Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.
Lögð fram tillaga um endurskoðun á erindisbréfi fjölskylduráðs í ljósi ýmissa breytinga s.s. á lögum og reglugerðum.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að leggja fram drög að endurskoðuðu erindisbréfi ráðsins.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að áfram verði settur aukinn kraftur í málefni og þjónustu við fatlað fólk. Lögð verði áhersla á samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks með það að markmiði að framfylgja öllum ákvæðum í þessum mikilvæga mannréttindasamningi.
Tillögunni er vísað til fjölskylduráðs þar sem fram fari greining á því hvernig Hafnarfjörður stendur í innleiðingu á samningi SÞ og unnið verði að útfærslum og tillögum að framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks.
Fjölskylduráð samþykkir að tillögur bæjarstjórnar verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2023. Um er að ræða víðamikið og mikilvægt verkefni og er lagt til að stofnaður verði starfshópur og ráðinn verkefnastjóri til að fylgja verkefninu eftir.
Lagt fram.
Lögð fram til kynningar bókun bæjarráðs vegna umsóknar um lóðir fyrir búsetukjarna.
Lögð fram beiðni Barna- og fjölskyldustofu varðandi samstarf um fylgdarlaus börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi. Ægir Örn Sigurgeirsson, deildarstjóri stoðdeildar flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd mætir til fundarins.
Fjölskylduráð tekur jákvætt í erindið um samstarf varðandi fylgdarlaus börn sem sótt hafa um alþjóðlega vernd. Innan fjölskldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðar hefur myndast góð þekking og reynsla í vinnu með fyldarlausum börnum sem hefur einkennst af metnaði og jákvæðni í garð barnanna. Sviðstjóra er falið að svara erindinu og lýsa yfir áhuga á samstarfi við Barna- og fjölskyldustofu.
Ægi Erni Sigurgeirssyni þakkað fyrir fyrir greinagott og upplýsandi erindi.
Fjölskylduráð óskar eftir upplýsingum um kostnaðarauka verði tekin upp taxti NPA miðstöðvarinnar. Þá óskar fjölskylduráð eftir samantekt um fjölda samninga og óskar jafnframt eftir áliti bæjarlögmanns. Einnig óskar ráðið eftir samantekt um samanburð á tímagjaldi hjá nágrannasveitarfélögum. Upplýsingarnar skulu liggja fyrir á næsta fundi ráðsins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Á fundi sínum þann 18. febrúar sl. óskaði fjölskylduráð eftir umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um nýjan kjarasamning NPA miðstöðvarinnar og Eflingar m.a. með því að taka forsendur og útreikninga til skoðunar. Nú hefur Sambandið tilkynnt fjölskylduráði að vegna anna geti sambandið ekki orðið við þessari beiðni fjölskylduráðs. Í svari Sambandsins kemur fram að Reykjavíkurborg hafi farið yfir útreikningana og geri ekki athugasemdir við þá með tilliti til þeirra forsendna sem liggja til grundvallar hjá NPA miðstöðinni. Fulltrúar Samfylkingarinnar ítreka fyrri bókanir og tillögur sínar um að Hafnarfjarðarbær miði við útreikninga NPA miðstöðvarinnar í NPA samningum bæjarfélagsins.
Lagðar fram samþykktir fyrir fjölmenningarráð Hafnarfjarðar. Fyrir liggur að skipa þarf í ráðið samkvæmt 4.gr. reglnanna.
Sviðsstjóra er falið að kalla eftir fulltrúum í Fjölmenningarráð. Skipað verði í ráðið á næsta fundi Fjölskylduráðs.
Lagðar fram reglur Ráðgjafarráðs fatlaðs fólks. Fyrir liggur að skipa þarf í ráðið samkvæmt 2.gr. reglnanna.
Sviðsstjóra er falið að kalla eftir fulltrúum í Ráðgjafaráð fatlaðs fólks. Skipað verður í ráðið á næsta fundi Fjölskylduráðs.
Lagðar fram upplýsingar um málefni barna í fjölþættum vanda.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram minnisblað um Farsældardag sem haldinn verður þann 1.september n.k.
Lögð fram niðurstaða í máli nr. 11/2022 Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar. Lagðir fram tveir úrskurðir úrskurðarnefndar velferðamála.