Lögð fram styrkbeiðni foreldraráðs Hafnarfjarðar að upphæð 75.000 kr. til að standa straum af námskeiði fyrir stjórnir foreldrafélaga í grunnskólum Hafnarfjarðar, fulltrúa foreldra í skólaráðum grunnskóla í Hafnarfirði og fulltrúa foreldra í foreldraráði Hafnarfjarðar.
Fræðsluráð
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Mætt til fundar
- Eyjólfur Sæmundsson formaður
- Helena Mjöll Jóhannsdóttir aðalmaður
- Gestur Svavarsson aðalmaður
- Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir aðalmaður
- Helga Ingólfsdóttir aðalmaður
Ritari
- Guðrún Guðmundsdóttir ritari
-
Almenn erindi
-
1209541 – Foreldraráð Hafnarfjarðar, styrkbeiðni
Fræðsluráð samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk til foreldraráðs Hafnarfjarðar.
-
1209513 – Skólamatur
Fyrir tekið áskriftarfyrirkomulag í hádegismat í grunnskólum.
Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri á Skólaskrifstofu og Guðmundur Ragnar Ólafsson, innkaupastjóri bæjarins mættu til fundarins og fóru yfir fyrirkomulag mataráskriftar. Fræðsluráð ákveður að fyrirkomulag matarpantana í grunnskólum verði ekki breytt að sinni vegna fyrirsjáanlegs kostnaðar.
-
1209529 – Könnun sambandsins og FG - skýrsla
Lögð fram til kynningar niðurstaða sameiginlegrar könnunar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Þróunarfulltrúi grunnskóla fór yfir helstu niðurstöður.
-
1201501 – Úttektir á leikskólum 2012
Lagt fram bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu dagsett 13. september 2012 þar sem tilkynnt er um úttekt á leikskólanum Stekkjarási.
Lagt fram til kynningar. Enn er inni umsókn frá Hafnarfjarðarbæ um úttekt á leikskólanum Hvammi.
-
1208508 – Smáralundur,nafnabreyting
Tekið fyrir frá síðasta fundi ráðsins.$line$
Fræðsluráð samþykkir samhljóða að leggja til við bæjarstjórn að nafn hins sameinaða leikskóla, Smáralundar og Kató, verði Brekkuhvammur.
-
1111153 – Verk- og listgreinar
Tekið fyrir frá síðasta fundi.
Til upplýsinga.
-
0907038 – Gjaldskrár á fræðslusviði
Tekin fyrir frá síðasta fundi gjaldskrá leikskóla og tekjuviðmið vegna viðbótarafsláttar.
Lagt fram til kynningar. Fram kom að viðmiðunarmörkin eru til skoðunar fyrir fjárhagsáætlun 2013.
-
0907038 – Gjaldskrár á fræðslusviði
Farið yfir reglur og fjárhæðir niðurgreiðslna vegna dvalar barna úr Hafnarfirði hjá dagforeldrum.
Til kynningar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2013.
-