Bæjarstjórn

6. desember 2017 kl. 16:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1796

Mætt til fundar

  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir forseti
  • Margrét Gaua Magnúsdóttir 1. varaforseti
  • Kristinn Andersen 2. varaforseti
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Einar Birkir Einarsson aðalmaður
  • Gunnar Axel Axelsson aðalmaður
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Kristín María Thoroddsen varamaður
  • Elva Dögg Ásud. Kristinsdóttir aðalmaður

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskilinni Unni Láru Bryde en í hennar stað mætir Kristín María Thoroddsen. [line][line]Auk ofangreindra sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir setti fundinn og stjórnaði honum.

Ritari

  • Ívar Bragason Lögmaður á stjórnsýslusviði og ritari bæjarstjórnar

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar að undanskilinni Unni Láru Bryde en í hennar stað mætir Kristín María Thoroddsen. [line][line]Auk ofangreindra sat Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri fundinn.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir setti fundinn og stjórnaði honum.

  1. Almenn erindi

    • 1704017 – Aldraðir, heilsuefling

      1. liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 17.nóv. sl.
      Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og felur sviðsstjóra að ganga til samninga við Janus heilsueflingu slf.

      2. varaforseti Kristinn Andersen tekur við fundarstjórn.

      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir tekur til máls.

      Margrét Gauja Magnúsdóttir mætir til fundarins kl. 16:10.

      Forseti bæjarstjórnar Guðlaug Svala tekur við fundarstjórn.

      Adda María Jóhannsdóttir kemur upp í andsvar.

      2. varaforseti Kristinn Andersen tekur við fundarstjórn.

      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir svarar andsvari.

      Adda María Jóhannsdóttir kemur upp í andsvar öðru sinni.

      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir svarar andsvari öðru sinni.

      Forseti Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir tekur við fundarstjórn.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum framliggjandi samning við Janus heilsueflingu ehf. um heilsueflingu fyrir eldriborgara.

    • 1711200 – Mötuneyti leik- og grunnskóla 2017-2018, Skólamatur ehf, samningur

      7.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv.sl.
      Samningur um mötuneyti fyrir leik- og grunnskóla 2017-2018 lagður fram til staðfestingar. Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði mætti til fundarins.

      Bæjarráð samþykktir framlagðan samning og vísar til afgreiðslu í bæjarstjórn.

      Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri tekur til máls.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum fyrirliggjandi samning um mötuneyti fyrir leik- og grunnskóla 2017-2018 við Skólamat ehf.

    • 1706134 – Skarðshlíð íbúðafélag, húsnæðissjálfseignarstofnun

      8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv. sl.
      Lagðar fram undirritaðar samþykktir og stofnfundargerð frá 30. október 2017 um húsnæðissjálfseignarstofnunina Skarðshlíð íbúðafélag hses til staðfestingar.

      Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði mætti til fundarins.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta framliggjandi undirritaðar samþykktir og stofnfundargerð, dags. 30. október 2017, um húsnæðissjálfseignarstofnunina Skarðshlíð íbúðafélag hses. og þar með samþykkja stofnun þess.

      Forseti ber upp tillögu að breytingu á orðalagi samþykktar bæjarráðs þannig að við tillöguna bætist eftirfarandi setning:

      „Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að þeir sem undirrita skjölin hafa umboð bæjarstjórnar til þess“.

      Er breytingartillagan samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

      Tillagan verður þá svohljóðandi með breytingu:

      „Bæjarstjórn staðfestir framliggjandi undirritaðar samþykktir og stofnfundargerð, dags. 30. október 2017, um húsnæðissjálfseignarstofnunina Skarðshlíð íbúðafélag hses. og þar með að samþykkja stofnun þess. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að þeir sem undirrita skjölin hafa umboð bæjarstjórnar til þess.“

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða svo breytta tillögu með 11 greiddum atkvæðum.

    • 1710563 – Arnarhraun 50, búsetukjarni fyrir fatlað fólk, húsnæðissjálfseignarstofnun

      9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv. sl.
      Lagðar fram undirritaðar samþykktir og stofnfundargerð frá 30. október 2017 um húsnæðissjálfseignarstofnunina Arnarhraun 50, íbúðafélag hses til staðfestingar.

      Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði mætti til fundarins.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta framliggjandi undirritaðar samþykktir og stofnfundargerð, dags. 30. október 2017, um húsnæðissjálfseignarstofnunina Arnarhraun 50 íbúðafélag hses. og þar með samþykkja stofnun þess.

      Forseti ber upp tillögu að breytingu á orðalagi samþykktar bæjarráðs þannig að við tillöguna bætist eftirfarandi setning:

      „Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að þeir sem undirrita skjölin hafa umboð bæjarstjórnar til þess“.

      Er breytingartillagan samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

      Tillagan verður þá svohljóðandi með breytingu:

      „Bæjarstjórn staðfestir framliggjandi undirritaðar samþykktir og stofnfundargerð, dags. 30. október 2017, um húsnæðissjálfseignarstofnunina Arnarhraun 50 íbúðafélag hses. og þar með að samþykkja stofnun þess. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að þeir sem undirrita skjölin hafa umboð bæjarstjórnar til þess.“

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum svo breytta tillögu.

    • 1711256 – Sólvangsvegur 1, fastanr. kaup á íbúð

      11.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv.sl.
      Lagt fram kauptilboð í íbúð að Sólvangsvegi 1

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gengið sé frá kaupum á íbúð að Sólvangsvegi 1 í samræmi við framlagt kauptilboð.

      Bæjarstjórn samþykkir með samhljóða með 11 greiddum atkvæðum að gengið verði frá kaupum á íbúð að Sólvangsvegi 1 í samræmi við framliggjandi kauptilboð.

    • 1711240 – Engjavellir 5b, fastanr. 226-9388, kaup á íbúð

      12.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv.sl.
      Lagt fram kauptilboð í íbúð að Engjavöllum 5b.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gengið sé frá kaupum á íbúð að Engjavöllum 5b í samræmi við framlagt kauptilboð.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum að gengið verði frá kaupum á íbúð að Engjavöllum 5b í samræmi við framliggjandi kauptilboð.

    • 1711337 – Álfhella 4, lóðarumsókn

      13.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv.sl.
      Lögð fram umsókn KB Verks ehf, kt. 481117-0460, um lóðina Álfhella 4.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að KB Verki ehf. verði úthlutað lóðinni Álfhellu 4.

      Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum að KB Verki ehf. verði úthlutað lóðinni Álfhellu 4.

    • 1708327 – Móbergsskarð 5, umsókn um lóð, úthlutun, afsal

      14.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv.sl.
      Lagður fram tölvupóstur frá lóðarhöfum að Móbergsskarði 5 þar sem fram kemur að þau óska eftir að afsala sér lóðarúthlutun á lóðinni.

      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthlutun lóðarinnar Móbergsskarð 5 til Jóns Ármanns Arnoddssonar verði afturkölluð.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum að úthlutun lóðarinnar Móbergsskarð 5 til Jóns Ármanns Arnoddssonar verði afturkölluð.

    • 1701378 – Rekstrarsamningur, þjónustusamningur, Björgunarsveit Hafnarfjarðar ósk um endurskoðun

      5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv. sl.
      Lagður fram rekstrarsamningur milli Hafnarfjarðarkaupstaðar og Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. Andri Ómarsson verkefnastjóri mætti til fundarins.

      Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi rekstrarsamning með áorðnum breytingum.

      Forseti leggur til að þessi liður verði tekinn fyrir sem liður 9 á dagskrá bæjarstjórnar þar sem bíða þarf eftir að rétt skjal verði fært undir málið. Er tillagan samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum afgreiðslu bæjarráðs.

    Fundargerðir

    • 1701078 – Fundargerðir 2017, til kynningar í bæjarstjórn

      Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 29.nóv. sl.
      a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 21.nóv. sl.
      b. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 10.nóv. sl.
      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 28.nóv.sl.
      Fundargerð fræðsluráðs frá 29.nóv.sl.
      a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 22.nóv. sl.
      Fundargerð fjölskylduráðs frá 1.des. sl.
      Fundargerð bæjarráðs frá 30.nóv. sl.
      a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 22.nóv. sl.
      b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.nóv. sl.
      c. Fundargerðir stjórnar SSH frá 30.okt. og 13.nóv. sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 4.des.sl.

      Til máls tekur Margrét Gauja Magnúsdóttir undir 6. lið fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 29. nóvember sl. Helga Ingólfsdóttir kemur upp andsvar. Margrét Gauja svarar andsvari. Helga Ingólfsdóttir kemur upp í andsvar öðru sinni. Kristinn Andersen kemur upp í andsvar. Margrét Gauja svarar andsvari öðru sinni. Rósa Guðbjartsdóttir kemur upp í andsvar.

    Áætlanir og ársreikningar

    • 1704040 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og þriggja ára áætlun, 2019-2021, síðari umræða

      1.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 22.nóv.sl.

      Lagt er til við bæjarstjórn að síðari umræða um fjárhagsáætlun fari fram 6. desember nk. í stað 22. nóvember líkt og bæjarstjórn hafði samþykkt á fundi sínum 8. nóvember sl.

      Bæjarstjórn samþykkir með 11 greiddum atkvæðum að síðari umræða um fjárhagsáætlun fari fram 6. desember nk. í stað 22. nóvember líkt og bæjarstjórn hafði samþykkt á fundi sínum 8. nóvember sl.

      5.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.nóv. sl.
      Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram tillögu að breytingu á fjárhagsáætlun. (sjá fylgiskjal).

      3.liður úr fundargerð fræðsluráðs frá 29.nóv.sl.
      3.töluliður:
      Að hafinn verði undirbúningur á því að setja á fót svokallað ungmennahús í bæjarfélaginu sem yrði staðsett á Suðugötu 14 (gömlu Skattstofunni). Lagt er til að strax verði hafist handa við þarfagreiningu fyrir slíkt hús og í kjölfarið stefnumótunarvinnu fyrir starfsemi þess. Stefnt verði að því að nýtt ungmennahús Hafnarfjarðar taki til starfa haustið 2018 leiði þarfagreining og stefnumótunarvinna til þeirrar niðurstöðu að það sé skynsamleg að ráðast í slíkt verkefni fyrir bæjarfélagið. Lagt er til að í fjárhagsáætlun verði 10.000.000 kr. varið í þetta verkefni. Í því felst ráðning starfsmanns sem heldur utan um verkefnið frá byrjun og kemur því af stað.

      Samþykkt að vísa málinu til umfjöllunar og úrvinnslu hjá Ungmennaráði Hafnarfjarðar og fjölskylduráði. Fjárhagslegum þætti tillögunnar er vísað til annarrar umræðu fjárhagsáætlunar 2018 í bæjarstjórn 6. des. nk.

      Til máls tekur bæjarfulltrúi Rósa Guðbjartsdóttir.

      Elva Dögg Ásudóttir Kristinsdóttir tekur til máls.

      1. varaforseti Margét Gauja Magnúsdóttir tekur við fundarstjórn.

      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir tekur til máls.

      Forseti Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir tekur við fundarstjórn.

      Til máls tekur Gunnar Axel Axelsson.

      Til máls tekur Einar Birkir Einarsson.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir.

      Til máls tekur Ólafur Ingi Tómasson.

      Forseti ber upp tillögu að álagningu fasteignagjalda árið 2018 sbr. fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá 2018. Tillagan samþykkt með 7 greiddum atkvæðum en 4 sitja hjá.

      Forseti ber upp fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrám 2018. Tillagan samþykkt með 7 greiddum atkvæðum en 4 sitja hjá.

      Forseti ber upp breytingartillögu á fjárhagsáætlun vegna rektrarsamings við bjögunarsveitina sem felur í sér viðbót um kr. 2.500.000.- við fjárhagsáætlun. Tillagana samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum og 4 sitja hjá.

      Fjárhagsáætlun 2017 svo breytt borinn undir atkvæði. Samþykkt um 7 samhljóða atkvæðum, 4 sitja hjá.

      Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar 2019 til 2021 borin undir atkvæði. Samþykkt með 7 samhljóða atkvæðum og 4 sitja hjá.

      Kristinn Andersen kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd meirihluta Sjálfstæðiflokks og Bjartrar framtíðar:

      Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar með fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir 2018

      Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fyrir 2018 ber þess skýr merki að umbætur í fjármálum sveitarfélagsins undanfarin ár eru að skila sér til bæjarbúa. Minnt er á að undanfarið hefur rekstur bæjarfélagsins verið endurskipulagður, þar sem þess var jafnframt gætt að draga ekki úr þjónustu, heldur efla hana enn frekar.
      Þjónusta verður efld á hinum ýmsu sviðum sveitarfélagsins, þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Mikil áhersla er á umbætur í leik- og grunnskólum bæjarins, í faglegu starfi, húsnæði og aðbúnaði nemenda og starfsfólks. Árið 2018 verður lögð áhersla á aukna samvinnu fagfólks á fjölskyldu- og fræðslusviði, í þágu barna og ungmenna í sveitarfélaginu, með sérstaka áherslu á forvarnir. Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun í leik- og grunnskólum með það að markmiði að leysa vanda barna áður en hann verður of stór eða jafnvel illviðráðanlegur. Þetta er gert með líðan og velferð hvers barns að leiðarljósi og til að bregðast við miklu álagi inni í skólastarfinu. Að auki verður unnið að nýrri nálgun í meðferð barnaverndarmála og atvinnutækifærum fyrir fatlaða einstaklinga fjölgað í heimabyggð.
      Útsvarsprósenta var lækkuð á síðasta ári og verður óbreytt á komandi ári. Álagningarhlutföll fasteignagjalda eru lækkuð á íbúa og fyrirtæki og gjaldskrár hækka almennt ekki. Þannig eru vistgjöld á leikskólum óbreytt að krónutölu fimmta árið í röð.

      Þá er komið til móts við eldri borgara Hafnarfjarðar með því að hækka myndarlega tekjumörk fyrir niðurfellingu fasteignaskatta.

      Vel hefur gengið að snúa rekstri sveitarfélagsins við, en áætlunin gerir ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í lok árs 2017 um 554 milljónir króna. Veltufé frá rekstri er áætlað um 3,4 milljarðar króna, sem er yfir 14% af heildartekjum.

      Skuldahlutfall fer áfram lækkandi og fjárfest verður fyrir eigið fé sveitarfélagsins og söluandvirði lóða.

      Framundan er uppbygging á þjónustu á hinum ýmsu sviðum sveitarfélagsins, viðhald á eignum bæjarins verður verulega aukið og fjárfestingar og framkvæmdir verða meiri en í langan tíma, en þar má nefna eftirtalin verkefni:

      ? Lokið verður við byggingu á nýju hjúkrunarheimili við Sólvang, sem tekið verður í notkun á næsta ári.
      ? Framkvæmdir eru hafnar á nýjum grunn- leik- og tónlistarskóla í Skarðshlíð, sem fjármagnaðar eru með söluandvirði lóða í hverfinu.
      ? Fjárfesting verður stóraukin í félagslegu húsnæði til að takast á við brýnan húsnæðisvanda.
      ? Framkvæmdir við Ásvallabraut og Kaldárselsveg, til að greiða fyrir umferð og auka öryggi, hefjast strax á næsta ári og verður lokið 2019.
      ? Áætlun um framkvæmdir við kennslu- og íþróttamannvirki í Hafnarfirði til næstu ára verður fylgt eftir.

      Sú fjárhagsáætlun sem hér hefur verið samþykkt er til marks um þau umskipti og þá endurreisn sem orðin er í fjármálum og rekstri Hafnarfjarðarbæjar og leggur grunn að grósku og velferð til komandi ára.

      Margrét Gauja Magnúsdóttir kemur að eftirfarandi bókun fyrir hönd minnihluta Samfylkingar og Vinstri grænna:

      Fjárhagsætlun sú sem hér hefur verið samþykkt af fulltrúum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar gerir ráð fyrir gífurlegum fjárfestingum á næstu fjórum árum.
      Geta bæjarins til að ráðast í þær framkvæmdir byggir fyrst og síðast á sölu íbúða- og atvinnulóða sem fjárfest var í á árunum fyrir efnahagshrun og fjármagnað var að stærstu leyti með lántöku. Nú þegar loksins hafa skapast aðstæður í íslensku efnahagslífi til að koma þessum eignum í verð er það ekki lengur á stefnuskrá meirihlutaflokkanna að nýta söluandvirðið til niðurgreiðslu þeirra sömu skulda eins og bæjarbúum var kynnt fyrir síðustu kosningar. Þess í stað eru sett fram loforð um stórfelldar fjárfestingar upp á tugi milljarða, m.a. í nýjum íþróttamannvirkjum. Á sama tíma er ætlunin að fjármagna fjölgun félagslegra íbúða með lántöku.
      Tillögur fulltrúa minnihlutans um fjármögnun verkefna sem tilgreind eru í tillögu að endurskoðaðri umhverfis- og auðlindastefnu hlutu ekki hljómgrunn hjá núverandi meirihluta sem taldi nóg að vísa málaflokknum ófjármögnuðum til frekari umræðu á næsta kjörtímabili. Í því sambandi er rétt að benda á að málaflokkurinn hefur í reynd verið ófjármögnuð afgangsstærð hjá meirihlutaflokkunum Bjartri framtíð og Sjálfstæðisflokki það sem af eru þessu kjörtímabili sem nú sér fyrir endann á.
      Með framlagði fjárhagsáætlun undirstrikar núverandi meirihluti enn og aftur skort á vilja til að marka skýra stefnu um uppbyggingu í grunnþjónustu bæjarins, m.a. í málefnum leik og grunnskóla. Þrátt fyrir ítrekaðar tillögur minnihlutans um að Hafnarfjarðarbær setji sér skýr markmið um lækkun innritunaraldurs barna á leikskóla líkt og fjölmörg sveitarfélög hafa gert síðustu ár og háværar kröfur hafa verið um frá foreldrum ungra barna hafa meirihlutaflokkarnir í Hafnarfirði haft það á stefnuskrá sinni að efla frekar þjónustu dagforeldra. Við í minnihlutanum lögðum fram tillögu að breytingum á þeirri fjárhagsáætlun sem hér er til afgreiðslu sem m.a. gerðu ráð fyrir því að ráðist yrði í uppbyggingu ungbarnaleikskóla í Hafnarfirði og að bærinn myndi leggja sitt af mörkum til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólagöngu. Tillögurnar fengu enga efnislega meðferð í stjórnsýslu bæjarins á milli umræðna og var þeim á endanum vísað frá af fulltrúum meirihlutans.
      Í framhaldi af framkominni tillögu um forgangsröðun framkvæmda í íþróttamálum og harðorðuðum athugasemdum frá fulltrúum íþróttafélaganna og foreldra iðkenda um skort á rökstuðningi fyrir röðun framkvæmda lögðum við í minnihlutanum til að fram færi heildstæð greining á þörf fyrir uppbyggingu slíkra innviða innan bæjarfélagsins. Vildum við með því leggja grunn að vandaðri ákvarðanatöku og aukinni sátt um röðun verkefna, með það að leiðarljósi að tryggja jafnræði barna hvað snertir aðgengi að aðstöðu til íþróttaiðkunar óháð búsetu innan svæðisins. Var tillagan m.a. sett fram í ljósi framkominna fullyrðinga hagsmunaaðila um að tillaga í greinargerð með fjárhagsáætlun hafi byggt á takmörkuðum upplýsingum um forsendur samþykktrar forgangsröðunar ÍBH, forgangsröðun sem bæjarstjórn er ætlað að hafa til hliðsjónar við töku ákvarðana um framkvæmdir í málaflokknum. Það eru okkur í minnihlutanum mikil vonbrigði að ekki hafi verið fallist á þessa tillögu að bættri málsmeðferð.
      Mikilvægt er að bæjarbúar og allir sem hafa hagsmuni af framgangi einstakra verkefna sem sett eru fram í fjárhagsáætlun í aðdraganda kosninga séu meðvitaðir um þá miklu óvissu sem er um framgang einstakra verkefna sem aðeins eru tilgreind í langtímaáætlun og verða alltaf háð fjölda ytri þátta sem einstaka sveitarfélög hafa lítil eða jafnvel engin áhrif á, s.s. um almenna afkomu sveitarstjórnarstigsins. Það getur því skipt miklu máli í hvaða röð ráðist er í verkefni og eðlilegt að slíkar ákvarðanir fái vandaða og góða meðferð og þannig sé reynt að skapa um þær sem mesta og besta sátt. Af viðbrögðum fulltrúa meirihlutans við tillögum okkar má ljóst vera að ekki sé áhugi á að vinna að ákvarðanatöku á þessu sviði með það fyrir augum.

Ábendingagátt