Fjölskylduráð

25. október 2019 kl. 13:30

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Fundur 402

Mætt til fundar

  • Valdimar Víðisson formaður
  • Helga Ingólfsdóttir varaformaður
  • Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
  • Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður
  • Hulda Sólveig Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Þórður Ragnarsson áheyrnarfulltrúi

Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.

Ritari

  • Karlott Gunnhildarson ritari fjölskylduráðs

Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 1808503 – Fjölmenningarmál

      Ólafía Björk Ívarsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar mætir á fundinn.

      Umræður. Fjölskylduráð þakkar Ólafíu Björk Ívarsdóttur kærlega fyrir komuna.

    • 1512128 – Notendastýrð persónuleg aðstoð NPA

      Erindisbréf fyrir starfshóp lagt fram. Sviðsstjóra falið að uppfæra erindisbréfið. Skipað verður í starfshóp á næsta fundi fjölskylduráðs.

    • 1903560 – Sérhæfð akstursþjónusta í Hafnarfirði

      Lagt fram. Umræður.

    • 1505162 – Blindrafélagið, lögblindir íbúar Hafnarfjarðar, ferðaþjónusta, útfærsla og fyrirkomulag

      Kynning og umræður.

    • 1811177 – Félagslegar leiguíbúðir, kaup, fyrirspurn

      Fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um húsnæðismál

      Hækkun á leigu félagslegra íbúða

      1. Í ljósi gjaldskrárhækkana á gjaldskrám fjölskylduráðs er spurt hvort til standi að hækka leigu á félagslegum íbúðum hjá Hafnarfjarðarbæ? a. Ef svo er, hversu mikil er sú hækkun?

      Félagslegar íbúðir

      1. Hvað eru margar félagslegar íbúðir í Hafnarfirði og hversu margar eru þær á hverja þúsund íbúa bæjarfélagsins? 2. Hversu margir einstaklingar og fjölskyldur eru núna á biðlista eftir félagslegu húsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ? a. Hversu margir á biðlistanum teljast í brýnni þörf eftir húsnæði? b. Hver er meðalbiðtími fólks á biðlistanum eftir húsnæði? 3. Hversu margar íbúðir hefur Hafnarfjarðarbær keypt inn í félagslega húsnæðiskerfið á síðustu fjórum árum, sundurliðað eftir árum, þ.e. 2016, 2017, 2018 og 2019?

      Íbúðir fyrir fatlað fólk

      1. Hversu margir einstaklingar eru á biðlista eftir húsnæði fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði? a. Hversu margir á biðlistanum teljast í brýnni þörf eftir húsnæði? b. Hver er meðalbiðtími fólks á biðlistanum eftir húsnæði? 2. Hversu margar íbúðir fyrir fatlað fólk eru á framkvæmdastigi í Hafnarfirði í dag? 3. Hversu margar íbúðir fyrir fatlaða fólk voru byggðar í Hafnarfirði á sl. fjórum árum? Óskað er sundurliðunar eftir árum, þ.e. 2016, 2017, 2018 og 2019.

    Fundargerðir

Ábendingagátt