fólks í skráðri sambúð. Tekjumörk vegna afsláttarins 2016 eru eftirfarandi (miðað er við tekjur ársins 2014 til og með águst 2016 og tekjur 2015 eftir það): Tekjur einstaklinga Tekjur hjóna/sambýlisfólks Afsláttur Frá Til Afsláttur Frá Til 100 % 0 2.990.000 100 % 0 4.174.000 75% 2.990.001 3.392.000 75 % 4.174.001 4.634.000 50 % 3.392.001 3.680.000 50% 4.634.001 5.036.000 25% 3.680.001 3.909.000 25% 5.036.001 5.381.000 5. gr. Hafi orðið veruleg breyting á högum umsækjanda er heimilt að víkja frá 2. gr. þessara reglna varðandi búsetu í íbúð og viðmið um tekjumörk sl. árs.og vegna andláts maka Hér er einkum átt við sérstök tilvik, s.s. : a) Þegar maki hefur fallið frá á árinu og tekjur lækkað verulega b) Ef um skyndilega örorku er að ræða sem hefur veruleg áhrif til lækkunar tekna. 6. gr. Tekjumörk breytast árlega í janúar í samræmi við launavísitölu viðmiðunarárs (í fyrsta skipti er viðmiðunarárið 2014).
16.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.des. sl. Tillaga um að tekið verði 3 milljarða króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi bókun:
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 2.000.000.000 kr. til 15 ára og 1.000.000.000 kr. til 20 ára í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna eldri framkvæmdalán hjá sveitarfélaginu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Haraldi Líndal Haraldsyni, kennitala 170852-3469, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Rósa Guðbjartsdóttir tók til máls. Gunnar Axel Axelsson tók til máls.
Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 1.des. sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 2.des. sl. a. Fundargerð stjórnar STRÆTÓ bs. frá 13.nóv. sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 2.des.sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 30.nóv. sl. Fundargerð bæjarráðs frá 3.des. sl. a.Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 20.nóv. sl.
1.liður úr fundargerð UMFRAM frá 2.des. sl. Fjárfestingaáætlun tekin fyrir að nýju.
Fulltrúar Samfylkingar og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna leggja fram eftirfarandi bókun: „Samkvæmt fjárfestingaáætlun á að hefja undirbúning að byggingu á íþróttahúsi á Ásvöllum strax á næsta ári. Áætlaðar eru 50 milljónir í það verkefni árið 2016 og stefnt er að því að húsið verði tekið í notkun árið 2017. Heildarkostnaður við þessa framkvæmd verður væntanlega á bilinu 350 – 400 milljónir en ekkert kostnaðarmat liggur þó fyrir. Á sama tíma leggur meirihlutinn til mikinn niðurskurð á fjármagni til leik- og grunnskólastarfs sem meðal annars birtist í lokun leikskóladeilda en einnig eru boðaðar hækkanir á matarverði til eldri borgara og hækkanir á húsleigu til öryrkja svo eitthvað sé nefnt. Fulltrúar minnihlutans í Umhverfis- og framkvæmdaráði gagnrýna þessa forgangsröðun verkefna af hálfu meirihlutans og leggja til að frekar verði forgangsraðað í þágu grunnþjónustu í bænum.“
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar leggja fram eftirfarandi bókun: „Með fjárfestingaráætlun 2016 eru tekin mikilvæg skref til þess að hefja uppbyggingu innviða í bænum og þjónustu þar sem þörf er orðin brýn. Íþróttahús við Ásvelli mun nýtast sameiginlega í skólastarfi þriggja skólahverfa. Jafnframt er meginverkefni ársins 2016 að ljúka byggingu 4 deilda leikskóla við Bjarkavelli, sem fyrirhugað er að taka í notkun haustið 2016 og í undirbúningi er hönnun grunn- og leikskóla í Skarðshlíð, þar sem framkvæmdahraði mun fylgja uppbyggingu í hverfinu. Hönnun á nýju hjúkrunarheimili sem reist verður á Sólvangsreitnum er í undibúningi en gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist haustið 2016. Fjármögnun nýs hjúkrunarheimilis er þríhliða samningur við ríkið og íbúðalánasjóð og kemur því ekki inn sem liður í fjárfestingaáætlun næsta árs. Í samgöngumálum verður lögð áhersla á að bæta hjólasamgöngur og gönguleiðir skólabarna og aldraðra auk þess sem undirbúningur á endurhönnun á Kaldárselsvegi og undirbúningur fyrir lagningu Ásvallabrautar heldur áfram. Umhverfismál fá aukið fjármagn þar sem í fyrsta skipti er sérstaklega ráðstafað fjármagni til fjárfestinga í umhverfispott sem síðan verður úthlutað úr til verkefna sem tengjast uppbyggingu á opnum svæðum og öðrum verkefnum sem auka lífsgæði íbúa hvað varðar hreyfingu og útivist.“
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi fjárfestingaráætlun með 3 samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
6.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 28.okt. sl. 3.liður úr fundargerð BÆJH frá 22.okt. sl. Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs kom á fundinn.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og stofnana hans 2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs undir fundarstjórn forseta. Gunnar Axel Axelsson lagði til að fresta umræðu um fjárhagsáætlun um viku. Fundarhlé gert kl. 17:50 Fundi framhaldið kl. 18:18
Forseti bar upp þá dagskrártillögu að fresta umræðu um fjárhagsáætlun um viku. Óskað var eftir nafnakalli: Gunnar Axel Axelsson já Adda María Jóhannsdóttir já Einar Birkir Einarsson nei Helga Ingólfsdóttir nei Kristinn Andersen nei Ófeigur Friðriksson já Ólafur Ingi Tómasson nei Skarphéðinn Orri Björnsson nei Sverrír Garðarson já Unnur Lára Bryde nei Guðlaug Kristjánsdóttir nei
Framkomin dagskrártillaga var felld með 7 atkvæðum gegn 4.
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri tók til máls. Ófeigur Friðriksson tók til máls og lagði fram bókun fulltrúa minnihlutans: Fulltrúar minnihlutans lögðu til á fundi bæjarstjórnar þann 16. september sl. að settir yrðu á samráðshópar á hverju sviði með þátttöku fulltrúa starfsmanna, þjónustunotenda og hagsmunaaðila til að yfirfara tillögur ráðgjafafyrirtækjanna sem ráðin voru til þess að gera úttekt á rekstri bæjarins. Markmiðið með tillögunni var að tryggja almenna og lýðræðislega umfjöllun og auka samráð um gerð fjárhagsáætlunar. Þeirri tillögu höfnuðu fulltrúar meirihlutans.
Með því að leggja fram áætlun sem enga umfjöllun hefur fengið í þeim ráðum og nefndum sem fara með viðkomandi málaflokka og takmarka alla upplýsingagjöf til bæjarstjórnar og um leið bæjarbúa teljum við augljóst að meirihluti Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks ætli að koma í veg fyrir eðlilega og lýðræðislega umræðu um stefnumótun í málefnum sveitarfélagsins.
Með vinnubrögðum sínum gerir meirihlutinn undirrituðum bæjarfulltrúum ókleift að taka þátt í umræðunni og gegna þeim skyldum sem við erum kjörin til, m.a. til aðhalds og eftirlits.
Undir þetta rita: Gunnar Axel Axelsson Adda María Jóhannsdóttir Sverrir Garðarsson Ófeigur Friðriksson
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri kom í andsvar. Kristinn Andersen 2. varaforseti tók við stjórn fundarins. Guðlaug Kristjánsdóttir tók til máls. Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins á ný. Sverrir Garðarson tók til máls. Kristinn Andersen tók til máls og lagði fram bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar: Drög að fjárhagsáætlun hafa verið unnin af kostgæfni og eru nú lögð fram tímanlega eins og lög gera ráð fyrir. Sérstaklega er starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar þökkuð mikil og góð undirbúningsvinna fyrir þau drög sem liggja fyrir. Nú taka kjörnir fulltrúar við frekari vinnslu og gerð endanlegrar fjárhagsáætlunar, í nefndum og ráðum bæjarins, sem ljúka skal fyrir miðjan desember. Á þeim tíma mun m.a. bæjarstjóri boða til íbúafundar í Hafnarfirði til að ræða og fara yfir rekstur og fjárhag bæjarins. Gott svigrúm gefst því fyrir þá vinnu sem nú fer í hönd.
Sverrir Garðarson tók til máls. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri tók til máls. Sverrir Garðarson kom í andsvar.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2016 til síðari umræðu með 7 atkvæðum, 4 sitja hjá.
Tillaga til bæjarstjórnar: Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG leggja til að tillaga um lokun starfsstöðvar Brekkuhvamms við Hlíðarbraut verði dregin til baka og þess í stað fundnar leiðir til að fækka plássum í hverfum sem betur þola slíka framkvæmd. Með því móti myndu sparast um 30 milljónir króna á ársgrundvelli, sem er sá hluti áætlaðs 43 milljóna króna sparnaðar sem tengist fækkun leikskólaplássa og er óháð því hvar sú fækkun á sér stað. Þannig væri komið í veg fyrir þá þjónustuskerðingu sem fækkun leikskólaplássa mun að óbreyttu hafa í för með sér og komið til móts við eindregnar óskir foreldra í Suðurbæ um að frekar verði unnið að því að fjölga leikskólaplássum í þeim bæjarhluta en fækka þeim. Þá verði jafnframt unnið að áætlun um byggingu nýs leikskóla við Öldugötu í samræmi við gildandi skipulag svæðisins og skilgreinda þörf fyrir aukin fjölda leikskólaplássa í Suðurbæ.
.
Helga Ingólfsdóttir bæjarfulltrúi vék af fundi kl. 18:30 og í hennar stað kemur Pétur Gautur Svavarsson varabæjarfulltrúi.
Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi og lagði fram breytingartillögur bæjarfulltrúa Bjartar framtíðar og Sjálfstæðisflokks á fjárhagsáætlun:
Þús.kr. A hluti Tillögur Lækkun tekna v/matur aldraðra, skv.tillögu fjölskylduráðs 13.900 Íþróttasamningar, hækkun vegna endurskoðunar samninga 10.000 Innri endurskoðun 2.500 Aukið framlag til jólaþorps vegna raunkostnaðar í ár 2.000 Samstarf sveitarfélaga, nýr samn.samþ. í Bæjarráði 500 Endurreiknað og/eða leiðréttingar Laun endurreiknuð í kjölfar kjarasamninga -71.644 Fasteignagjöld endurreiknuð í álagningarkerfi 4.552 Afsláttur fasteignagjalda endurreiknaður í álagningarkerfi 12.000 Rekstur á spjaldtölvum, vantaði í fyrri umræðu 2.600 Ýmsar smávægilegar leiðréttingar, innsláttur ofl. 4.890 Fjárfesting Bláfjallasvæði, vantaði í fyrri umræðu 4.823 Tekjur vegna safna -1.000 Vaxtaútreikningur endurreiknað 2.874 A hluti samtals, hækkun -12.005
B hluti Endurreiknað og/eða leiðréttingar Vaxtagjöld og verðbætur endurreiknað -30.868 Laun endurreiknuð og færð launahækkun Höfnin 6.760 Höfnin, leiðrétt yfirfærsla frá áætlunarskjali Hafnarinnar -17.460 Ýmsar smávægilegar leiðréttingar 544 B hluti samtals, hækkun -41.024
Alls mismunur milli umræðna, hækkun -53.029
Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson bæjarfulltrúi. Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti tók við fundarstjórn. Guðlaug Kristjánsdóttir forseti tók við fundarstjórn. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri kom að andsvari. Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi svarar andsvari. Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti tók við fundarstjórn. Guðlaug Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi tók til máls. Til andsvars kom Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi. Guðlaug Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi svaraði andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Gunnar Axel Axelsson bæjarfulltrúi. Guðlaug Kristjánsdóttir bæjarfulltrúi svaraði andsvari öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson bæjarfulltrúi kom með stutta athugasemd. Guðlaug Kristjánsdóttir forseti tók við fundarstjórn. Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi tók til máls. Til andsvars kemur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson. Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Ólafur Ingi Tómasson. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari öðru sinni. Ólafur Ingi Tómasson gerði stutta athugasemd. Adda María Jóhannsdóttir gerði stutta athugasemd. Einar Birkir Einarsson, bæjarfulltrúi tók til máls. Til andsvar kom bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Svar við andsvari veitir bæjarfulltrúi Einar Birkir Einarsson. Til andsvars öðru sinni kemur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson. Svar við andsvari veitir Einar Birkir Einarsson öðru sinni. Gunnar Axel Axelsson kemur með stutta athugasemd. Einar Birkir Einarsson kemur með stutta athugasemd. Adda María Jóhannsdóttir kemur til andsvars. Einar Birkir Einarsson svarar andsvari. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari öðru sinni. Adda María Jóhannsdóttir 1. varaforseti tók við fundarstjórn. Sverrir Garðarsson, bæjarfulltrúi kemur til andsvars. Ófeigur Friðriksson bæjarfulltrúi tekur til máls. Guðlaug Kristjánsdóttir forseti tók við fundarstjórn. Ólafur Ingi Tómasson, bæjarfulltrúi tók til máls. Gunnar Axel Axelsson bæjarfulltrúi tók til máls. Til máls tekur Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri. Gunnar Axel Axelsson kom til andsvars. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri svaraði andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom til andsvars öðru sinni. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri svaraði andsvari öðru sinni. Sverrir Garðarsson bæjarfulltrúi kom til andsvars. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri svaraði andsvari. Adda María Jóhannsdóttir kom til andsvars. Kristín María Thoroddsen tók til máls. Adda María Jóhannsdóttir kom í andsvar. Kristín María Thoroddsen svarar andsvari. Gunnar Axel Axelsson kom til andsvars. Kristín María Thoroddsen svarar andsvari. Til máls tekur Einar Birkir Einarsson og leggur fram eftirfarandi tillögu vegna leikskóla í Suðurbæ „Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkir að vísa því til fræðsluráðs að setja á stað vinnu sem felst í úttekt leikskólamála í Öldutúnsskólahverfinu, þar sem farið verði yfir þörf á leikskóla í þessum bæjarhluta meta þá kosti sem mögulegir eru í leikskólamálum í hverfinu.“ Gunnar Axel Axelsson kemur til andsvars. Einar Birkir Einarsson svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Gunnar Axel Axelsson. Gunnar Axel Axelsson kom í pontu og ræddi fundarstjórn. Einar Birkir Einarsson kom í pontu og ræddi fundarstjórn. Gunnar Axel Axelsson kom í pontu og ræddi fundarstjórn. Til máls tekur Einar Birkir Einarsson og dregur tillögu sína til baka.
Borin er upp til atkvæða tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingar og VG um breytingu á fjárhagsáætlun. Bæjarfulltrúar minnihluta óska eftir nafnakalli við atkvæðagreiðsluna. Kristín Thoroddsen nei Ófeigur Friðriksson já Ólafur Ingi Tómasson nei Pétur Gautur Svavarsson nei Rósa Guðbjartsdóttir nei Sverrir Garðarsson já Unnur Lára Bryde nei Adda María Jóhannsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu segir já Einar Birkir Einarsson gerir grein fyrir atkvæði sínu, segir nei Guðlaug Kristjánsdóttir nei Gunnar Axel Axelsson gerir grein fyrir atkvæði sínu, segir já
Tillagan er felld með 7 atkvæðum gegn 4.
Borin er upp til atkvæða tillaga bæjarfulltrúa Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks til breytinga á fjárhagsáætlun.
Samþykkt með 7 atkvæðum 4 sátu hjá.
Fjárhagsáætlun 2016 með breytingum borin upp til atkvæða og er samþykkt með 7 atkvæðum gegn 4.
Fjárhagsáætlun til 3ja ára, 2017 til 2019 samþykkt með 7 atkvæðum gegn 4.
Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks:
„Bjartari tímar framundan – miklar umbætur í rekstri Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir árin 2016 – 2019 ber þess merki að mikill viðsnúningur er að verða í rekstri sveitarfélagsins. Umbætur sem staðið hafa yfir í kjölfar rekstrarúttektar undanfarna mánuði eru að skila góðum árangri og gangi þessi áætlun eftir er ljóst að búið er að ná tökum á erfiðri fjárhagsstöðu bæjarins og bjartara framundan á komandi árum.
Í frumvarpinu er lögð áhersla á ábyrga fjármálastjórn, óbreytt þjónustustig og forgangsröðun í þágu barnafjölskyldna í bænum. Markmiðið er að Hafnarfjörður sé ábyrgur, aðgengilegur og áhugaverður framtíðarbær.
Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar 2016 Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með heildarútgjöld upp á um 21,9 milljarða króna. Áætluð laun og launatengd gjöld eru um 10,6 milljarðar króna og fjármagnskostnaður um 2,1 milljarður króna, eða sem nemur 9,6% af heildartekjum sveitarfélagsins.
Rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um 361 milljónir króna og rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð um 14,9 milljónir króna sem er viðsnúningur frá áætlun fyrra árs þar sem niðurstaðan var neikvæð um 333 milljónir króna.
Heildareignir samstæðunnar eru áætlaðar um 47,9 milljarðar króna í árslok 2016. Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar um 40,3 milljarðar króna og eigið fé um 7,6 milljarðar króna Áætlað veltufé frá rekstri A hluta er um 2,4 milljarðar króna og samantekið fyrir A og B hluta 3,3 milljarðar króna sem er tæplega 15% af heildartekjum.
Á árinu 2016 er ráðgert að greiða niður eldri lán og skuldbindingar sem nemur 600-800 milljónum króna Áætlaðar fjárfestingar á árinu eru 925 milljónir króna og áætluð sala iðnaðarlóða fyrir 200 milljónir króna
Fjölskylduvænar áherslur: Fjárheimild vegna fræðslu- og uppeldismála hækkar um 644 milljónir króna á milli ára eða um 7%, og til æskulýðs- og íþróttamála um 136 milljónir króna, þar vega þyngst áhrif kjarasamninga. Leikskólagjöld verða óbreytt annað árið í röð og skref tekin í lækkun inntökualdurs barna með breyttum innritunarreglum. Fjárveiting vegna niðurgreiðslu vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna aukin og heimilt verður í fyrsta sinn að nýta niðurgreiðslur vegna ástundunar utan bæjarmarkanna. Áframhaldandi áhersla verður á bættan námsárangur í læsi og stærðfræði auk þess sem áframhaldandi tæknivæðing mun eiga sér stað í leik- og grunnskólum. Laun til nemenda í Vinnuskólanum hækka sem nemur um 13%.
Fjárfestingar aukast úr 750 milljónum króna í 928 milljónir króna milli ára. Auk þess er gert ráð fyrir að hefja undirbúning að framkvæmdum nýs grunnskóla á Völlum og byggingu hjúkrunarheimilis við Sólvang.
Áætlunin sem hér er lögð fram er ábyrg, hagsýn og horfir til framtíðar. Í henni er lagður grunnur að fjárhagslegri endurreisn sveitarfélagsins sem bæjarbúar munu njóta góðs af.“
Fundarhlé gert kl. 00:54, fundi framhaldið kl. 01:15.
Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og VG:
„Skorið niður í grunnþjónustu Bæjarfulltrúar Samfylkingar og VG fagna því sem fram kemur í fjárhagsáætlun næsta árs og staðfestir þann viðsnúning sem varð á fjármálum sveitarfélagsins á síðasta kjörtímabili undir forystu Samfylkingar og Vinstri grænna.
Átakalínurnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag snúast fyrst og fremst um ólíka forgangsröðun flokkanna. Meirihluti Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks fer fram með markvissann niðurskurð í grunnþjónustu með lokun leikskóla og leikskóladeilda, fækkun leik- og grunnskólakennara, fækkun starfsfólks í félagsþjónustu, hækkun á húsaleigu til fatlaðs fólks og niðurskurð í félagsþjónustu á sama tíma og byggingu hjúkrunarheimils er frestað en lagt til að ráðist verði í byggingu og rekstur nýrra íþróttamannvirkja upp á hundruð milljóna króna. Þá er gert ráð fyrir nýjum samningum við íþróttafélögin sem í einstökum tilvikum munu leiða til verulegrar hækkunar á beinum fjárframlögum.
Vegið að starfsemi leik- og grunnskóla Í fjárhagsáætlun meirihlutans er verulega vegið að leik- og grunnskólum með niðurskurði. Lagt er til að almenn kennsluúthlutun í leikskólum lækki um 67%. Í reynd þýðir það fækkun um sem nemur 7,8 stöðugildum í kennslu á leikskólastigi. Þá er gert ráð fyrir 1,8 stöðugilda fækkun í eldhúsum leikskóla. Sömuleiðis verður starfsfólki í afleysingum í leikskólum fækkað umtalsvert eða um 5,6 stöðugildi.
Gert er ráð fyrir að dregið verði úr kennsluúthlutun í grunnskólum bæjarins um 3%. Í reynd þýðir það fækkun kennara sem nemur 13 stöðugildum strax frá næsta hausti.
Ómögulegt er að sjá hvernig þessu verði náð án þess að skerða þjónustu við leik- og grunnskólabörn.
Þá verður þróunarsjóður leik- og grunnskóla skorin niður um 60 milljónir króna sem jafngildir yfir 50% niðurskurði á milli ára. Með aðgerðum meirihlutans er í reynd verið að skafa og skera í leik- og grunnskólaþjónustu allra bæjarbúa en ekki er hróflað við einkareknu skólunum. Bærinn er því ekki að efla aðgengi og umfram allt jafnrétti til náms á leik- og grunnskólastigi á meðan grunnþjónusta sem allir bæjarbúar geta gert tilkall til er skert.
Fjórum leikskólaúrræðum lokað á árinu 2015 Á árinu 2015 hefur meirihluti Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar lokað fjórum leikskólaúrræðum. Ungbarnaleikskólanum Bjarma var lokað fyrr á árinu og 5 ára deild í Hvaleyrarskóla einnig. Með þeirri fjárhagsáætlun sem hér liggur fyrir hefur meirihlutinn nú einnig tekið ákvörðun um að loka starfsstöð Brekkuhvamms við Hlíðarbraut og Kaldárselsdeild Víðivalla. Á sama tíma og aukin krafa er um að inntökualdur á leikskóla verði lækkaður hefur núverandi meirihluti því farið í stórfelldar lokanir á leikskóladeildum í stað þess að nýta þau pláss sem fyrir hendi eru til að stíga frekari skref í lækkun inntökualdurs eins og fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna hafa margsinnis lagt til.
Fulltrúar minnihlutans fagna því þó að dregið hafi verið úr boðaðri hækkun á fæðisgjaldi í leik- og grunnskólum þannig að í stað 8,1% hækkunar mun fæðisgjaldið hækka um 4,5% í samræmi við almenna verðlagshækkun.
Óvissa um nýtt hjúkrunarheimili Eins og staðan er í dag sker Hafnarfjörður sig úr í samanburði við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þegar kemur að aðbúnaði þeirra sem búa á hjúkrunarheimilum og getur ekki boðið bæjarbúum heimili sem stenst þær opinberu kröfur sem gerðar eru í dag. Þrátt fyrir margra ára undirbúningsvinnu og umtalsverða fjárfestingu ákvað nýr meirihluti Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks að fórna þeirri mikilvægu sátt sem myndast hafði um byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Völlum og setja verkefnið á byrjunarreit. Ekki liggur fyrir ný kostnaðaráætlun sem tekur mið af þróun byggingakostnaðar og breyttum aðstæðum á byggingamarkaði.Ef haldið hefði verið áfram með byggingu nýs Hjúkrunarheimilis samkvæmt þeirri hönnun sem var lokið snemma árs 2014 væri stefnt að opnun þess í byrjun næsta árs.
Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir byggingu nýs íþróttahúss á Ásvöllum og að verkefnið hefjist strax á næsta ári. Engin umræða hefur farið um það í bæjarstjórn hvort ráðast eigi í umrædda fjárfestingu eða forgangsröðun framkvæmda almennt. Í fjárhagsáætlun meirihlutans er gert ráð fyrir að verja 350 miljónum króna til verkefnisins sem á að vera lokið á árinu 2017. Engin kostnaðaráætlun fyrir verkefnið liggur þó fyrir.
Þá er gert ráð fyrir sérstakri 40 milljóna króna aukafjárveitingu vegna nýs gervisgrass á Ásvöllum en kostnaðaráætlun vegna verkefnisins sem kynnt var fyrir um ári síðan hljóðaði upp á 65 milljónir króna. Endanlegur kostnaður við lagningu nýs gervigrass á Ásvöllum er því nú áætlaður 105 milljónir króna. Einnig er áætlað að veita 140 milljónum króna til endurnýjunar gervigrass í Kaplakrika á næstu þremur árum.
Dregið úr hækkun á heimsendum mat aldraðra og öryrkja Fulltrúar minnihlutans fagna því að meirihlutinn hafi að miklu leyti fallið frá áður boðaðri hækkun á heimsendum mat til aldraðra og öryrkja en við höfum gagnrýnt þær fyrirætlanir harðlega. Í stað 63% hækkunar sem boðuð var í lok október sl. er gerð tillaga um að þjónustan hækki í samræmi við almenna verðlagsbreytingu að viðbættri verðlagsbreytingu síðasta ár, eða um 8,6%.
Fallið frá aukinni skerðingu afsláttar aldraðra og öryrkja af fasteignasköttum Fulltrúar minnihlutans fagna því jafnframt að meirihlutinn hafi tekið mark á gagnrýni minnihlutans og fallið frá þeirri tillögu að skerða tekjuviðmið sem notuð eru til að ákvarða rétt aldraðra og öryrkja til afsláttar af fasteignasköttum. Tekjuviðmiðin voru eingöngu hækkuð um 2.7% á árinu 2015 og tillaga meirihlutans gerði ráð fyrir að viðmiðin myndu aðeins hækka um 4,5% sem er umtalsvert minna en sem nemur almennum hækkunum launa. Þetta hefur leitt til þess að viðmiðin hafa lækkað að raungildi og þeim sem eiga rétt til afsláttar fækkað samsvarandi. Með sameiginlegri breytingatillögu minnihluta- og meirihluta var brugðist við þessu og réttur aldraðra og öryrkja færður til samræmis við það sem eðlilegt og sanngjarnt getur talist. Rangfærslur um fjárhag bæjarins
Ljóst er með þeirri fjárhagsáætlun sem lögð hefur verið fram og samþykkt af fulltrúum meirihlutans í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag að sú mynd sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar hafa reynt að draga upp af slæmri fjárhagsstöðu bæjarins á ekki við rök að styðjast. Framlögð tillaga og útkomuspá fyrir árið 2015 staðfestir að þær áætlanir sem gerðar voru af fyrri meirihluta og byggja m.a. á markvissri hagræðingu í rekstri á síðasta kjörtímabili, forgangsröðun í þágu grunnþjónustu og farsælli endurfjármögnun langtímalána eru að ganga eftir í öllum aðalatriðum og leggja grunn að lækkun skulda og jákvæðum framtíðarhorfum í rekstri sveitarfélagsins. Það verkefni hefði eflaust reynst bæjarstjórn auðveldara á síðasta kjörtímabili ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði tekið þátt í því og sýnt bænum og bæjarbúum stuðning. Þeim stuðningi var hins vegar hvergi til að dreifa.
Órökstuddar og tilhæfulausar fullyrðingar formanns bæjarráðs nú í fjölmiðlum um yfirvofandi milljarða halla á rekstri bæjarins á næsta ári vekja einnig óneitanlega upp spurningar um á hvaða vegferð meirihlutinn er í sínum málflutningi varðandi fjármál bæjarins. Það er erfitt að sjá hvernig það getur þjónað hagsmunum Hafnarfjarðarbæjar og bæjarbúa að draga þannig markvisst upp óraunsæja og ósanna mynd af fjárhagslegum málefnum bæjarins og framtíðarhorfum. Tilgangurinn er augljóslega sá að reyna að eigna nýjum meirihluta árangur síðustu ára og þann viðsnúning sem varð í rekstri Hafnarfjarðarbæjar á árunum 2011-2013. Slík pólitík dæmir sig þó sjálf.“
Næsti fundur bæjarstjórnar verður 20. janúar 2016, kl. 16:00.
Forseti óskar bæjarfulltrúum og bæjarbúum gleðilegra jóla.