Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Guðríður Guðmundsdóttir staðgengill sviðsstjóra sat fundinn í fjarveru sviðsstjóra.
Á fundinn eru boðaðir fulltrúar frá Öldungaráði, Ráðgjafarráði fatlaðs fólks og Fjölmenningarráði vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022.
Fjölskylduráð þakkar fulltrúum Öldungaráðs og Fjölmenningarráðs kærlega fyrir gott innlegg. Umræður.
Fulltrúi ráðgjafaráðs fatlaðs fólks boðaði forföll.
Lagt fram svar við fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um félagslegt húsnæði í eigu Hafnarfjarðarbæjar.
Fulltrúi Miðflokksins þakkar Fjölskyldu og barnamálasviði og Sigríði Ólafsdóttur skýr svör við fyrirspurn minni. Sigurður Þ. Ragnarsson fulltrúi Miðflokksins í fjölskylduráði.
Lagðar fram upplýsingar um NPA samninga. Sérfræðingar frá fjármálasviði mæta á fundinn.
Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista leggja áherslu á að taxtar Hafnarfjarðarbæjar séu með þeim hætti að notendur NPA séu ekki vanda um hver mánaðamót að láta enda ná saman. Eðlilegast væri að fylgja töxtum NPA miðstöðvarinnar. Alvarlegt er ef notendur NPA eru settir í þá aðstöðu að þurfa að nýta sér færri tíma en þeim er úthlutað vegna þess að taxti Hafnarfjarðarbæjar dugar ekki til þess að notendur geti nýtt sér þá tíma sem þeir eiga rétt á. Þessu þarf að bregðast við strax.
Fulltrúar sjálfstæðisflokks og Framsóknar og óháðra óska bókað: Timagjald í NPA þjónustu er ákvarðað í samræmi við raunkostnaði notenda og hækkar árlega í samræmi við launavísitölu. Allt utanumhald um samninga og skil notenda hefur verið rýnt með það skýra markmið að tryggja fagmennsku og að notendur NPA fái þjónustu samkvæmt fyrirliggjandi samningum.
Lagðar fram upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrki eldri borgara. Guðmundur Sverrisson frá fjármálasviði mætir á fundinn.
Lögð fram kynning á útfærslu verkefnisins.
Fjölskylduráð þakkar vinnuhópnum fyrir þeirra störf. Tillaga vinnuhópsins er samþykkt. Gjöf til nýfæddra Hafnfirðinga er liður í því að efla Hafnarfjörð enn frekar sem fjölskylduvænt samfélag. Gjöfin er til þess að bjóða nýfædda Hafnfirðinga velkomna í samfélagið. Við ákvörðun á því hvað gjöfin á að innihalda voru umhverfissjónarmið m.a. höfð að leiðarljósi, notagildi og að gjöfin væri kynlaus. Fjölskylduráð felur vinnuhópnum að kynna þetta fyrir bæjarbúum og að fyrsta gjöfin verði afhent eins fljótt og hægt er. Fjölskylduráð leggur til að gjöf til nýfæddra Hafnfirðinga verði kölluð krúttkarfan. Vísað í bæjarstjórn til kynningar.
Fulltrúar Samfylkingar, Bæjarlista, Viðreisnar og Miðflokks styðja ekki afgreiðslu þessa máls. Áætlaður kostnaður á þessu kosningaloforði Framsóknarflokksins er rúmar 5 milljónir á næsta ári. Markmið verkefnisins eru óljós og undirrituð telja að hægt væri að nýta fjármuni bæjarbúa mun betur og með skilvirkari hætti í þágu barnafjölskyldna í bænum.
Fulltrúar Samfylkingar og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram drög að reglum vegna sérstaks íþrótta- og tómstundastyrks.
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 22/2021-23/2021 Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.
Lagðir fram fjórir úrskurðir úrskurðarnefndar velferðarmála.