Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg
Fundur Ungmennaráðs Hafnarfjarðar með bæjarstjórn hófst kl. 13 á undan bæjarstjórnarfundi.[line][line]Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskyldum Kristni Andersen en í hans stað sat fundinn Skarphéðinn Orri Björnsson. [line][line]Jafnframt sat fundinn Sigríður Kristinsdóttir, yfirmaður stjórnsýslusviðs og staðgengill bæjarstjóra.[line][line]1. varaforseti bæjarstjórnar Adda María Jóhannsdóttir setti fundinn og stjórnaði honum.[line][line]Í upphafi fundar bar forseti upp tillögu um að afgreiðslu máls nr. 2 á dagskrá fundarins yrði frestað. Bæjarstjórn samþykkti tillöguna með 9 greiddum atkvæðum, einn situr hjá og einn bæjarfulltrúi er fjarverandi.[line]
8.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 30.maí sl. Lögð fram lýsing á skipulagsverkefninu, að breyttu deiliskipulagi fyrir svæðið við Hrauntungu 5 í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti að unnið verði að breyttu deiliskipulagi fyrir svæðið við Hrauntungu 5 í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga og leggur til við bæjarstjórn:
“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnið verði að breyttu deiliskipulagi fyrir svæðið við Hrauntungu 5 í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga 123/2010.”
Til máls tekur bæjarfulltrúi Ólafur Ingi Tómasson.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir með 10 atkvæðum að unnið verði að breyttu deiliskipulagi fyrir svæðið við Hrauntungu 5 í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga 123/2010.
2.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 1.júní sl. Lögð fram umsókn Björg Real Estate ehf.,kt.590315-1680 um lóðirnar við Einhellu 3 og 5.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að lóðunum við Einhellu 3 og 5 verði úthlutað til Björg Real Estate ehf.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum að lóðunum við Einhellu 3 og 5 verði úthlutað til Björg Real Estate ehf.
3.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 1.júní sl. Lagðir fram lóðaleigusamningar og úthlutunarskilmálar til afgreiðslu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi drög að lóðarleigusamningum og framlagða úthlutunarskilmála vegna hesthúsalóða.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 greiddum atkvæðum fyrirliggjandi drög að lóðarleigusamningum og framlagða úthlutunarskilmála vegna hesthúsalóða.
2.liður úr fundargerð forsetanefndar frá 1.júní sl. Forsetanefnd leggur til við bæjarstjórn:
“Bæjarstjórn samþykkir að bæjarráð annist fullnaðarafgreiðslu allra mála á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar 2017 stendur, sem er frá og með 22. júní til og með 18. ágúst 2017. Fyrsti reglubundni fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður þann 30. ágúst 2017. Ráðsvika skal vera í viku 34, þ.e. þann 21. ágúst 2017.”
Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Kristjánsdóttir tekur við fundarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum að bæjarráð annist fullnaðarafgreiðslu allra mála á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar 2017 stendur, sem er frá og með 22. júní til og með 18. ágúst 2017. Fyrsti reglubundni fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður þann 30. ágúst 2017. Ráðsvika skal vera í viku 34, þ.e. þann 21. ágúst 2017.
Fundargerð bæjarráðs frá 1.júní sl. a. Fundargerðir hafnarstjórnar frá 10.og 24.maí sl. b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.maí sl. c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 19.maí sl. d. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 19.maí sl. e. Fundargerð stjórnar SSH frá 8.maí sl. f. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 12.maí sl. Fundargerðir umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 24. og 31.maí sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 12. maí sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 30.maí sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 31.maí sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 24.maí sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 2.júní sl. Fundargerð forsetanefndar frá 1.júní sl.
Til máls undir tekur bæjarfulltrúi Gunnar Axel Axelsson undir fundargerð bæjarráðs.