Bæjarstjórn

5. september 2018 kl. 17:00

í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg

Fundur 1810

Mætt til fundar

  • Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri
  • Adda María Jóhannsdóttir aðalmaður
  • Kristinn Andersen forseti
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Jón Ingi Hákonarson aðalmaður
  • Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson 2. varaforseti
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir 1. varaforseti
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður
  • Kristín María Thoroddsen aðalmaður

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Kristinn Andersen setti fundinn og stjórnaði honum.[line][line]Gengið til dagskrár.

Ritari

  • Ívar Bragason Lögmaður á stjórnsýslusviði og ritari bæjarstjórnar

Mættir voru allir aðalbæjarfulltrúar.[line][line]Forseti bæjarstjórnar Kristinn Andersen setti fundinn og stjórnaði honum.[line][line]Gengið til dagskrár.

  1. Almenn erindi

    • 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Kosning varamanns í Stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. (SHS).

      Skv. 12. tl. A. liðar 39. gr. Samþykkta um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar er bæjarstjóri sjálfkjörinn í stjórn SHS sem aðalmaður en bæjarstjórn skal kjósa einn varamann til eins árs í senn.

      Kosin nýr aðalmaður í Bláfjallanefnd/Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að Ágúst Bjarni Garðarsson, Brekkuás 5, verði varamaður í stjórn SHS.

      Einnig samþykkt samhljóða að Kristín María Thoroddsen, Burknabergi 4, verði aðalmaður í stjórn Samstarfsnefnd um rekstur skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Valdimar Víðisson, Brekkuás 7 sem varamaður.

      Einnig samþykkt samhljóða að Einar Baldvin Brimar Þórðarson, Lækjarbergi 34 komi nýr inn í stjórn Markaðsstofu Hafnarfjarðar í stað Jóhönnu Erlu Guðjónsdóttur sem þá víkur úr stjórninni.

    • 1806284 – Lántökur 2018

      1.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.ágúst sl.
      Rósa Steingrímsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mætir til fundarins.

      Lagður fram lánasamningur í samræmi við fjárhagsáætlun 2018.

      Tillaga að bókun:
      Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með að Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar taki lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 406.063.898,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum.
      Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
      Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165.3899, bæjarstjóra f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.”

      Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
      Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með að Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar taki lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 406.063.898,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum.
      Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
      Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165.3899, bæjarstjóra f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

      Til máls tekur Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir samhljóða að Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar taki lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 406.063.898,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggur fyrir fundinum.
      Til tryggingar lánunum standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

      Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur, kennitala 291165-3899, bæjarstjóra f.h. Hafnarfjarðarkaupstaðar veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

    • 1808446 – Glimmerskarð 3, umsókn um lóð

      9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.ágúst sl.
      Lögð fram lóðarumsókn um lóðina Glimmerskarð 3. Umsækjendur eru Sigurjón Atli Benediktsson kt. 070481-5619 og Jóna Draumey Hilmarsdóttir kt. 240183-3909.

      Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni Glimmerskarð 3 í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og vísar til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.

      Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni Glimmerskarð 3 í samræmi við afgreiðslu bæjarráðs.

    • 1704040 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2021

      Lagt fram svar við fyrirspurnum.
      1.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Einnig tekur til máls bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir. Jón Ingi Hákonarson kemur að andsvari og Rósa svarar andsvari. Einnig kemur Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir til andsvars og næst kemur Adda María til andsvars.

      Næst tekur Guðlaug Kristjánsdóttir til máls. Til máls öðru sinni tekur Adda María Jóhannsdóttir og leggur fram eftirfarandi fyrirspurn:

      Í 62. og 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er fjallað um fjárhagsáætlanir og bindandi áhrif ákvarðana sem þar eru settar fram. Í 1. mgr. 63. gr. segir m.a. „Ákvörðun sem sveitarstjórn tekur skv. 1. mgr. 62. gr. um fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins.? Ennfremur segir í 2. mgr. sömu gr. “Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.?

      Með vísan til fyrrgreindra ákvæða í sveitarstjórnarlögum óskum við undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar svara um það hvort og þá hvernig breyting á áætlun vegna framkvæmda við knatthúss í Kaplakrika telst standast ákvæði laganna.

      Óskað er eftir að svör liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Farið er fram á þetta að gefnu tilefni þar sem þegar er búið að senda út dagskrá fyrir fund í bæjarráði á morgun, 16. ágúst, þar sem gera á viðauka og stofna starfshóp um framkvæmdina.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls öðru sinni og leggur fram svohljóðandi bókun:

      Undirrituð vekur athygli á því að enn er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir byggingu knatthúss af hálfu bæjarins. Enginn hefur lagt til breytingar á þeirri áætlun, nema meirihlutinn, nú í síðustu viku.

      Ekki hafa verið lögð fram gögn af hálfu meirihlutans um verðmat, eignarstöðu eða ástand umræddra þriggja fasteigna, þ.e. íþróttahúss, Risa og Dvergs. Ekki lágu fyrir gögn á fundi bæjarráðs í liðinni viku um það hvers vegna afgreiða þurfti þetta mál með þeim hraða sem raunin var og ekki var orðið við óskum fulltrúa minnihluta um svigrúm til að afla gagna. Jafnframt var því vísað á bug að um breytingar á fjárhagsáætlun væri að ræða, en nú liggur fyrir fundarboð í bæjarráð á morgun 16. Ágúst þar sem meðal annars er lagður fram umræddur viðauki.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Ágúst Bjarni Garðarsson kemur að andsvari og Guðlaug svarar andsvari. Þá kemur Ágúst Bjarni að andsvari öðru sinni sem Guðlaug svarar einnig öðru sinni.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir. Adda María svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Rósa Guðbjartsdóttir. Adda María svarar andsvari öðru sinni. Einnig kemur Ingi Tómason að andsari við ræðu Öddu Maríu. Adda María svarar andsvari. Ingi kemur að andsvari öðru sinni. Adda María svarar andsvari. Þá kemur Ágúst Bjarni Garðarsson að andsvari við ræðu Öddu Maríu. Adda María svarar andsvari.

      Til máls öðru sinni tekur Guðlaug Kristjánsdóttir.

      Fundarhlé kl. 18:02.

      Fundi framhaldið kl. 18:11.

      Guðlaug Kristjánsdóttir kemur að svohljóðandi bókun:

      Bæjarfulltrúar Bæjarlistans, Samfylkingar og Viðreisnar gerir athugasemd við framlögð svör þar sem vitnað er í 75. grein sveitarstjórnarlaga og reglugerð þeim fylgjandi.

      Í reglugerðinni segir, í viðauka III, bls 59: ,,Heimild til tilfærslna innan málaflokka skv. 1. mgr. er háð því að sveitarstjórn hafi áður samþykkt sérstakar verklagsreglur um framkvæmd sérstakra tilfærslna, þar sem fram komi m.a. með skýrum hætti hvaða starfsmenn sveitarfélagsins hafi slíka heimild.“

      Óskað hefur verið eftir þessum verklagsreglum, en fram kom í máli bæjarstjóra í dag að reglurnar séu ekki til. Óskað er staðfestingar á því. Séu þær ekki til, ítrekum við spurningu okkar um það hvernig þessi breyting á fjárhagsáætlun telst standast ákvæði sveitarstjórnarlaga, sbr. upprunalega fyrirspurn.

    • 1612327 – Þjónustusamningur við ÍBH

      Lagt fram svar fyrir fyrirspurnum.
      2.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl.
      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Einnig tekur til máls Ágúst Bjarni Garðarsson. til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari. Rósa Guðbjartsdóttir kemur til andsvars öðru sinni og Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari öðru sinni. Einnig til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari.

      Til máls tekur bæjarfulltrúi Bjarney Grendal Jóhannesdóttir og leggur fram eftirfarandi fyrirspurn:

      Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 10. maí 2017 var samþykkt að við endurskoðun á samstarfssamningi við ÍBH yrði til framtíðar gengið út frá 100% eignarhlut bæjarins í íþróttamannvirkjum sem byggð yrðu með þátttöku sveitarfélagins.

      Á grundvelli þeirrar samþykktar og í kjölfar ákvörðunar sem tekin var í bæjarráði um stefnubreytingu varðandi uppbyggingu knatthúss í Kaplakrika óska undirritaðir bæjarfulltrúar eftir upplýsingum um stefnu núverandi meirihluta varðandi byggingu íþróttamannvirkja og hvort til standi að afturkalla samþykkt bæjarstjórnar frá 10. maí 2017.

      Óskað er eftir að svör liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls öðru sinni tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og kemur að svohljóðandi bókun:

      Fram kom í máli bæjarstjóra að bæjarfulltrúar hefðu átt að kynna sér eignaskiptasamninga vegna svæðisins á Kaplakrika. Undirrituð bendir á að eignaskiptasamningar hafa ekki legið fyrir í gögnum fyrr en í aðdraganda fundarins nú í dag og þá í kjölfar beiðna fulltrúa minnihlutans, hvorki gildandi samningur né drög að breyttum eignaskiptum.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Ágúst Bjarni Garðarsson kemur að andsvari. Adda María svarar andsvari. Ágúst Bjarni kemur að andsvari öðru sinni og Adda María svarar andsvari öðru sinni.

      Til máls tekur Sigurður Þ. Ragnarsson.

      Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir.

      Adda María Jóhannsdóttir kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd minnihlutans:

      Fulltrúar Samfylkingarinnar, Bæjarlistans, Miðflokks og Viðreisnar gera athugasemd við rýr svör við fyrirspurninni sem hér liggur fyrir. Spurt var um stefnu núverandi meirihluta varðandi byggingu íþróttamannvirkja. Svörin eru óljós og því ekki svarað hvort kollvarpa eigi þeirri þverpólitísku samstöðu sem ríkti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þegar ákveðið var þann 10. maí 2017 að til framtíðar yrði gengið út frá 100% eignarhlut bæjarins í íþróttamannvirkjum sem byggð yrðu með þátttöku sveitarfélagsins.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Friðþjófur Helgi Karlsson
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigurður Þ. Ragnarsson

    • 1509727 – Íþróttafélög, þjónustusamningur

      Lagt fram svar við fyrirspurnum.
      3.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl.
      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Rósa Guðbjartsdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari öðru sinni.

      Til máls öðru sinni tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Gubjartsdóttir. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari.

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur máls og kemur að eftirfarandi fyrirspurnum:

      Sveitarstjórnarlög kveða meðal annars á um ábyrga meðferð bæjarfulltrúa á fjármunum sveitarfélagsins en í 65 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 segir m.a. eftirfarandi: „Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti…“

      Eitt af þeim húsum á Kaplakrika sem nú er fyrirhugað að kaupa (íþróttahús) er talið hafa verið gefið FH af bæjarstjórn árið 1989. Samkvæmt samkomulagi sem gert var þar um var gert ráð fyrir að ýmis skilyrði yrðu uppfyllt frá og með árinu 2005, sem virðist síðan ekki hafa verið gert. Hinn eiginlegi gjafagjörningur hefur þannig ekki farið fram og er húseignin enn færð sem eign bæjarsjóðs í bókum sveitarfélagsins, að 80% hluta. Ljóst er miðað við það að hinn meinti gjafagjörningur hefur ekki verið gjaldfærður í bókum bæjarins. Komi til þess nú að bærinn kaupi húsnæðið að fullu þarf m.a. að gjaldfæra gjafagjörninginn.

      Gangi ætlan meirihlutans eftir í þessu máli óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta svara við því hvernig ætlunin sé að mæta útgjöldum vegna þessa meinta gjafagjörnings upp á hundruð milljóna króna í ársreikningi sveitarfélagsins 2018 þannig að ekki verði halli á rekstri A hluta bæjarsjóðs. Einnig er óskað svara við því hvernig þessi fyrirhuguðu kaup á eigin eign eru talin samræmast 65. gr. sveitarstjórnarlaga um ábyrga meðferð fjármuna sveitarfélagsins.
      Svara er óskað eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar

      Samkvæmt upplýsingum frá fyrrverandi forseta bæjarstjórnar var utanaðkomandi lögfræðingur að vinna að minnisblaði varðandi framangreint samkomulag við FH í lok síðasta kjörtímabils fyrir sveitarfélagið.

      Með vísan til þess óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir að þetta minnisblað verði lagt fram, eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir.

      Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Ingi Tómason kemur upp í andsvar við ræðu Guðlaugar. Guðlaug svarar andsvari. Ingi kemur að andsvari öðru sinni. Guðlaug svarar andsvari öðru sinni. Ingi kemur að stuttri athugasemd.

      Adda María kemur að svohljóðandi bókun:

      Fulltrúar Samfylkingar, Bæjarlistans og Viðreisnar gera athugasemd við það svar sem gefið er við framlagðri fyrirspurn sem segir að færslan hafi ekki áhrif á sjóðsstreymi. Fyrirspurnin varðaði rekstur A-hluta bæjarsjóðs enda hlýtur bakfært virði 80% hlutar Hafnarfjarðarbæjar að koma einhvers staðar fram í bókhaldi sveitarfélagsins. Sömuleiðis hlýtur það þá að hafa áhrif rekstrarniðurstöðu ársins. Því ítrekum við fyrirspurn okkar varðandi það hvaða áhrif sá bókhaldsgjörningur að fullnusta gjafagjörning á hlut bæjarins í íþróttahúsi í Kaplakrika hafi á rekstur A hluta bæjarsjóðs.

    • 1702357 – Reglur um eftirlitsnefnd með fjármálum íþrótta- og æskulýðsfélaga

      Lagt fram svar við fyrirspurnum.
      4.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl.
      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari.

      Jón Ingi Hákonarson tekur til máls og leggur fram eftirfarandi fyrirspurnir:

      Eftir því sem næst verður komist var í þeim forsendum sem lágu til grundvallar útreikningi á leiguverði sem bærinn hefur greitt til FH vegna leigu á tímum í Risanum, knatthúsi, á sínum tíma gert ráð fyrir að leigan myndi duga til að greiða rekstrarkostnað vegna knatthússins og afborganir og vexti af lánum sem tekin voru vegna byggingar húsnæðisins, á umsömdum leigutíma.

      Með vísan til þessa er óskað eftir því að endurskoðandi bæjarins verði fenginn til að sannreyna þessar upplýsingar. Reynist þær réttar óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar svara meirihlutans á því hvort hann telji réttlætanlegt og hvort það sé í samræmi við gr. 65 í sveitarstjórnarlögum um ábyrga meðferð fjármuna að greiða nú FH fullt verð fyrir Risann og þá í reynd fjármagna húsið í annað skipti.
      Óskað er eftir að svar við fyrirspurninni verði lagt fram eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Með vísan til 65. gr. sveitarstjórnarlaga óska undirritaðir bæjarfulltrúa minnihluta bæjarstjórnar eftir því að endurskoðandi bæjarins verði fenginn til að greina hvernig leigugreiðslum frá bænum vegna Risans hefur verið ráðstafað frá upphafi leigutímans. Í því sambandi verði gerð ítarleg greining á rekstrarreikningum FH-knatthúsa ehf. frá upphafi.

      Óskað er eftir að greiningin liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls öðru sinni tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og leggur fram eftirfarandi fyrirspurnir:

      Í þeim viðræðum sem fram fóru við forsvarsmenn FH á síðasta kjörtímabili varðandi knatthús kom fram að umtalsverðar skuldir hvíla á knatthúsunum sem nú er gert ráð fyrir að kaupa og greiða fyrir að fullu.
      Með vísan til þess óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir nákvæmum upplýsingum um hversu háar þessar skuldir eru samtals og hvernig FH hyggst standa undir greiðslu afborgana og vaxta vegna þeirra. Jafnframt er óskað svara við því hvort gert sé ráð fyrir að bærinn leigi tíma af FH í nýja húsinu. Ef svo er, hvað er gert ráð fyrir að greitt verði mikið fyrir þá tíma?

      Óskað er eftir að upplýsingarnar verði lagðar fram eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Á undanförnum árum hefur FH tekið að sér ýmsar framkvæmdir á athafnarsvæði FH fyrir hönd bæjarins. Um er að ræða m.a. flýtiframkvæmdasamning, greiðslu á sl. ári vegna efnistöku af stæði væntanlegs knatthúss ofl. Fyrir þetta hefur bærinn greitt að fullu til FH. Mikilvægt er að áður en gengið verður til frekari samninga við FH liggi fyrir hvort félagið hafi gert upp að fullu við þá verktaka sem unnið hafa vegna framangreinda verka.

      Með vísan til þessa óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir því að endurskoðandi bæjarins verði fenginn til að sannreyna að engar skuldir séu vegna þessara framkvæmda.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Guðlaug svarar andsvari. Ingi Tómason kemur næst í andsvar við ræðu Guðlaugar sem svarar svo andsvari.

      Adda María tekur næst til máls. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Adda María svarar andsvari. Ágúst Bjarni kemur til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni. Ingi Tómason kemur einnig til andsvars við ræðu Öddu Maríu og Adda María svarar andsvari. Ingi Tómason kemur til andsvars öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni. Ingi kemur að stuttri athugasemd einnig stutt athugasemd frá Öddu Maríu.

      Til máls öðru sinni tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Guðlaug svarar andsvari. Ágúst Bjarni kemur til andsvars öðru sinni.

      Adda María kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd Samfylkingar, Viðreisnar og Bæjarlistans:

      Í svar við fyrsta lið fyrirspurnarinnar, um rekstrartölur FH knatthúsa, vantar síðustu tvö ár, 2016 og 2017. Hér með er fyrirspurnin ítrekuð, hvað varðar þessi tvö ár og farið fram á að sambærileg úttekt verði gerð af endurskoðanda fyrir þessi tvö ár eins og árin 2008-15. Varðandi annan lið fyrirspurnarinnar er því ekki svarað hvernig FH hyggist standa skil á fyrirliggjandi skuldum, sem nema alls um 330 milljónum. Ýjað er að því að greiðslur muni byggja á leigugreiðslum frá bænum vegna nýs húss. Óskað er eftir staðfestingu á því, hvort svo sé og hver verði þá nauðsynleg leiguupphæð árlega, þ.e. hver kostnaður bæjarins verði til framtíðar litið vegna þessara skulda. Í þriðja lið var óskað eftir að endurskoðandi bæjarins yrði fenginn til að sannreyna að engar skuldir séu vegna þessara framkvæmda. Átt er við dagsetningu framlagningar fyrirspurnarinnar hvað varðar þessa greiðslustöðu, þ.e. hver staðan var þann 15. ágúst 2018. Ítrekað að þeirri beiðni verði svarað.

    • 1801099 – Kaplakriki, framkvæmdir

      Lagt fram svar við fyrirspurnum.
      Skipan í starfshóp.
      5.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Einnig tekur til máls Sigrún Sverrisdóttir og leggur fram eftirfarandi fyrirspurn:

      Þar sem engin gögn lágu fyrir fundi bæjarráðs þann 8. ágúst sl. þar sem ákvörðun um breytt áform varðandi byggingu knatthúss í Kaplakrika var tekin óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir verðmati og ástandsmati á íþróttamannvirkjum í Kaplakrika þeim er um ræðir í rammasamkomulaginu og til stendur að bærinn kaupi.

      Svör við fyrirspurninni liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Á fundi bæjarráðs þann 8. ágúst sl. þar sem ákvörðun var tekin um breytt áform varðandi byggingu knatthúss í Kaplakrika kom fram að niðurstaða í útboði vegna framkvæmdanna hafi verið kærð og kæruferli sé í gangi. Undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar óska eftir upplýsingum um stöðu bæjarins og framkvæmda í Kaplakrika gagnvart þeirri kæru og hvort heimilt sé að fara í innkaupaferli vegna knatthússins áður en kærumálið er útkljáð.

      Óskað er eftir að svör liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og leggur fram svohljóðandi bókun:

      Undirrituð gerir alvarlega athugsemd við að bæjarfulltrúar og bæjarráð skuli ekki hafa verið upplýst um kæru sem borist hefur vegna útboðsferlis vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Kaplakrika. Spurst var fyrir um kæruna á fundi bæjarráðs í síðustu viku og upplýsti bæjarlögmaður að vinna væri í gangi vegna hennar. Undirrituð lýsir furðu á þeim vinnubrögðum að upplýsa ekki kjörna fulltrúa um kæru á hendur bæjarfélaginu við fyrsta mögulega tækifæri, en kæran barst í júnímánuði. Ekki síst þegar um er að ræða mál sem er í vinnslu og í ljósi þess að umræða kjörinna fulltrúa um kostnaðaráætlun og tilboðsverð er augljóslega viðkvæm í ljósi þessa kæruferlis.

      Fundarhlé kl: 10:59.

      Fundi framhaldið kl. 11:09.

      Bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir tekur til máls og leggur fram tillögu um að ákvörðun bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar frá 8.8.sl. um rammasamkomulag Hafnarfjarðarfjarðarkaupstaðar og Fimleikafélags Hafnarfjarðar um eignaskipti og framkvæmdir við nýtt knatthús í Kaplakrika verði hér með staðfest.

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls og leggur fram dagskrártillögu um að þessum lið verði tekið fyrir eftir að liður 6 hafi verið ræddur, orðrétt er tillagan svohljóðandi:

      “Undirrituð leggur til dagskrártillögu um að fresta því að ljúka máli nr. 5, taka mál nr. 6 fyrir áður en til afgreiðslu tillögu bæjarstjóra komi. Ég legg þetta til vegna þess að undir máli nr. 6 mun minnihluti leggja fram gögn og upplýsingar sem eru til þess fallin að hafa áhrif á atkvæðagreiðslu um tillöguna frá bæjarráðsfundinum í síðustu viku, um rammasamkomulag. Þegar lið nr. 6 verði lokið, verði haldið áfram með lið 5 og gengið til atkvæða um tillögu bæjarstjóra.”

      Adda María Jóhannsdóttir tekur til máls undir fundarsköpum. Einnig Rósa Guðbjartsdóttir. Adda María tekur til máls öðru sinn um fundarsköp. Einnig tekur Ólafur Ingi Tómasson til máls undir fundarsköpum. Þá tekur Adda María til máls þriðja sinni undir fundarsköpum, einnig Ólafur Ingi öðru sinni og næst Guðlaug Kristjánsdóttir.

      Fundarhlé kl. 11:31.

      Fundi framhaldið kl. 11:41.

      Ber forseti framkomna dagskrártillögu Guðlaugar Kristjánsdóttur, um að þessi liður verði tekin fyrir eftir lið 6, upp til atkvæða. Er tillagan felld með 6 atkvæðum fulltrúa meirihluta gegn 5 atkvæðum minnihluta.

      Fundarhlé kl. 11:45.

      Fundi framhaldið kl. 12:12.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir og leggur fram svohljóðandi bókun vegna dagskrártillögu sem afgreidd hefur verið:

      Undirritaðir bæjarfulltrúar lýsa furðu á því að bæjarfulltrúar meirihluta hafni því að umræða um 6. lið á dagskránni fari fram áður en framlögð tillaga bæjarstjóra um rammasamkomulag verði afgreidd, ekki síst í ljósi þess að fulltrúar minnihluta hafa lýst því yfir að í 6. lið muni koma fram upplýsingar sem hafi bein áhrif á möguleika bæjarfulltrúa til að taka upplýsta afstöðu. Hér er því verið að hindra bæjarfulltrúa í því að taka upplýsta ákvörðun. Minnt er á að bæjarfulltrúar eru einungis bundnir af eigin sannfæringu sem þeir eiga rétt á að fá svigrúm til að mynda sér á grundvelli upplýsinga.

      Svo virðist sem meirihlutinn nálgist umræðuna á þessum fundi sem málamyndagjörning, rétt eins og rammasamkomulagið sem keyrt var í gegn í síðustu viku í bæjarráði. Ef ekki er vilji til að hlýða á rök í málinu til enda, getur ekki verið mikil alvara á bakvið þátttöku meirihluta í þessu samtali.

      Einnig leggur Guðlaug fram svohljóðandi tillögu fyrir fundinn:

      “Í 65. grein sveitarstjórnarlaga kemur fram að sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins. Á fundi bæjarstjórnar í dag hefur margsinnis verið innt eftir því og gagna óskað, hvort tillaga um rammasamkomulag sem afgreidd var í bæjarráði í síðustu viku standist sveitastjórnarlög, sérstaklega 65. grein. Óskað hefur verið eftir svörum við þessum spurningum fyrir næsta fund bæjarstjórnar, sem er áætlaður eftir slétta viku. Þar sem hér er um grundvallarspurningar í þessu máli að ræða er þess krafist að ekki verði teknar ákvarðanir í því fyrr en öll svör liggja fyrir. Því leggur minnihlutinn til að máli nr. 5 sé frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.”

      Forseti ber upp framkomna tillögu um frestun málsins og er hún felld með 6 atkvæðum meirihluta gegn 5 atkvæðum minnnihluta.

      Næst ber forseti upp framkomna tillögu bæjarstjóra, um að ákvörðun bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar frá 8.8.sl. um rammasamkomulag Hafnarfjarðarfjarðarkaupstaðar og Fimleikafélags Hafnarfjarðar um eignaskipti og framkvæmdir við nýtt knatthús í Kaplakrika verði hér með staðfest. Er tillagan samþykkt með 6 atkvæðum meirihluta gegn 5 atkvæðum minnnihluta.

      Óskar Guðlaug Kristjánsdóttir eftir nafnakalli:

      Adda María Jóhannsdóttir Já
      Ágúst Bjarni Garðarsson Já
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir Nei
      Guðbjörg Oddný Já
      Guðlaug Kristjánsdóttir Nei
      Jón Ingi Hákonarson Nei
      Kristín María Thoroddsen Já
      Ólafur Ingi Tómsson Já
      Rósa Guðbjartsdóttir Nei
      Sigrún Sverrisdóttir Nei
      Kristinn Andersen Já

      Adda María gerir grein fyrir atkvæði sínu. Einnig Guðlaug Kristjánsdóttir, Jón Ingi Hákonarson, Sigrun Sverrisdóttir og Bjarney Grendal Jóhannesdóttir.

      Adda María leggur fram svohljóðandi bókun:

      Undirritaðir fulltrúar minnihluta bæjarstjórnar draga í efa að þessi ákvörðun meirihluta standist 65. gr. sveitarstjórnarlaga um ábyrga meðferð fjármuna sveitarfélaga og munum við vísa samþykkt meirihluta bæjarstjórnar í dag til úrskurðar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Ágúst Bjarni Garðasson kemur að andsvari. Adda María svarar andsvari. Ágúst Bjarni kemur til andsvars öðru sinni.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Ingi Tómasson. Guðlaug svarar andsvari. Ingi kemur í andsvar öðru sinni. Guðlaug svarar andsvari öðru sinni.

      Til máls tekur Kristín María Thoroddsen. Til andsvars kemur Guðlaug Krisjánsdóttir. Einnig til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir og Sigurður Þ. Ragnarsson. Kristín Thoroddsen svarar andsvari. Ágúst Bjarni Garðarsson kemur einnig í andsvar við ræðu Kristínar.

      Adda María tekur til máls undir fundarsköpum.

      Guðlaug Kristjánsdóttir leggur fram svohljóðandi tillögu:

      Undirrituð leggur til að í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komið hér í dag, í svörum við fyrirspurnum minnihluta varðandi mál er lúta að framkvæmdum í Kaplakrika á grunni nýsamþykkts rammsamkomulags, að öllum ákvörðunum í þessu máli verið frestað þar til farið hefur verið í gegnum þessar upplýsingar, fjárhagslegar forsendur og öll þessi samskipti. Jafnframt hafa verið lagðar fram fleiri fyrirspurnir í málinu sem gefa tilefni til þess að beðið verði með frekari framkvæmdir og ákvarðanir á grunni rammasamkomulagsins þar til þeim hefur verið svarað.

      Fundarhlé kl. 21:04.

      Fundi framhaldið kl. 21:15.

      Ber forseti tillöguna upp til atkvæða og er óskað eftir nafnakalli.

      Adda María Jóhannsdóttir Nei
      Ágúst Bjarni Garðarsson Nei
      Friðþjófur Helgi Karlsson Já
      Guðlaug Kristjánsdóttir Já
      Helga Ingólfsdóttir Situr hjá
      Jón Ingi Hákonarson Já
      Kristín María Thoroddsen Nei
      Ólafur Ingi Tómsson Nei
      Rósa Guðbjartsdóttir Já
      Sigurður Þ Ragnarsson Situr hjá
      Kristinn Andersen Nei

      Tillagan er felld með 5 atkvæðum nei gegn 4 atkvæðum já. Tveir bæjarfulltrúar sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

      Adda María gerir grein fyrir atkvæði sínu. Einnig Friðþjófur Helgi Karlsson, Jón Ingi Hákonarson. Guðlaug Kristjánsdóttir kemur að svohljóðandi bókun.

      Frestun á framkvæmd rammasamkomulags jafngildir ekki því að hætt sé við að byggja knatthús, heldur að það verði byggt af bænum á grunni útboðs, líkt og samþykkt var í fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.

      Sigurður Þ Ragnarsson gerir einnig grein fyrir atkvæð sínu.

    • 1806224 – Bæjarstjórn, starfsumhverfi 2018-2022

      Lagt fram svar við fyrirspurnum.
      6.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl.
      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Adda María svarar andsvari.

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls. Bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir kemur til andsvars.

      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir. Jón Ingi svarar andsvari.

      Guðlaug Kristjánsdóttir tekur til máls öðru sinni.

      Adda María tekur til máls öðru sinni og ber upp eftirfarandi fyrirspurnir:

      Vegna yfirlýsinga bæjarstjóra í Morgunblaðinu laugardaginn 11. ágúst sl. óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar skýringa á ummælum bæjarstjóra þar sem hún segir það tilviljun að þetta mál væri tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 8. ágúst sl. þegar til hans var einmitt boðað sérstaklega vegna málsins.
      Óskað er eftir að svör við fyrirspurninni liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Í ljósi þess hversu skyndilega boðað var til fundar bæjarráðs hinn 8. ágúst sl. með minnsta löglega fyrirvara á grundvelli þess að flýta þyrfti málinu óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir gögnum sem varpað geta ljósi á hina óvæntu framvindu í málinu sem kallaði á slíka flýtimeðferð að ekki mátti bíða þess að ná bæjarstjórn saman.

      Óskað er eftir að gögn liggi fyrir eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Einnig leggur Adda María fram svohljóðandi bókun:

      Ákvörðun um breytt áform varðandi byggingu knatthúss var tekin á skyndifundi sem haldinn var í bæjarráði þann 8. ágúst sl. þar sem einungis 3 af 11 bæjarfulltrúum samþykktu stefnubreytingu í málefnum er varða uppbyggingu á íþróttamannvirkjum. Fulltrúar fengu afar skamman fyrirvara á málinu og skorti verulega á gögn og upplýsingar varðandi forsendur þess.

      Fulltrúar þeirra flokka sem sitja í minnihluta bæjarstjórnar draga lögmæti ákvörðunarinnar í efa og hafa leitað álits hjá lögfræðingum Samband íslenskra sveitarfélaga þar að lútandi. Álitið staðfestir þann skilning okkar að ákvörðunin standist ekki sveitarstjórnarlög og því beri að ógilda hana. Í álitinu (sem fylgir málinu) kemur m.a. fram að heimild byggðarráðs til töku fullnaðarákvörðunar eigi einungis við þegar ekki er um að ræða verulega fjárhagslega hagsmuni og að ákvörðunin rúmist innan fjárhagsáætlunar. Í álitinu er áréttað að óheimilt sé að víkja frá formlegu skilyrði sem fram kemur í 1. málsl. 5. mgr. 35. gr. „að ágreiningur má ekki vera innan ráðsins um afgreiðsluna,“ Einnig er í álitinu vísað í dóm sem féll í Héraðsdómi Vesturlands þann 21. mars 2007 þegar ákvörðun bæjarráðs Snæfellsbæjar var talin ólögmæt þar sem ekki hafi verið einhugur um ákvörðunina í bæjarráði.

      Á grundvelli þessa álits fara undirritaðir fulltrúar minnihluta bæjarstjórnar fram á að umrædd ákvörðun bæjarráðs frá 8. ágúst sl. verði ógilt og hún afturkölluð vegna formgalla og ekki aðhafst frekar í málinu þar til spurningum þeim sem lagðar hafa verið fram á fundinum hefur verið svarað. Í kjölfarið getur málið fengið meðferð í samræmi við samþykktir bæjarins og ákvæði sveitarstjórnarlaga.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Bjarney Grendal Jóhannesdóttir
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson
      Sigrún Sverrisdóttir

      Ágúst Bjarni Garðarsson kemur upp í andsvar.

      Fundarhlé kl. 13:08.

      Fundi framhaldið kl. 13:16.

      Ágúst Bjarni tekur til máls og leggur fram svohljóðandi bókun:

      Formaður bæjarráðs óskar eftir að bókað verði að bæjarlögmanni verði falið að kalla eftir áliti Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fulltrúar minnihlutans hafa vitnað hér til á fundi bæjarstjórnar.

      Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur Ágúst Bjarni Garðarsson. Adda María svarar andsvari.

      Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir.

      Einnig tekur til máls Ingi Tómasson og leggur fram svohljóðandi tillögu: “Bæjarstjórn samþykki að fundir bæjarstjórnar hefjist kl. 14:00 héðan í frá”.

      Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir.

      Einnig tekur til máls Adda María Jóhannsdóttir. Ingi Tómasson kemur upp í andsvar. Adda María svarar andsvari. Ingi kemur í andsvar öðru sinni. Adda María svarar andsvari öðru sinni og leggur fram tillögu um að forsetanefnd verði fali að skoða fundartíma bæjarstjórnar og leggja fram tillögu í þeim efnum. Ágúst Bjarni Garðarsson kemur upp í andsvar.

      Forseti ber upp framkomna tillögu upp um að forsetanefnd skoði á fundartíma bæjarstjórnar og leggi fram tillögu í eim efnum og er hún samþykkt samhljóða.

      Adda María Jóhannsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun sem á við um fyrri hluta umræðu undir þessum dagskrárlið:

      Fulltrúar Samfylkingar, Bæjarlistans og Viðreisnar gera alvarlegar athugasemdir við þau svör sem fram koma við fyrirspurnum okkar undir þessum lið. Það var ekki tilviljun að málið kom upp í sumarfríi þannig að boða þyrfti til aukafundar í bæjarráði með minnsta löglega fyrirvara. Það var öllum ljóst að til fundarins var boðað einmitt boðað sérstaklega vegna þessa máls.
      Við ítrekum einnig óskir okkar um gögn sem varpað gætu ljósi á þá framvindu sem kallaði á slíka flýtimeðferð í málinu. Þau gögn liggja ekki fyrir og svar það sem er lagt fram hér í dag gefur engar skýringar á því hvers vegna málið hafi verið keyrt í gegn með svo miklum flýti.

      Adda María Jóhannsdóttir
      Friðþjófur Helgi Karlsson
      Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir
      Jón Ingi Hákonarson

    • 1808353 – Fatlað fólk, íbúðir, fyrirspurn

      Íbúðir fyrir fatlað fólk
      Tillaga frá fulltrúum Samfylkingarinnar
      Í lögum um málefni fatlaðs fólks er kveðið á um rétt fatlaðs fólks til búsetuúrræða í samræmi við þarfir og óskir eins og kostur er. Í ljósi langra biðlista og langs biðtíma fatlaðs fólks eftir húsnæði við hæfi felur bæjarstjórn Fjölskylduráði að hefja þegar í stað athugun á því hvernig hægt sé að vinna bug á þeim bráðavanda sem blasir við í þessum málaflokki. Athuguninni skal lokið fyrir fyrir lok október svo hægt verði að gera ráð fyrir fjármögnun verkefnisins í fjárhagsáætlun næsta árs.

      Greinargerð:
      Allir eiga rétt á þaki yfir höfuðið og fatlað fólk á rétt á búsetuúrræðum í samræmi við þarfir og óskir eins og kostur er líkt og kveðið er á um í lögum um málefni fatlaðs fólks. Það er á ábyrgð bæjarstjórnar að leysa húnsæðisþörf þess fólks sem þarfnast aðstoðar við húsnæðisöflun. Bæjarstjórn á einnig að hafa frumkvæði að því að leysa úr húsnæðisvanda þessa hóps. Skv. svörum Fjölskyldusviðs við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar í Fjölskylduráði eru 56 einstaklingar á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði. Af þessum 56 eru 28 einstaklingar í brýnni þörf og gætu flutt inn í nýja íbúð strax í dag. Í sama svari Fjölskyldusviðs kemur einnig fram að flestir einstaklingar á biðlistanum hafi sótt um íbúð fyrir 5 árum og að meðalbiðtími eftir íbúð sé 6 ár. Þessi staða er óásættanleg og löngu tímabært að bæjarstjórn taki á vandanum. Mikilvægt er að þessi vinna hefjist sem fyrst og að henni ljúki tímanlega fyrir gerð fjárhagsáætlunar næsta árs svo hægt verði að fjármagna þær lausnir sem Fjölskylduráð leggur til strax á næsta ári.

      Til máls tekur Friðþjófur Helgi Karlsson. Til andsvars kemur Rósa Guðbjartsdóttir. Friðþjófur Helgi svarar andsvari.

      Einnig tekur til máls Sigurður Þ. Ragnarsson.

      Þá tekur Helga Ingólfsdóttir til máls.

      Adda María Jóhannsdóttir kemur til andsvars við ræðu Helgu.

      Til máls tekur Jón Ingi Hákonarson.

      Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir.

      Forseti ber upp þá tillögu sem liggur fyrir fundinum fá fulltrúum Samfylkingarinnar og er hún samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

      Helga Ingólfsdóttir leggur fram svohljóðandi bókun fyrir hönd meirihlutans:

      Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsókn og óháðra taka undir bókun Fjölskylduráðs frá 31. ágúst 2018 og leggja áherslu á að lögð verði fram áætlun um fjölgun íbúða fyrir fatlaða á næsta fundi ráðsins, bæði sértæk búsetuúrræði og almennar íbúðir í félagslega íbúðakerfinu.

      Sigurður Þ. Ragnarsson leggur einnig fram svohljóðandi bókun:

      Bókun frá bæjarfulltrúa Miðflokksins:
      Bæjarfulltúi Miðflokksins lýsir þungum áhyggjum yfir þeim alvarlega hússnæðisvanda sem við blasir gagnvart fötluðu fólki. Tæplega 30 manns eru í brýnum vanda og þetta fólk má þola að bíða að meðaltali í 6 ár eftir úrlausn sinna mála.
      Ennfremur búa um 40 bæjarbúar við það að vera hússnæðislausir nú þegar og slíkt er algjörlega óviðunandi.
      Setja verður þessi mál í algjöran forgang t.d. með stofnun starfshóp sem færþað hlutverk að finna lausn á bráðasta vandanum en lagaskylda hvílir á herðum sveitarfélagsins að finna úrlausnir í þessum efnum, jafnvel þó það sé til bráðabirgða.

    Fundargerðir

    • 1801218 – Fundargerðir 2018, til kynningar í bæjarstjórn.

      Fundargerð fjölskylduráðs frá 31.ágúst sl.
      Fundargerð bæjarráðs frá 30.ágúst sl.
      a. Fundargerð hafnarstjórnar frá 22.ágúst sl.
      b. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.ágúst sl.
      c. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 21.ágúst sl.
      d. Fundargerð stjórnar SSH frá 13.ágúst sl.
      e. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 17.ágúst sl.
      f. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17.ágúst sl.
      Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 29.ágúst sl.
      a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 17.ágúst sl.
      b. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 17.ágúst sl.
      Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 28.ágúst sl.
      Fundargerð fræðsluráðs frá 29.ágúst sl.
      Fundargerð forsetanefndar frá 3.september sl.

      Helga Ingólfsdóttir tekur til máls undir 5. lið á dagskrá fjölskylduráðs frá 31.ágúst sl. Adda María kemur til andsvars.

      Friðþjófur Helgi Karlsson tekur til máls undir 6. lið á dagskrá fjölskylduráðs frá 31.ágúst sl.

      Adda María Jóhannsdóttir tekur til máls undir 10 lið. í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 29.ágúst sl. og 11. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 29.ágúst sl. Til andsvars kemur Kristín Thoroddsen og Adda María svarar andsvari.

      Friðþjófur Helgi tekur til máls öðru sinni og nú undir undir 10 lið. í fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 29.ágúst sl. og 11. lið í fundargerð fræðsluráðs frá 29.ágúst sl.

Ábendingagátt