Fjölskylduráð
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Mætt til fundar
- Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir formaður
- Helga Ingólfsdóttir varaformaður
- Kristín María Thoroddsen aðalmaður
- Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
- Fjölnir Sæmundsson aðalmaður
Ritari
- Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri
-
Almenn erindi
-
1605206 – Öldungaráð Hafnarfjarðar, fjárhagsáætlun 2017
Fulltrúar frá stjórn Öldungaráðs,Elísabet Valgeirsdóttir, Þórdís Bakkmann Kristinsdóttir, Gylfi Ingvarsson og Jóhanna Axelsdóttir mættu á fundinn og fóru yfir áhersluatriði vegna fjárhagsáætlunargerðar 2017.
Sviðinu er falið að móta, í samvinnu við ráðið, tillögur að frekari aðkomu eldri borgara að þeirra hagsmunamálum og stefnumótun í málaflokknum. Stefnt skuli að endurskoðun á starfsumhverfi Öldungaráðs. -
1606229 – Húsnæðismál
Málinu frestað til næsta fundar ráðsins.
-
1604587 – Þjónusta við langveik börn
Fjallað um málefni langveikra barna. Brýnt er að niðurstaða komist í verka- og kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við langveik börn þannig að óviðunandi óvissu í málaflokknum verði eytt. Óskað hefur verið eftir viðræðum við velferðarráðuneytið sem hér með er ítrekað.
-
1609187 – Útlendingastofnun
Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofunar mætir á fundinn.
Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofunar fór yfir stöðu málefna hælisleitenda.
Útlendingastofnun óskar eftir samningum við Hafnarfjarðarbæ um aukna þjónustu. Fjölskylduráð óskar eftir upplýsingum frá sviðnu um stöðu núgildandi samnings og reynslu af því verkefni fyrir næsta fund.
Málinu vísað til umsagnar í bæjarráði.
Kynning
-
1511268 – Barnavernd, málaflokkur, staða
Ólína Birgisdóttir, deildarstjóri barnaverndar mætti á fundinn og fór yfir stöðu barnaverndarmála, sjá meðfylgjandi minnisblað.
Málið skoðað á milli funda.
Fundargerðir
-
1506568 – Sólvangsvegur, hjúkrunarheimili Sólvangssvæði
-