Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mættir eru allir aðalbæjarráðsfulltrúar.
Auk þess sátu fundinn Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.
Valdimar Víðisson formaður bæjarráðs setti fundinn og stýrði honum.
Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri Sorpu mætir til fundarins og fer yfir næstu verkefni Sorpu og helsu áskoranir framundan.
Bæjarráð þakkar Jóni Viggó Gunnarssyni fyrir góða kynningu.
Lögð fram rekstrargreining fyrir Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins og minnisblað verkefnastjóra um næstu skref. Björn H. Reynisson verkefnastjóri og Sævar Kristinsson frá KPMG mæta til fundarins.
Bæjarráð þakkar Birni H. Reynissyni og Sævari Kristinssyni fyrir kynninguna.
Lagður fram til samþykktar samningur milli Hafnarfjarðarbæjar og Gym heilsu um leigu á kjallara Suðurbæjarlaugar fyrir líkamsræktarstöð. Samningurinn er samhljóma samningi milli sömu aðila um leigu á líkamsræktaraðstöðunni í Ásvallalaug. Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi mætir til fundarins og kynnir samninginn.
Bæjarráð samþykkir samning milli Hafnarfjarðarbæjar og Gym heilsu um leigu á kjallara Suðurbæjarlaugar fyrir líkamsræktarstöð.
Yfirferð jafnréttismála og jafnréttistefna. Ása Bergsdóttir lögfræðingur og Lind Einarsdóttir mannauðsráðgjafi mæta til fundarins.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram tillaga að breytingum á gjaldskrá vegna lóðarverðs. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á gjaldskrá vegna lóðaverðs ásamt breytingum á samþykkt Hafnarfjarðarkaupstaðar um gatnagerðargjald. Tillögunum vísað í bæjarstjórn til staðfestingar.
Árshlutareikninur 30.06.2022 lagður fram. Guðmundur Sverrisson og Andri Berg Haraldsson mæta til fundarins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Niðurstöður árshlutareiknings Hafnarfjarðarbæjar eru verulegt áhyggjuefni. Hallarekstur upp á rúman einn og hálfan milljarð króna er staðreynd og langt frá áformum sem finna má í fjárhagsáætlun bæjarins. Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarráði hafa í sumar varað við erfiðri fjárhagsstöðu bæjarins og blikum á lofti í þeim efnum. Samfylkingin hefur kallað eftir viðbrögðum og tillögum meirihlutans í, en engin svör fengið. Fulltrúar meirihlutans hafa aftur á móti afneitað staðreyndum og sagt ástand fjármála bæjarins í góðu lagi. Nú eru staðreyndir skýrar. Reksturinn skilar umtalsverðum halla upp á hálfan annan milljarð. Og aðeins hálft árið að baki. Fyrirliggjandi eru fyrirheit um verulegar fjárfestingar á næstu mánuðum og misserum. Í þær verður tæpast ráðist nema fyrir lánsfé. Því er spurt: Hvað ætlar meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að gera í málinu? Hverjar eru tillögur meirihlutans til að snúa þessari öfugþróun við og treysta fjárhagslegan rekstrargrundvöll bæjarins? Nú þegar þarf að bregðast við.
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu. Til umræðu.
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi viljayfirlýsingu til staðfestingar í bæjarstjórn.
2.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 20.september sl. Fyrir fundinum liggur minnisblað sérstakan húsnæðisstuðning frá fjármálasviði.
Þann 1. Júlí síðastliðinn hækkuðu almennar húsnæðisbætur frá Húsbót um 10% ásamt því að frítekjumörk hækkuðu um 3%. Samkvæmt reglum Hafnarfjarðarbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning fá íbúar Hafnarfjarðarbæjar sérstakan húsnæðisstuðning þannig að greiddar eru 900 krónur fyrir hverjar 1000 krónur sem einstaklingur fær í húsnæðisbætur frá Húsbót.
Fjármálasvið Hafnarfjarðarbæjar hefur nú yfirfarið hækkun á almennum húsnæðisbótum frá Húsbót og leggur til eftirfarandi breytingar á reglum Hafnarfjarðarbæjar um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir íbúa Hafnarfjarðar: Eignamörk verði hækkuð um 3% og verði 6.664.673 kr. Skerðingarmörk verði hækkuð um 10% og verði eftir breytingu kr 90.200 kr.
Fjölskylduráð samþykkir hækkun á sérstökum húsnæðisstuðningi og að breytingin gildi frá 1. Júlí 2022.
Málinu vísað til Bæjarráðs til viðaukagerðar.
Fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um afturvirka leiðréttingu á greiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings:
1. Á einstaklingur rétt á afturvirkri leiðréttingu sérstaks húsnæðisstuðnings í þeim tilvikum þegar útreikningur sérstaks húsnæðisstuðnings hefur verið rangur hjá Hafnarfjarðarbæ vegna rangra upplýsinga um leigufjárhæð?
2. Á einstaklingur rétt á afturvirkri leiðréttingu sérstaks húsnæðisstuðnings hjá Hafnarfjarðarbæ þegar stuðningurinn skerðist vegna fjárhæðarskilyrðis sem segir að húsnæðiskostnaður megi ekki vera lægri en 50.000 kr. þegar sá liður er sannarlega hærri hjá viðkomandi einstaklingi?
Bæjarráð vísar hækkun á sérstökum húsnæðisstuðningi til fjármálasviðs til viðaukagerðar.
3.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 20.september sl. Skipað að nýju í verkefnastjórn hjúkrunarheimilisins á Sólvangi.
Verkefnastjórn um uppbyggingu á Sólvangsreitnum hefur starfað í umboði Bæjarráðs í tvö kjörtímabil og Fjölskylduráð beinir ósk til Bæjarráðs að skipað verði að nýju í verkefnastjórnina til þess að fylgja eftir þeim verkefnum sem er ólokið á reitnum.
Fulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi tillögu:
Fulltrúi Viðreisnar leggur til að starfshópurinn verði skipaður fulltrúum allra flokka til að gæta að þess að raddir allra kjósenda sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn heyrist.
Fulltrúar Samfylkingarinnar taka undir sjónarmið Viðreisnar og eru reiðubúnir til að fjölga um einn fulltrúa í verkefnastjórn þannig að svo megi verða.
Bæjarráðsfulltrúar meirihlutans benda á að í nefndum og starfshópum bæjarins er niðurstaða kosninga virt og venjan hefur verið að í tilvikum sem þessum skipti minnihlutinn hverju sinni með sér sætum. Því er vísað til fulltrúa minnihlutans að ná niðurstöðu um skiptingu fulltrúa í starfshópum sem þessum.
Framkomin tillaga frá fulltrúa Viðreisnar er næst borin upp til atkvæða og er hún felld þar sem allir fulltrúar bæjarráðs sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Viðreisnar leggur næst til svohljóðandi tillögu:
Í ljósi þess að Viðreisn fær ekki einn flokka að sinna lýðræðislegri skyldu sinni og þar með útiloka rödd Viðreisnar frá vinnu við stefnumótun þá leggur Viðreisn til að starfshópurinn verði einungis skipaður þremur fulltrúum, tveimur frá meirihluta og einum frá Samfylkingu. Með þessu móti má þá spara peninga fyrir bæjarsjóð.
Er framkomin tillaga næst borin upp til atkvæða og er hún samþykkt með 3 atkvæðum frá fulltrúum meirihluta en fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði gegn tilögunni.
Bæjarráð skipar eftirfarandi aðila í verkefnastjórn vegna hjúkrunarheimilis:
Ásgeir Harðarson, fulltrúi meirihluta. Helga Ingólfsdóttir, fulltrúi meirihluta Sigurður Þ. Ragnarsson, fulltrúi minnihluta
Skipun stýrihóps barnvæns sveitarfélags.
Bæjarráð staðfestir uppfært erindisbréf.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tilnefningar í stýrihóp:
Hildur Helga Gísladóttir Anna Kristín Jóhannesdóttir
Skipun starfshóps og lagt fram erindisbréf.
Í ljósi þess að Viðreisn fær ekki einn flokka að sinna lýðræðislegri skyldu sinni og þar með útiloka rödd Viðreisnar frá vinnu við stefnumótun þá leggur Viðreisn til að starfshópurinn verði einungis skipaður þremur fulltrúum, tveimur frá meirihluta og einum frá Samfylkingu. Með þessu móti má þá spara peninga fyrir bæjarsjóð. Er framkomin tillaga næst borin upp til atkvæða og er hún felld með fimm samhljóða atkvæðum.
Bæjarráðsfulltrúar meirihlutans telja að vegna umfangs verkefnisins sé mikilvægt að starfshópurinn verði skipaður fimm manns og vísa aftur til fulltrúa minnihlutans um að ná samkomulagi um skiptingu fulltrúa í starfshópum.
Bæjarráð staðfestir erindisbréf.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tilnefningar í starfshóp:
Valdimar Víðisson Kristín Thoroddsen Lovísa Traustadóttir Torfi H. Leifsson Hildur Rós Guðbjargardóttir
Fulltrúi Viðreisnar kemur að svohljóðandi bókun: Fulltrúi Viðreisnar harmar niðurstöðuna. Þessir hópar eru mikilvægur þáttur við stefnumótun málefna Hafnarfjarðarbæjar. Það að útiloka rödd tæplega 1200 kjósenda er miður.
Lagðar fram uppfærðar reglur um úthlutun lóða.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi breyttar almennar reglur um úthlutun lóða og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
Ásland 4, úthlutun lóða, 1.áfangi.
Bæjarráð samþykkir að lóðir í 1.áfanga Áslands 4 verði auglýstar til úthlutunar.
Úthlutun lóða.
Bæjarráð samþykkir að óska eftir tilboðum í lóðir við Hlíðabraut 10, 12, 14 og 16.
Svör við fyrirspurn Samfylkingarinnar um málefni Tækniskólans.
Fulltrúar Samfylkingar koma að svohljóðandi bókun:
Greinargerð bæjarstjóra ber með sér að þetta mál er á algjöru frumstigi og mikilvægt að setja stóraukinn kraft í undirbúning þess, ef áform um flutning Tækniskólans til Hafnarfjaðar eiga að raungerast á næstu árum.
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 7.september sl.
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 14.september sl.
Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 8.júlí sl.
Lögð fram fundargerð 38.fundar eigendafundar Sorpu bs. frá 5.september sl.
Lögð fram fundargerð 37.fundar eigendafundar Strætó bs. frá 5.september sl.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SSH frá 5. og 12.september sl.